Fréttablaðið - 26.11.2021, Side 12
Við erum
að fá upp
svo til
reyklausar
kynslóðir.
Hafsteinn Viðar
Jensson, verk-
efnisstjóri hjá
Landlækni
Þegar
reykingar
verða
komnar
undir 5
prósent
meðal
fullorðinna
má líta svo
á að sigur
hafi unnist.
Karl Andersen,
yfirlæknir á
Landspítala
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
300
250
200
150
100
50
Salan hefur hrunið en kippur varð við fjölgun ferðamanna
n Reyktóbak, grömm á
hvern 15 ára og eldri
n Reyktóbak, kíló
19
81
19
85
19
89
19
93
19
97
20
01
20
05
20
09
20
13
20
17
20
20
grömm kíló
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
19
91
19
92
19
93
19
94
19
95
19
96
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
20
14
20
15
20
16
20
17
20
18
20
19
20
20
Reykja daglega, 18 til 89 ára
Á rúmum fimmtíu árum hafa
tóbaksreykingar hrapað um
meira en 40 prósent, með
tilheyrandi umbyltingu í lýð-
heilsu landsmanna. Nýliðun
reykingafólks er afar lág, en
erfiðast hefur reynst að ná til
innflytjenda.
HEILBRIGÐISMÁL Stærsta breyting
í lýðheilsu Íslendinga á undan-
förnum áratugum er hversu vel
baráttan gegn tóbaksreykingum
hefur gengið. Árið 1968 reykti annar
hver fullorðinn Íslendingur og fyrir
aðeins þrjátíu árum síðan mátti
rekja þriðja hvert dauðsfall beint
til reykinga, eitt á dag. Í dag reykja
7 prósent fullorðinna, sem er næst-
lægsta hlutfall í Evrópu. Aðeins
Svíar reykja minna, en þar er snus-
notkun útbreidd.
„Íslendingar mega vera stoltir
yfir þeim árangri sem við höfum
náð í reykingavörnum, þar sem við
höfum verið í fararbroddi í heim-
inum. Það hefur skilað sér í bættri
lýðheilsu,“ segir Karl Andersen, yfir-
læknir á Hjartagátt Landspítalans
sem hefur setið í Tóbaksvarnaráði
og fylgst grannt með þessari bar-
áttu.
Karl segir auðvelt að telja fjölda
dauðsfalla sem rekja megi til reyk-
inga, þeim hafi fækkað verulega á
undanförnum áratugum. Það segi
þó ekki alla söguna um afleiðingar
reykinga, sem höfðu veruleg áhrif
á heilsufar fólks um miðja síðustu
öld þegar reykingar voru miklu
almennari.
„Þegar ég var unglæknir fyrir
rúmum þrjátíu árum var algengt
viðfangsefni á bráðamóttökunni
að sjá fólk með versnun á langvinnri
lungnateppu,“ segir Karl. „Fólk gat
ekki andað þegar það fékk kvef.
Fólk þjáðist mjög vegna þessa sjúk-
dóms, en í dag er þetta orðið mun
fágætara.“
Á áttunda og níunda áratugnum
voru tvær fullar hæðir af lungna-
veiku fólki inniliggjandi á Vífils-
stöðum. Í dag er þar rekin öldrunar-
deild.
Tóbaksreykingar eru stærsti
fyrirbyggjandi áhættuþátturinn
þegar kemur að hjarta- og æðasjúk-
dómum annars vegar og lungna-
sjúkdómum á borð við krabbamein
hins vegar. Á síðustu 30 árum hefur
nýjum hjartaáfallatilvikum fækkað
um 80 prósent og tölurnar eru svip-
aðar þegar kemur að dauðsföllum
af völdum kransæðasjúkdóms. Um
fjórðung af þessari fækkun má bein-
línis tengja við minni reykingar.
Þrátt fyrir að tölurnar séu allar
á leiðinni niður má búast við því
að þessi þróun haldi áfram. Ekki
aðeins vegna þess að reykingafólki
heldur áfram að fækka, heldur
vegna þess að reykingar hafa 20
ára sjúkdómabyrði. Karl segir það
taka reykingamann 20 ár að fá
svipaðar horfur og ef hann hefði
aldrei reykt.
Endataflið
Þegar Sif Friðleifsdóttir var heil-
brigðisráðherra, árin 2006 til 2007,
viðraði hún þá hugmynd að taka
tóbak úr almennri sölu. Yrði það þá
aðeins selt í apótekum. Á þessum
tíma kom til landsins belgískur
tóbaksvarnafulltrúi að nafni Luke
Joosens og sagði þetta einungis ger-
legt ef reykingar væru komnar niður
í 5 prósent, en þær voru um 20 pró-
sent á þeim tíma.
„Því miður erum við ekki stödd á
þeim stað að tóbakssala standi ekki
undir sér. Þetta eru enn þá 15 til 20
þúsund manns sem reykja,“ segir
Hafsteinn Viðar Jensson, verkefnis-
stjóri tóbaksvarna hjá Landlæknis-
embættinu, aðspurður hvort tób-
akssala fari að hætta að borga sig.
Peningar eru þó einmitt það sem
hefur haft hvað mest áhrif á þróun
reykinga. Það er stýring ríkisins
með skattlagningu.
„Það sem skiptir mestu máli er
skattlagning og verð á tóbaki,“ segir
Hafsteinn. „Þar á eftir koma tak-
Styttist í sigurinn
gegn reykingum
Margir Íslendingar hafa drepið í síðustu sígarettunni síðustu áratugi og fáir sem enn reykja eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
markanir á aðgengi, auglýsinga-
bann, viðvaranir á pakkningum og
aðstoð við að hætta.“
Ísland hefur verið framarlega á
heimsvísu í ýmsum tóbaksvarna-
aðgerðum. Meðal annars var Ísland
fyrsta landið til að banna tóbaks-
auglýsingar, í fjölmiðlum og utan-
dyra árið 1971 og að fullu 1977. Árið
1984 var Ísland fyrsta landið til að
banna reykingar í millilandaflugi.
Stærsta breytingin í seinni tíð,
var í ráðherratíð Sifjar, þegar reyk-
ingar voru bannaðar á opinberum
stöðum og vinnustöðum, þar á
meðal skemmtistöðum. Þetta var
hins vegar ekki tóbaksvarnaaðgerð
í sjálfu sér, heldur vinnuverndar-
mál.
Karl Andersen bendir á að hálfu
ári eftir bannið hafi hjartaáföllum
fækkað um 19 prósent. Þetta átti
ekki aðeins við um reykingafólkið
sjálft, heldur allt mengið. Sama
hlutfall sást hvar sem sambæri-
legar reglugerðir voru teknar upp,
austan og vestan Atlantsála. Karl
segir þessa aðgerð hafa haft mun
meiri áhrif en til dæmis einstaka
lyfjameðferðir.
„Við erum í raun komin í enda-
taf lið í glímunni við reykingar.
Þegar reykingar verða komnar
undir 5 prósent meðal fullorðinna
má líta svo á að sigur hafi unnist,“
segir Karl. Reykingar verði þá orðin
jaðarhegðun sem ekki þurfi að taka
tillit til.
Staðreyndir um reykingar
n Reykingafólki hefur
fækkað um 0,86 prósent
árlega í hálfa öld.
n Nærri 60 prósent karla
reyktu árið 1968.
n Þriðjungur unglinga reykti
árið 1974.
n Á hálfri öld hefur meðal-
ævilengd Íslendinga
hækkað um 9 ár.
n Nýgengi lungnakrabba-
meins náði toppi árið 1986
og hefur verið á niðurleið
síðan 2007.
n Fjórðung af lækkaðri tíðni
hjartaáfalla má skýra með
minnkun reykinga.
n Sala reyktóbaks er fimmt-
ungur af því sem hún var
árið 1979.
n Neftóbakssala féll úr 46
tonnum í 25 tonn árið 2020.
Ungt fólk reykir ekki
Þó að baráttan við reykingar gangi
betur en nokkur þorði að vona,
eru enn þá þúsundir manns sem
reykja. Fyrir hálfri öld voru karl-
menn í meirihluta reykingamanna
en nú eru konur örlítið f leiri.
Meðal aldurinn hefur hækkað og
f lest reykingafólk er í kringum
fimmtugt.
Vissulega hafa margir hætt að
reykja en helsta ástæða þess að
hlutfallið hrapar jafn hratt og
það gerir, er að ungt fólk er ekki
að byrja. Þetta sést meðal annars
á framhaldsskólakönnunum sem
Rannsóknir og greining hafa gert
árlega.
„Það er alveg nýtt að sjá 1 til 2 pró-
sent reykingar í framhaldsskólum.
Við erum að fá upp svo til reyklausar
kynslóðir,“ segir Hafsteinn. Nýliðun
reykingafólks er í dag mjög lág.
Þegar reykingar eru skoðaðar
eftir þjóðfélagsstöðu sést að þeir
sem eru minna menntaðir og standa
félagslega og efnahagslega höllum
fæti reykja meira en aðrir. Þetta er
athyglisvert í ljósi þess að sá sem
reykir pakka á dag þarf að greiða
meira en hálfa milljón króna árlega
fyrir.
Hlutfall reykingafólks hefur verið
allt að 10 prósentum yfir lands-
meðaltali á Suðurnesjum og skýrist
það einkum af háu hlutfalli inn-
flytjenda.
„Margar þjóðir, til dæmis frá
Austur-Evrópu, reykja eins og
Íslendingar gerðu fyrir þrjátíu árum
síðan,“ segir Karl. „Þarna er önnur
menning og hefur ekki verið unnið
að reykingavörnum á sama hátt og
hér.“
Reykingar ekki eini vandinn
Reyktóbakið er ekki eini nikótín-
gjafinn sem Íslendingar kljást við.
Fyrir nokkrum árum sást mikil
aukning í neftóbakssölu og rafrett-
urnar komu inn með miklum hvelli.
Undanfarið hefur sala neftóbaks
hins vegar hrapað og rafrettunotk-
un virðist föst í 4 prósentum.
Hafsteinn segir nikótínpúðana
hafa verið í mikilli sókn og harmar
að ekki hafi náðst að fella þá undir
lög um rafrettur síðastliðið vor. Þá
hefði salan verið bundin við sér-
verslanir, sett 18 ára aldurstakmark,
auglýsingabann og eftirlit með inn-
flutningi og sölu.
Þrjátíu prósent ungmenna á aldr-
inum 18 til 24 ára nota nikótínpúða
og ólíkt neftóbaki er hlutfall hjá
konum ekki mikið lægra en hjá
körlum.
Þrátt fyrir þennan vágest bendir
Hafsteinn á að tóbaksreykingarnar
séu mun alvarlegri hlutur. Um
helmingur reykingafólks deyi fyrir
aldur fram.
Vandamálin hverfa ekki heldur
alfarið með reykingum. Karl bendir
á að offita, sykursýki og hreyfingar-
leysi séu að taka við af reykingum
sem mesti skaðvaldur íslenskrar
lýðheilsu. n
Kristinn Haukur
Guðnason
kristinnhaukur
@frettabladid.is
10 Fréttir 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFRÉTTASKÝRING FRÉTTABLAÐIÐ 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR