Fréttablaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 48
Eins og allir hafa
tekið eftir hefur
orðið gífurleg breyting á
öllu umhverfi í verslun á
undanförnum árum,
ekki síst nú allra síðustu
árin.
BLACK FRIDAY
TILBOÐ
20%
afsláttur!
Ný náttföt,
náttkjólar og
sloppar frá
LINGADORE
beint á BLACK
FRIDAY TILBOÐ.
20% afsláttur frá föstudegi og út mánudag í verslun og vefverslun með kóðanum: kósý
Náttsloppar: Verð: 13.300 kr.- TILBOÐ: 10.640 kr.- Náttserkur: verð: 10.800 kr.- TILBOÐ 8.640 kr.-
Náttföt: Verð: 13.800 kr.- TILBOÐ: 11.040 kr.- Náttkjólar: verð: 10.400 kr.- TILBOÐ 8.320 kr.-
Vefverslun
Selena.is
Selena undirfataverslun, Bláu húsunum við Faxafen, sími: 553 7355. - Vefverslun Selena.is
Það var á árunum 2016 og
2017 sem verslun hérlendis
tók Black Friday upp á sína
arma. Síðan þá hefur ekki
verið litið til baka, að sögn
Andrésar Magnússonar,
framkvæmdastjóra Samtaka
verslunar og þjónustu.
starrifreyr@frettabladid.is
Andrés Magnússon, framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjón-
ustu (SVÞ), man tímana tvenna í
íslenskri verslun og hefur fylgst
vel með þeim miklu breytingum
sem hafa átt sér stað í umhverfi
hennar hérlendis undanfarna
áratugi. Hann tók við embætti
framkvæmdastjóra SVÞ árið 2008
en hafði áður gegnt stöðu fram-
kvæmdastjóra Félags íslenskra
stórkaupmanna um nokkurt skeið.
Black Friday, og um leið stórir
verslunardagar á borð við Cyber
Monday og Singles’ Day, eru meðal
þeirra stóru nýjunga sem hann
hefur orðið vitni að. „Eins og allir
hafa tekið eftir hefur orðið gífurleg
breyting á á öllu umhverfi í verslun
á undanförnum árum, ekki síst
nú allra síðustu árin. Sú breyting
sem orðið hefur samhliða hinni
stafrænu byltingu sem er að verða
í verslun eins og öðrum atvinnu-
greinum er risastökk og heimsfar-
aldurinn hefur flýtt þeirri þróun
gífurlega. Breytingar sem áður var
búist við að gengju í gegn á fimm
árum, ganga nú í gegn á einu til
tveimur árum. Sjálfsafgreiðsla í
verslunum og öll öppin sem eru í
boði eru skýrasta dæmið um þetta.
Þróun í þessa átt mun tvímæla-
laust verða enn hraðari á komandi
árum.“
Ekki litið til baka
Þótt Black Friday hafi fyrir löngu
fest sig í sessi Bandaríkjunum eru
fáein ár síðan Íslendingar tóku upp
þennan sið, ásamt Cyber Monday
og Singles’ Day. „Það er ekki fyrr en
2016 og 2017 sem verslun hérlendis
tekur Black Friday upp á sína arma
ef svo má að orði komast og síðan
hefur ekki verið litið til baka.
Singles’ Day og Cyber Monday
komu aðeins seinna. Nú eru
þessir dagar allir orðnir einir allra
stærstu dagar í verslun hér á landi
og í fyrra var algert met slegið
hvað þetta varðar. Þá fór saman
verulegar samkomutakmarkanir
og þessir stóru dagar með sínum
freistandi tilboðum. Enda fór það
svo að 17 prósent af allri veltu í
smásölu í nóvember 2020 voru í
formi netverslunar, sem er hærra
hlutfall en nokkurn tíma hefur sést
hér á landi.“
Jólaverslun yfir lengra tímabil
Black Friday og aðrir fyrrnefndir
dagar hafa eðlilega haft mikil áhrif
á hegðun neytenda og þar með
verslun innanlands, segir Andrés.
„Þessir stóru verslunardagar hafa
haft meðal annars þau áhrif að hin
hefðbundna jólaverslun dreifist
yfir lengra tímabil, þar sem stór
hluti af innkaupum fólks fyrir jólin
fer fram á þessum dögum. Þá er ég
eindregið þeirrar skoðunar að hin
hagstæðu innkaup sem fólk getur
gert á þessum dögum hafi stórlega
dregið úr áhuga á verslunarferðum
til útlanda.“
Að sama skapi eru þessir stóru
verslunardagar orðnir fyrirferðar-
miklir í nágrannalöndunum og því
alls ekki um eitthvert séríslenskt
brjálæði að ræða. „Allir þessir
dagar eru mjög stórir í nágranna-
löndum okkar og leggja verslanir
og fyrirtæki almennt mikið upp úr
þeim eins og hér á landi.“
En ætlar Andrés sjálfur að nýta
sér spennandi tilboð næstu daga?
„Ég heyri ekki betur en að það séu
allir í fjölskyldunni mjög gíraðir
fyrir þessa stóru daga. Þannig að
það er aldrei að vita hvað ég geri.“ n
Stafræna byltingin er risastökk fram á við
Black Friday nýtur mikilla vinsælda víða um heim. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Andrés
Magnússon,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
verslunar og
þjónustu
6 kynningarblað 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURSvartur föStudagur