Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2016, Síða 127
Rekstur úr Rana haustið 1957
Fór Jónas í Klaustursel þann dag, býli sem er
austan megin á Jökuldalnum, gegnt Flákonar-
stöðum, nokkru utar en Raninn. Veður var
stillt og bjart, snjóhrafl um heiðina, en harð-
fenni víðast og því ágætt umferðar. Daginn
eftir fór Jónas inn fyrir ærnar, er voru mest
utan til í Rananum, en þó nokkrar inn undir
Flölkná. A fimmtudag var svo Jóhann bóndi á
Eiríksstöðum, ásamt Smára, syni Gunnlaugs
bónda þar, fenginn til að smala Ranann með
Jónasi, en þeir komust þá á ísspöng yfír Jökul-
sá, en annars var hún víða auð. Nokkuð
vantaði af ánum þá um kvöldið.
Ég hafði nú ákveðið að fara vestur og fékk
með mér Kjartan bónda á Þuríðarstöðum, og
kom hann til mín á fímmtudagskvöld. Að
morgni föstudags 22. nóv. lögðum við Kjartan
svo af stað kl. 6.30 í stilltu og ágætu veðri,
heldur fyrr en fyrsta dagsbrúnin sást yfir aust-
urljöllum. Kjartan fékk hestinn Grána, en ég
var á Egilsstaða-Brún. Báðir voru þeir stólpar
miklir, en engir gæðingar. Tíkin Fjára fylgdi
mér og önnur tík Kjartani. Bratt er upp ijallið
innan við Bessastaðaána, og teymdum við því,
þar til komið var upp fyrir mesta brattann. Var
þá dagur á lofti, frost, og lítils háttar gola í
fangið. Riðum við svo upp með Bessastaðaá
og vestur hjá svonefndum Þrímelum. Þar hljóp
Kjartan af baki og upp á einn hólinn, og brá
fyrir sig sjónauka er við höfðum. Sá hann þá
hreindýr víðsvegar, og þó einkum meðfram
Gilsárvötnum.
Við héldum svo strikinu vestur, og var bitur
frostnæðingur á móti vestan til á heiðinni,
og smávegis renningsskrið. Kl. 11 komum
við að Eyvindará við Ytri Vegarkvísl, og
lygndi þar alveg og mildaði og var dásamlegt
veður. Fengum við okkur þar bita og áðum
litla stund. Héldum svo út Eyvindardalinn.
Brá Kjartan brátt fyrir sig sjónaukanum og
kom fljótt auga á 5 kindur, skammt innan
við Húsahvamm, skál djúpa og vel gróna við
Eyvindarárgilið út undir Sporði. Riðum við
nú þangað og reyndust þar vera 8 ær, er við
Kjartan Bjarnason bóndi á Þuríðarstöðum í Fljóstsdal.
Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austurlands.
rákum vestur yfír og á Brattagerði. Þar var
þá Jónas að koma innan af Jökuldalnum og
hafði fundið 21 á. Vantaði þá enn 16, og þar
á meðal forustusauðinn Flekk og forustuána
Pílu. Þetta þýddi að ekki myndum við reka
austur næsta dag. Enn yrði að leita kinda
þeirra er vantaði
Við fengum okkur nú matarbita í Bratta-
gerðiskofa, sem þykir heldur lágreistur og
lítt vistlegur, með torfveggjum og jámþaki.
Svo töldum við ærnar í girðingunni á ný og
fengum sömu tölu og áður. 2 ær væru þama er
við treystum ekki til rekstrar austur yfír heiði.
Hafði önnur þeirra fótbrotnað, en hina fann
hundur frá Eiríksstöðum í moldargróf, og var
hún orðin þrekuð nokkuð. Gekk þó vel rekstur
þeirra út í Klaustursel. En frá Brattagerði og
þangað er meira en klukkustundargangur og
yfír Eyvindará að fara, sem fellur í djúpu gili,
og er ófær nema vatn sé mjög lítið í henni.
Nú var hún á ísi og sæmilegt að klöngrast upp
og niður úr gilinu. Svellalög vom talsverð út
dalinn og þurfti að þræða auðu rindana. Við
vorum svo í góðu yfirlæti í Klausturseli um
nóttina.
125