Fréttablaðið - 26.11.2021, Side 46

Fréttablaðið - 26.11.2021, Side 46
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg @frettabladid.is SVARTUR FÖSTUDAGUR 30% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM ALLA HELGINA KÓÐI Í VEFVERSLUN: SVARTUR LINDESIGN.IS Við erum kannski ekki alveg til í mestu geðveikina sem maður hefur séð á netinu. Fólk er þegar farið að hafa áhyggjur af tösku- plássi í hópnum og það stefnir klárlega í yfirvigt. Barack Obama með dætrum sínum á Small Business Sat- urday; mótvægi kaupmanna í Washington til hvatningar að versla í minni sniðum í stað Black Friday og Cyber Monday. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY 4 kynningarblað 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURSvartur föStudagur Guðrún Hauksdóttir, tölv- unarfræðingur í Lundúnum, er nú stödd mitt í hring- iðu Black Friday-æðisins í Bandaríkjunum. „Við fórum reyndar ekki gagngert vestur um haf til að gera góð kaup á Black Friday heldur erum við óvænt tveimur vikum seinna á ferð en ráðgert var, því ein úr genginu fékk Covid. Því erum við nú lentar í miðri Black Friday-vikunni vestra og sjálfur Black Friday er handan við hornið með öllum sínum óvið- jafnanlegu tilboðum,“ segir Guð- rún Hauksdóttir, tölvunarfræð- ingur hjá fjárfestingarbankanum Goldman Sachs í Lundúnum. Guðrún er stödd í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington DC, ásamt móður sinni, systur og vin- konu, í heimsókn hjá kærri æsku- vinkonu þeirra, Agnesi Jóhannes- dóttur, sem stundar doktorsnám í tölvunarfræði við Háskólann í Maryland. „Þetta er svolítið einsleitt hjá okkur stelpunum,“ segir Guðrún og hlær. „Við höfum verið vin- konur síðan við vorum pínulitlar í Snælandsskóla og erum nú allar tölvunarfræðingar, því Elín Rós systir var að klára meistaranám í tölvunarfræði frá Cambridge- háskóla og er nú að leita sér vinnu í Lundúnum“, segir Guðrún sem býr þar í Dulwich-hverfinu. Búnar að afgreiða jólagjafirnar Heima hjá Agnesi í DC er ekki þverfótað fyrir pökkum, pinklum og pokum úr innkaupaferðum vikunnar. „Jú, fólk er farið að hafa áhyggjur af töskuplássi í hópnum og búið að versla mun meira en nauðsynlegt er. Það stefnir klárlega í yfirvigt því við erum á góðri leið með að afgreiða jólagjafirnar. Það er líka voða gott upp á það að koma heim í aðventuna og geta notið töfra hennar stresslaust og tilbúin í jólin,“ segir Guðrún kát. Hún segir Washington DC yndis- lega borg heim að sækja, en sjálf bjó hún þar fyrir sjö árum. „DC er skemmtileg verslunar- borg. Aðalverslunargatan er M Street, afar kósí og snyrtileg með flottar verslanir af öllu tagi. Þá eru kringlurnar æðislegar. Þær standa reyndar aðeins fyrir utan mið- borgina en auðvelt að taka þangað lest ef maður vill leggja smá á sig. Allar borgir í Bandaríkjunum eru ólíkar með sinn sjarma og sérkenni, en hér ríkir ekki sama brjálæðið og í New York þar sem ég þekki líka vel til. Ég myndi því Óvænt reyfarakaup og jólagleði í Washington dC Kátar eftir skemmtilega verslunarferð í Washington. Frá vinstri: Laufey Rut Guðmunds- dóttir, Guðrún Hauksdóttir, Kristín Jónas- dóttir og Elín Rós Hauksdóttir MYND/AGNEs jóhANNEsDóTTIR alltaf velja frekar að fara hingað í verslunarferð, því Washington hefur upp á svo margt fleira að bjóða. Hér er ekki bara rólegt og notalegt andrúmsloft heldur líka lægri byggingar og minni traffík, mikil menning og saga, spennandi söfn, Hvíta húsið og forsetinn á næsta leiti, sem er skemmtilegt, og allt svo hreint og snyrtilegt.“ Fólk varast að snertast Guðrún og föruneyti hennar í Washington hafa gert reyfarakaup á tilboðum Black Friday. „Við erum til dæmis búnar að fara í Banana Republic, Nike, Under Armour og Express þar sem eru æðislegir jólakjólar. Við fórum líka í Ralph Lauren og gerðum þar bestu kaupin, en það var lán í óláni hjá versluninni. Ég var komin á kassann með Ralph Lauren-stutt- ermaboli sem áttu að vera á 25 prósenta afslætti en vegna villu í afgreiðslukassanum datt ég inn á 75 prósenta afslátt. Afgreiðslumað- urinn var í basli þar sem verðið kom ekki rétt inn, því kassinn vildi fyrst gefa 50 prósenta afslátt og í ofanálag umrædd 25 prósent, en úr því svona háttaði var ekki annað í stöðunni en að selja mér bolina með þessum mikla afslætti. Við keyptum því boli sem áttu að kosta 68 dollara á 18 dali, sem eru án efa langbestu Black Friday-kaupin til þessa,“ segir Guðrún sátt og hress með búðarápið. Stemningin sé líka afslappaðri en þær reiknuðu með í þessari mestu verslunarviku ársins vestra. „Í sjónvarpinu hefur maður séð fólk hlaupa og ryðjast inn í búðir á Black Friday, en við höfum ekki orðið varar við neitt slíkt enn. Við höfum þó lent í löngum röðum snemma morguns og allt að hálf- tíma langri bið á kassa. Hvort sem það skrifast svo á Covid eða annað er enginn æsingur í fólki né troðningur. Allir virðast forðast að snertast og það er örugglega enginn að fara að olnboga mann núna,“ segir Guðrún og skellir upp úr. „Hér ríkir bara skemmtilegt jóla- stemning, gleði og tilhlökkun og allir voða næs. Spurning hvernig sjálfur svarti föstudagurinn verður, en kannski tökum við því rólegar þá. Við erum ekki alveg til í mestu geðveikina sem maður hefur séð á netinu og erum líka orðnar frekar ánægðar með það sem við höfum keypt nú þegar.“ Félagsskapurinn dýrmætastur Gengið hennar Guðrúnar hefur áður farið saman í borgar- og versl- unarferðir. „Eftir þessa búbót verður þetta árlegt,“ segir hún í glensi. „Það er auðvitað skemmtilegur bónus að hafa lent hér úti í þessari viku og redda bæði flottum jólafötum og jólagjöfum á þessum stóru afsláttum. Hvarvetna eru góðir dílar. Á Black Friday ná þeir svo hæstu hæðum og fara upp í 60 til 70 prósent. Allt að 600 dollara afsláttur gefinn af tölvum og símum, og þótt Apple gefi ekki mikinn afslátt af sínum vinsælustu vörum fylgir hverri seldri tölvu gjafakort upp á 200 dali, sem þá er hægt að nota aukalega eða gefa áfram.“ Guðrún segir Black Friday jafnframt vera í vexti á Bretlands- eyjum. „Í vikunni hefur rignt yfir mig tölvupóstum með Black Friday- tilboðum frá Selfridges, merkja- verslunum og stóru kringlunum þar í landi, en ef maður fer ofan í saumana á því að versla í Banda- ríkjunum eða heima á Englandi þá er breska gengið hærra en dollar- inn þessa dagana og því getum við gert enn glæsilegri kostakaup hér í Washington en ella,“ segir Guðrún um budduvæna ferð sem svo óvænt varð. „Við erum sérstaklega ánægðar með bandaríska verslunarhætti. Hér er ekkert mál að skila og allar búðir endurgreiða strax inn á kortið. Engar innleggsnótur eða krafa um að skipta í annað. Fólk er kurteist og vingjarnlegt á mann- inn, og þjónustan stimamjúk. Þá eru Bandaríkjamenn hægari en Íslendingar sem eru alltaf á sprett- inum og tempóið því afslappaðra. Það er sum sé meira stress í Bónus en á Black Friday hér í Bandaríkj- unum,“ segir Guðrún og hlær hin hressasta. „Við erum allar yfir okkur ánægðar með góð kaup og félags- skapurinn er auðvitað skemmti- legur og dýrmætur.“ n
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.