Fréttablaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 29
Helsta röksemd þeirra sem hafa
viljað láta seinni talninguna í Borg
arnesi standa er sú að breytingarnar
sem urðu á úrslitum í Norðvestur
kjördæmi milli talninga hafi ekki
breytt útkomu kosninganna.
Jú, mikil ósköp, það hafi svo sem
verið vissir vankantar á vörslu kjör
gagna – þó að ekkert bendi til þess
að við þau hafi verið átt milli fyrri og
seinni talningar – en breytingarnar
hafi verið óverulegar. Vilji kjósenda
hafi komið í ljós. Ekki taki því að
kjósa á ný.
Breyttist ekkert?
Samkvæmt þessu viðhorfi virðist í
lagi að fara ekki að lögum og reglum
við framkvæmd kosninga, takist
ekki að sýna fram á að slík brot hafi
breytt niðurstöðu kosninganna.
Lögbrot eru í lagi ef þau hafa ekki
af leiðingar. Það er athyglisvert
viðhorf hjá sjálfri löggjafarsam
komunni.
Einu virðist gilda um traust kjós
enda á ferlinu. Einu virðist gilda
um það sjónarmið að reglum eigi
að fylgja; reglur séu settar við lýð
ræðislegt ferli af þessu tagi af ein
hverjum ástæðum, og það skuli ekki
hverjum og einum í sjálfsvald sett
hvort farið sé að þeim eða ekki; og
komi í ljós brot, sé það látið óátalið
að mestu – hafi brotið ekki breytt
niðurstöðum, svo að séð verði. Með
öðrum orðum: smámál. Formsat
riði. Svona eins og að sleppa því að
gefa stefnuljós.
En er þetta rétt? Breytti ólík
útkoma tveggja talninga í Borgar
nesi ekki úrslitunum? Hún breytti
reyndar ekki hlutföllum flokkanna
– en segir það alla söguna?
Hefði fyrri talning í Borgarnesi
staðið hefði það gerst í fyrsta sinn
í þingsögunni að konur væru fleiri
á þingi en karlar. Þetta breyttist við
endurtalningu og áfram eru karlar
meirihluti þingmanna. Er þetta
óveruleg breyting sem ekki skiptir
máli?
Hefði fyrri talning staðið væri
Lenya Rún Taha Karim þingmaður
fyrir Pírata. Hún er 21 árs og hefði
orðið yngsti þingmaður sögunnar,
dóttir innflytjenda frá Kúrdistan,
fulltrúi fyrir svo margt og hefur
látið mjög til sín taka í þjóðmála
umræðunni. Bergþór Ólason væri
hins vegar ekki þingmaður fyrir
Miðf lokkinn. Er þetta óveruleg
breyting sem ekki skiptir máli?
Hvað eiga annars Lenya Rún og
Bergþór sameiginlegt annað en það
sem þau eru hvorugt, til dæmis í rík
isstjórnarflokkunum? Við gætum
allt eins sagt að þau eigi það sam
eiginlegt að vera hvorugt stanga
stökkvari. Þau standa fyrir gagn
stæð sjónarmið í f lestum málum.
Þeir sem halda því fram að það
skipti ekki máli hvort þeirra sest
nú á þing, svo fremi sem valdahlut
föll flokkanna riðlist ekki – þeir eru
þar með að segja að ekki skipti máli
hvaða fólk veljist á þing yfirleitt.
Hvað er svona merkilegt við það
að vera þingmaður?
Alþingi er átakavettvangur. Þar er
tekist á um stefnu, völd og áhrif – en
Alþingi er líka samstarfsvettvangur,
staður þar sem fólk með ólík lífsvið
horf þarf að setjast niður saman og
semja um eitt og annað.
Persónulegir eiginleikar þing
manna skipta miklu máli þegar
kemur að því að vinna saman að
málum í nefndum. Það hvernig
þingmenn haga máli sínu í þingsal
eða í fjölmiðlum skiptir líka miklu
máli, þegar kemur að því að ákveða
ríkisstjórnarsamstarf. Sumum þing
mönnum er lagið að finna leiðir til
að leysa mál, leita sátta, byggja brýr
– aðrir þingmenn leita þrátta, magna
upp ágreining og brenna brýr. Innan
sama þingflokks getur skipt máli
hvort til þingsins velst sáttfús ein
staklingur eða þráttfús, vinnusamur
eða latur, eigingjarn eða örlátur – og
þannig má áfram telja. Það skiptir
líka máli innan þingflokka hvernig
fólk velst þar saman og hvernig það
á skap saman. Þingmenn eru ekki
bara puttar á rauðum tökkum eða
grænum. Hlutverk þeirra er ekki
bara að greiða atkvæði með tákn
rænum hætti um frumvörp sem
verða til í ráðuneytum. Þetta er lög
gjafarsamkoman.
Smámál?
Niðurstöður í Borgarnesi hafa áhrif
á það hvort þingmaður úr Suður
kjördæmi eða Norðvesturkjördæmi
verður fulltrúi fyrir sinn flokk. Allt
er samofið og einungis fyrir sér
fræðinga í Kaoskenningunni að
henda reiður á því öllu. Ef fiðrildi
blakar vængjum í Amazon verður
Bergþór Ólason þingmaður. Og svo
framvegis. Þessi hringekja sem fer
af stað undir morgun á kjördag –
og staðnæmist ekki fyrr en núna
– er aðferð við að jafna vægi flokk
anna svo að styrkur þeirra á alþingi
endurspegli þjóðarviljann, svona
nokkurn veginn. En við búum ekki
við fullt þingræði fyrr en atkvæða
vægi verður jafnað og kjósendur fá
að vita að atkvæði þeirra skili sér í
raun og veru þangað sem því er ætlað
að vera.
Smámál? Nei: Það er ekki smámál
að kjósendur verði bara að treysta
því að ekki hafi verið átt við kjör
gögn sem skilin voru eftir óvarin,
gagnstætt lögum og reglum. Það er
ekki smámál hvaða einstaklingar
veljast til þingsetu. n
Smámál?
n Í dag
Guðmundur Andri
Thorsson
FALLEGAR
PRJÓNAFLÍKUR
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | www.forlagid.is
Yfir 40 prjónauppskriftir fyrir
alla fjölskylduna sem henta
í útivist allan ársins hring.
Höfundar bókarinnar eru
Hjelmås og Steinsland sem
standa að KlompeLOMPE.
FÖSTUDAGUR 26. nóvember 2021 Skoðun 27FRÉTTABLAÐIÐ