Fréttablaðið - 26.11.2021, Síða 46
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg
@frettabladid.is
SVARTUR
FÖSTUDAGUR
30%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
VÖRUM ALLA HELGINA
KÓÐI Í VEFVERSLUN:
SVARTUR
LINDESIGN.IS
Við erum
kannski
ekki alveg
til í mestu
geðveikina
sem maður
hefur séð
á netinu.
Fólk er
þegar farið
að hafa
áhyggjur
af tösku-
plássi í
hópnum
og það
stefnir
klárlega í
yfirvigt.
Barack Obama
með dætrum
sínum á Small
Business Sat-
urday; mótvægi
kaupmanna í
Washington til
hvatningar að
versla í minni
sniðum í stað
Black Friday og
Cyber Monday.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
4 kynningarblað 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURSvartur föStudagur
Guðrún Hauksdóttir, tölv-
unarfræðingur í Lundúnum,
er nú stödd mitt í hring-
iðu Black Friday-æðisins í
Bandaríkjunum.
„Við fórum reyndar ekki gagngert
vestur um haf til að gera góð kaup
á Black Friday heldur erum við
óvænt tveimur vikum seinna á ferð
en ráðgert var, því ein úr genginu
fékk Covid. Því erum við nú lentar
í miðri Black Friday-vikunni vestra
og sjálfur Black Friday er handan
við hornið með öllum sínum óvið-
jafnanlegu tilboðum,“ segir Guð-
rún Hauksdóttir, tölvunarfræð-
ingur hjá fjárfestingarbankanum
Goldman Sachs í Lundúnum.
Guðrún er stödd í höfuðborg
Bandaríkjanna, Washington DC,
ásamt móður sinni, systur og vin-
konu, í heimsókn hjá kærri æsku-
vinkonu þeirra, Agnesi Jóhannes-
dóttur, sem stundar doktorsnám
í tölvunarfræði við Háskólann í
Maryland.
„Þetta er svolítið einsleitt hjá
okkur stelpunum,“ segir Guðrún
og hlær. „Við höfum verið vin-
konur síðan við vorum pínulitlar
í Snælandsskóla og erum nú allar
tölvunarfræðingar, því Elín Rós
systir var að klára meistaranám
í tölvunarfræði frá Cambridge-
háskóla og er nú að leita sér vinnu í
Lundúnum“, segir Guðrún sem býr
þar í Dulwich-hverfinu.
Búnar að afgreiða jólagjafirnar
Heima hjá Agnesi í DC er ekki
þverfótað fyrir pökkum, pinklum
og pokum úr innkaupaferðum
vikunnar.
„Jú, fólk er farið að hafa áhyggjur
af töskuplássi í hópnum og búið að
versla mun meira en nauðsynlegt
er. Það stefnir klárlega í yfirvigt
því við erum á góðri leið með að
afgreiða jólagjafirnar. Það er líka
voða gott upp á það að koma heim
í aðventuna og geta notið töfra
hennar stresslaust og tilbúin í
jólin,“ segir Guðrún kát.
Hún segir Washington DC yndis-
lega borg heim að sækja, en sjálf
bjó hún þar fyrir sjö árum.
„DC er skemmtileg verslunar-
borg. Aðalverslunargatan er M
Street, afar kósí og snyrtileg með
flottar verslanir af öllu tagi. Þá eru
kringlurnar æðislegar. Þær standa
reyndar aðeins fyrir utan mið-
borgina en auðvelt að taka þangað
lest ef maður vill leggja smá á sig.
Allar borgir í Bandaríkjunum
eru ólíkar með sinn sjarma og
sérkenni, en hér ríkir ekki sama
brjálæðið og í New York þar sem
ég þekki líka vel til. Ég myndi því
Óvænt reyfarakaup og jólagleði í Washington dC
Kátar eftir
skemmtilega
verslunarferð í
Washington. Frá
vinstri: Laufey
Rut Guðmunds-
dóttir, Guðrún
Hauksdóttir,
Kristín Jónas-
dóttir og Elín
Rós Hauksdóttir
MYND/AGNEs
jóhANNEsDóTTIR
alltaf velja frekar að fara hingað
í verslunarferð, því Washington
hefur upp á svo margt fleira að
bjóða. Hér er ekki bara rólegt og
notalegt andrúmsloft heldur líka
lægri byggingar og minni traffík,
mikil menning og saga, spennandi
söfn, Hvíta húsið og forsetinn á
næsta leiti, sem er skemmtilegt, og
allt svo hreint og snyrtilegt.“
Fólk varast að snertast
Guðrún og föruneyti hennar í
Washington hafa gert reyfarakaup
á tilboðum Black Friday.
„Við erum til dæmis búnar að
fara í Banana Republic, Nike,
Under Armour og Express þar sem
eru æðislegir jólakjólar. Við fórum
líka í Ralph Lauren og gerðum þar
bestu kaupin, en það var lán í óláni
hjá versluninni. Ég var komin á
kassann með Ralph Lauren-stutt-
ermaboli sem áttu að vera á 25
prósenta afslætti en vegna villu í
afgreiðslukassanum datt ég inn á
75 prósenta afslátt. Afgreiðslumað-
urinn var í basli þar sem verðið
kom ekki rétt inn, því kassinn vildi
fyrst gefa 50 prósenta afslátt og í
ofanálag umrædd 25 prósent, en úr
því svona háttaði var ekki annað
í stöðunni en að selja mér bolina
með þessum mikla afslætti. Við
keyptum því boli sem áttu að kosta
68 dollara á 18 dali, sem eru án efa
langbestu Black Friday-kaupin til
þessa,“ segir Guðrún sátt og hress
með búðarápið.
Stemningin sé líka afslappaðri
en þær reiknuðu með í þessari
mestu verslunarviku ársins vestra.
„Í sjónvarpinu hefur maður séð
fólk hlaupa og ryðjast inn í búðir
á Black Friday, en við höfum ekki
orðið varar við neitt slíkt enn. Við
höfum þó lent í löngum röðum
snemma morguns og allt að hálf-
tíma langri bið á kassa. Hvort
sem það skrifast svo á Covid eða
annað er enginn æsingur í fólki né
troðningur. Allir virðast forðast
að snertast og það er örugglega
enginn að fara að olnboga mann
núna,“ segir Guðrún og skellir upp
úr.
„Hér ríkir bara skemmtilegt jóla-
stemning, gleði og tilhlökkun og
allir voða næs. Spurning hvernig
sjálfur svarti föstudagurinn
verður, en kannski tökum við því
rólegar þá. Við erum ekki alveg
til í mestu geðveikina sem maður
hefur séð á netinu og erum líka
orðnar frekar ánægðar með það
sem við höfum keypt nú þegar.“
Félagsskapurinn dýrmætastur
Gengið hennar Guðrúnar hefur
áður farið saman í borgar- og versl-
unarferðir.
„Eftir þessa búbót verður þetta
árlegt,“ segir hún í glensi. „Það er
auðvitað skemmtilegur bónus
að hafa lent hér úti í þessari viku
og redda bæði flottum jólafötum
og jólagjöfum á þessum stóru
afsláttum. Hvarvetna eru góðir
dílar. Á Black Friday ná þeir svo
hæstu hæðum og fara upp í 60
til 70 prósent. Allt að 600 dollara
afsláttur gefinn af tölvum og
símum, og þótt Apple gefi ekki
mikinn afslátt af sínum vinsælustu
vörum fylgir hverri seldri tölvu
gjafakort upp á 200 dali, sem þá
er hægt að nota aukalega eða gefa
áfram.“
Guðrún segir Black Friday
jafnframt vera í vexti á Bretlands-
eyjum.
„Í vikunni hefur rignt yfir mig
tölvupóstum með Black Friday-
tilboðum frá Selfridges, merkja-
verslunum og stóru kringlunum
þar í landi, en ef maður fer ofan í
saumana á því að versla í Banda-
ríkjunum eða heima á Englandi þá
er breska gengið hærra en dollar-
inn þessa dagana og því getum við
gert enn glæsilegri kostakaup hér í
Washington en ella,“ segir Guðrún
um budduvæna ferð sem svo
óvænt varð.
„Við erum sérstaklega ánægðar
með bandaríska verslunarhætti.
Hér er ekkert mál að skila og allar
búðir endurgreiða strax inn á
kortið. Engar innleggsnótur eða
krafa um að skipta í annað. Fólk er
kurteist og vingjarnlegt á mann-
inn, og þjónustan stimamjúk. Þá
eru Bandaríkjamenn hægari en
Íslendingar sem eru alltaf á sprett-
inum og tempóið því afslappaðra.
Það er sum sé meira stress í Bónus
en á Black Friday hér í Bandaríkj-
unum,“ segir Guðrún og hlær hin
hressasta.
„Við erum allar yfir okkur
ánægðar með góð kaup og félags-
skapurinn er auðvitað skemmti-
legur og dýrmætur.“ n