Fréttablaðið - 26.11.2021, Qupperneq 24
Olaf Scholz verður nýr
kanslari Þýskalands innan
tíðar. Hann hefur rifið Jafn
aðarmannaflokk landsins
upp úr öskustónni og stefnir
nú hraðbyri í ríkisstjórn. Þrátt
fyrir það er hann almennt
talinn persónuleikalaus og
hefur verið líkt við vélmenni.
thk@frettabladid.is
ÞÝSKALAND Jafnaðarmannaflokk
urinn í Þýskalandi (SPD) hefur átt
undir högg að sækja um nokkurra
ára skeið, en nú virðist allt í blóma.
Flokkurinn var sigurvegari þing
kosninganna þar í landi í lok sept
ember, reis úr 15 prósenta fylgi í vor
upp í 25 prósenta fylgi í kosningun
um, hlaut mest fylgi allra flokka og
stefnir nú hraðbyri í ríkisstjórn. En
hvernig stendur á þessum skyndi
legu sviptingum?
Rólyndismaðurinn Olaf Scholz,
kanslaraef ni Jaf naðar manna
f lokksins, er ein helsta ástæða
þess, en skömmu fyrir kosningar
sagðist tæplega helmingur þýskra
kjósenda vilja Scholz sem næsta
kanslara. Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, gaf út fyrir kosning
arnar að hún hygðist ekki gefa kost
á sér til áframhaldandi setu. Nú
virðist allt benda til þess að stórum
hluta Þjóðverja verði að ósk sinni,
en tilkynnt hefur verið um ríkis
stjórnarsamstarf Jafnaðarmanna,
Græningja og Frjálslyndra demó
krata. Það stefnir því í töluverðar
breytingar á hinu pólitíska sviði
Þýskalands.
Mik ið persónu f ylg i Scholz
kemur þó mörgum töluvert á óvart,
en hann verður seint talinn með
skemmtilegri mönnum, af þeim sem
þekkja til hans. Hann er þekktur
fyrir að vera nokkuð litlaus og hefur
gjarnan verið líkt við vélmenni, en
rólyndislegt fas hans hefur gert
hann að skotspæni pólitískra and
stæðinga, sem og stuðningsmanna
síns eigin f lokks. Það má því ef til
vill ekki búast við því að hann haldi
uppi stuðinu í ríkisstjórninni, að
minnsta kosti ekki með áfengi,
enda annálaður bindindismaður,
en mikilvægt er að stemma stigu
við stuðboltana sem almennt hafa
einkennt þýsk stjórnmál síðustu ár.
Scholz leggur mikla áherslu á
jafnrétti kynjanna og hyggst fram
fylgja kosningaloforði sínu um
jafna kynjaskiptingu ríkisstjórn
arinnar þegar hann tekur við em
bætti kanslara. Þá er hann einarður
stuðningsmaður ESB, vill róttækari
aðgerðir í loftslagsmálum, hyggst
hækka lágmarkslaun og lögleiða
kannabis. n
Litlaus leiðtogi Þýskalands
Olaf Scholz
verður að öllu
óbreyttu nýr
kanslari Þýska-
lands.
Scholz ásamt Angelu Merkel, núverandi kanslara. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Fjölskylduhagir: Giftur Brittu
Ernst síðan 1998. Þau eru barn-
laus.
Ferill: Fyrrverandi aðstoðar-
maður kanslara. Borgarstjóri
Hamborgar frá 2011–2018. Fjár-
málaráðherra og varakanslari
frá 2018.
Fróðleiksmolar: fæddur 14.
júní 1958 – andkapítalisti á
yngri árum – ólst upp í úthverfi
Hamborgar – elstur þriggja
bræðra – menntaður lögfræð-
ingur – tapaði í formannsslag
SPD 2019.
n Nærmynd
Olaf Scholz
teogkaff i . is
20%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRUM
Í VEFVERSLUN
SVARTUR
FÖSTUDAGUR
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Mmm ...
Gerðu þitt eigið
jólahlaðborð!
tsh@frettabladid.is
VEÐUR Næsta sunnudag er fyrsti
sunnudagur í aðventu og Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur
segir að búast megi við sambærilegu
veðri á aðventunni og sést hefur
undanfarið. Miklum sveiflum í hita
stigi og töluverðri úrkomu.
„Já, það er búið að vera dálítið
köf lótt, sérstaklega hvað hitann
varðar. Hann fer upp og niður í
sífellu og það er svo sem ekkert lát á
því. Það er eitthvert svona veðurlag
sem við sjáum í spám, að minnsta
kosti út næstu viku.“
Að sögn Einars mun úrkoman
ýmist falla sem rigning, slydda
eða snjór, með tilheyrandi hálku.
Engin stórviðri eru í kortunum
að undanskildum stormi sem fór
yfir Austurland í nótt. Undir lok
spátímans næstu tíu daga fer að
glitta í dýpri lægðir en verið hafa
að undanförnu.
Það sem veldur þessum miklu
hitasveiflum er mikið hæðarsvæði
sem hefur hreiðrað um sig suðvestur
af landinu. Spurður hvort búast
megi við meiri snjókomu næstu
daga, segir Einar að suðvestanlands
muni ef laust snjóa lítillega suma
daga.
„Hann gæti gert föl eins og hefur
verið að undanförnu en það er
ekkert mikið meira en það. Það er
bara snjór sem staldrar stutt við
og er oft blautur og slabbkenndur.
Hann er ekkert að detta í eitthvert
algjört vetrarástand með köldu lofti
og snjó. Það er nú eiginlega bara
lýsandi fyrir tíðina á aðventunni
hvað veðrið er breytilegt og miklar
sveiflur,“ segir Einar. n
Miklar veðursveiflur á aðventunni
Einar Svein-
björnsson,
veðurfræðingur
á Veðurvaktinni
lovisa@frettabladid.is
COVID 19 Lyfjastofnun Evrópu mælir
nú með bólusetningu barna á aldr
inum 5 til 11 ára með bóluefni Pfi
zer. Bóluefnið er nú þegar notað við
bólusetningu barna á aldrinum 12
til 18 ára og fullorðinna.
Fram kemur í tilkynningu frá
Lyfjastofnun að minni skammtur
verði notaður á börn á aldrinum 5
til 11 ára, eða þriðjungur þess sem
12 ára og eldri fá. Eins og hjá öðrum
er mælt með að börnin fái tvær
sprautur með þriggja vikna millibili.
Samkvæmt niðurstöðum rann
sóknar sem gerð var á virkni bólu
efnisins í aldurshópnum, var mót
efnasvar hans svipað og hjá eldri
hópum. n
Heimila bólusetningar fimm til ellefu ára
22 Fréttir 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ