Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2016, Síða 34
Múlaþing
voru búnir að éta það upp áður en við uggðum að okkur. Þetta var svo snemma og þess vegna
varð uppskeran bara smælki. Eg á garð hér heima við húsið, sem ég rækta ýmislegt í. Þar
hafði ég tvær raðir af kartöflum meðfram norðurhliðinni og þær spruttu með afbrigðum vel.
í þessum garði er mest af gulrófum sem spruttu vel, ef tekið er tillit til þess, að ég varð að
sá tvisvar. I fyrra skipti komu fræin ekki upp. Svo sáði ég aftur, en í þetta munaði um tveim
vikum. Ég fékk ágætar gulrætur, hvítkál, blómkál, grænkál og radísur. Ég sáði líka salati og
næpum, en það kom sama og ekkert upp. Ég á líka í garðinum sólber og rifs, það er hvorugt
farið að bera ávexti. Rifsið er svo ungt, en sólberjarunnamir vora étnir hvað eftir annað af
því hvað girðingin léleg. Nú er komin ágæt girðing kringum garðinn. Auk þessa á ég töluvert
af útlendum jarðaberjum. Garðurinn er á of miklu bersvæði til þess að þau þroskist vel, en
stór eru þau berin af þeim, en jarðaber þurfa gott skjól og þó sólríkt til þess að þrífast vel.
Líka er þama jarðarber úr Hafnarijarðarhrauninu. Auk þess eru þarna rabbabarahnausar,
ramfang, baldursbrá, hvönn, keisarakróna, tvær hindberjahríslur, litlar og ein kjörvellhrísla.
Svo eru grasblettir, og því hægt að koma fleira fyrir ef þörf gerist. Þetta er nær hálfgerður
samtíningur, en ég hefí gaman af þessu. Þó liggur töluvert verk í því að hirða svona garð, en
í góðu veðri er það gaman. I sumar var sérstaklega hagstætt grænmetissprettusumar.
I stofunni minni á ég heilmikið af blómum. Nokkur þeirra era enn blómstrandi. A
jólakaktus, sem ég á eru að byrja að koma blóm, hann er heldur snemma á ferðinni. Tvær
mánaðarrósir, rauðar eru núna að springa út. Auk þess á ég 10 pelagóuníutegundir, 4 rósateg,
5 hengiplöntur, risapelagoniu, rúmlega 1 Vi m., 2 lísuteg, appelsínutré, fusssíu, gluggahnoðra,
ísplæntu, bergfléttu, beltisheimsstjörnu (hvíta) kalla ( stóran ) og greipaldin tré. Af sumum
á ég fleira en eitt blóm. Mánaðarrósimar hafa svo indælan ilm, þess vegna á ég fleiri en eina
af þeim. Ein rósin er vaxin upp af græðlingum ffá þér. Ég er í kringum viku að skipta um
mold á blómunum í hjáverkum. En ekki skipti ég venjulega á þeim öllum í einu,heldur eftir
því sem hentugleikar leyfa. Ef ég þarf að vökva öll blómin í einu er ég í kringum 15 mínútur
að því, en ekki þarf alltaf að vökva allar á hverjum degi, fer það eftir veðurfari og árstíð.
Öðru hverju þarf ég að fara í gegnum þau, taka laus blöð, sem föst eru á blómunum, klippa
af ljótar greinar og fl. Svo raða ég þeim á nýjan leik, eftir því sem mér þykir þá fallegast.
Blómin breytast svo mikið frá einni viku til annars. Þetta tekur 1-1 14 klukkustund og geri
ég þegar ég hef bestan tíma, helst á laugardögum. I raun og vera er ekki mikill tími sem
fer í þetta, en það útheimtir töluverða hugsun. Inni í stofu hef ég alltaf blómakönnu fulla af
vatni, sem ég get gripið til í flýti, ef ég sé að blóm ætlar að verða of þurrt, en hefi ekki tíma
í svipinn til frekari aðgæslu.
Til hvítkálsins og blómkálsins, sái ég fyrst til inni, planta svo út í litla pappakassa, læt
þá svo út í garðinn seinnihluta júní. Þetta er töluvert verk, en gott að hafa kálið þegar það
er sprottið.
Ég veit ekki, hvort þú endist til að lesa þetta. Það er svo lítið spennandi sem gerist hér og
þá er ekki um annað að gera en að segja frá daglega lífinu. Þú fýrirgefur því þessa langloku
Ég bið að heilsa öllum á bænum og Trausti biður líka að heilsa.
Ef þú hefðir tíma værir þú velkomin að vera hjá mér í nokkra daga.
Vertu svo blessuð og sæl og Guð geymi þig og ykkur öll.
Þín einl. vinkona
Margrét Ivarsdóttir
32