Fréttablaðið - 26.11.2021, Page 50

Fréttablaðið - 26.11.2021, Page 50
Fólk er almennt farið að læra að opna ekki viðhengi og hlekki í tölvupóstum frá ókunnugum en margir eru ekki jafn varir um sig þegar kemur að smá- skilaboðum. Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr @frettabladid.is Iðnvélar ehf | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | s: 414-2700 | sala@idnvelar.is | www.idnvelar.is SVARTUR FÖSTUDAGUR Spennandi tilboð í verslun Iðnvéla 22.-28. nóvember 2021 Í HEILA VIKU! STAFRÆNN MÁNUDAGUR TILBOÐ Í VEFVERSLUN IÐNVÉLA 29. NÓVEMBER 2021 Netöryggissérfræðingar hafa varað við því að svindl- arar reyni í síauknum mæli að nýta Black Friday til að svindla á neytendum. Það hefur orðið gríðarleg aukn- ing á þess háttar svindli og aðferðafræðin breytist hratt. Fleiri en eitt netöryggisfyrirtæki hefur sent út viðvörun vegna þess að ýmsum gerðum af svindli í tengslum við Black Friday hefur fjölgað hratt að undanförnu. Svindlararnir beina sjónum sínum að hinni hratt stækkandi netverslun og hafa fundið upp á nýjum ráðum til að fá fólk til að falla í gildrur sínar. Vilja fá fólk til að hringja í sig Samkvæmt skýrslu frá tölvu­ póstsöryggisfyrirtækinu Inky eru svindlarar næstum hættir að setja hættulega hlekki og viðhengi við tölvupóstana sína því öryggiskerfi eru orðin svo góð í að stoppa slíka pósta. Í staðinn eru þeir farnir að senda pósta þar sem þeir þykjast vera stórar netverslanir eða greiðsluforrit. Íslendingar kannast líklega margir við svipað svindl, en hér hafa svindlarar sent pósta sem er reynt að láta líta út fyrir að vera frá Póstinum. Inky segir að þessir tölvupóstar líkist pöntunarstaðfestingu frá netverslun og séu skaðlausir þegar þeir eru opnaðir en þeir innihaldi símanúmer sem fólki er ráðlagt að hringja í ef það telur að því hafi verið send staðfestingin fyrir mis­ tök. Svindlararnir vonast til þess að fólk sem fær póst um að það hafi keypt vörur sem það kannast ekkert við lítist illa á og gruni jafn­ vel að einhver hafi verið að kaupa vörur í þeirra nafni og flýti sér því að hafa samband. Ef fólk gerir það svarar svindlari sem reynir að fá það til að gefa upp greiðslukorta­ upplýsingar og aðrar viðkvæmar upplýsingar. Inky segist hafa séð gríðarlega aukningu á svona póstum á síðustu mánuðum og að fjöldinn hafi Varist svindl í kringum Black Friday Það borgar sig að fara varlega í netverslun og treysta ekki óvæntum skila- boðum í blindni, því þau gætu verið frá aðilum sem sigla undir fölsku flaggi. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Svindlarar reyna ýmis ráð til að veiða fólk í gildrur sínar. Þeir falsa meðal annars tölvupósta, smáskilaboð og vefsíður til að reyna að gabba fólk. Svindlarar hafa sent skilaboð sem eru látin líta út fyrir að vera frá vinsælum netverslunum til að plata fólk til að senda þeim viðkvæmar upplýsingar. aukist eftir því sem Black Friday og Cyber Monday færast nær. Til að forðast að verða fyrir svona svindli mælir Inky með því að skoða netfangið og textann í póstinum vandlega, ef fólk fær tölvupóst af þessu tagi, til að reyna að átta sig á hvort hann sé raunverulegur. Það er líka sniðugt að fara á síðu net­ verslunarinnar í tölvunni og athuga hvort pantanirnar sjáist þar. Mikið af fölsuðum síðum Annað netöryggisfyrirtæki, Kaspersky, hefur varað við því að það sé mikið af fölsuðum síðum sem taka við greiðslum yfir netið og fjöldi þeirra hafi meira en tvöfaldast milli september og október á þessu ári. Oftast reyna þessar síður að líkja eftir vefjum vinsælla vefverslana eins og Ama­ zon, eBay eða Alibaba. Kaspersky segir að Black Friday leiki lykil­ hlutverk í þessari skyndilegu aukningu á svona svindli og að það hafi orðið mikil aukning í fjöldapóstum sem innihalda orðin „Black Friday“ síðustu vikur. Það er ýmislegt sem Kaspersky mælir með að fólki geri til að tryggja öryggi sitt þegar það versl­ ar á netinu. Eitt gott ráð er að opna aldrei viðhengi eða hlekki í tölvu­ póstum frá bönkum, greiðslufor­ ritum eða netverslunum, sérstak­ lega ef sendandinn leggur mikla áherslu á að það sé gert. Neytendur ættu líka alltaf að skoða vel slóðina og athuga hvort nöfn fyrirtækjanna séu örugglega skrifuð hárrétt, auk þess sem þeir ættu alltaf að skoða umsagnir um vefverslanir og tryggja að þær séu öruggar áður en viðkvæmar upp­ lýsingar eru slegnar þar inn. Svindl SMS eru vinsæl ný aðferð Fjöldi sviksamlegra smáskila­ boða hefur næstum tvöfaldast frá því í fyrra því að svindlarar leggja svo mikinn kraft í að reyna að svindla á þeim sem ætla að versla á Black Friday og Cyber Monday. Samkvæmt netöryggis­ fyrirtækinu Proofpoint eru meira en tvenn af hverjum þrennum smáskilaboðum sem eru send um allan heim á einhvern hátt tengd pöntunum eða vörumerkjum. Þar sem neytendur hafa vanist því að eiga samskipti við fyrir­ tæki í gegnum textaskilaboð hafa svindlarar verið að senda skilaboð þar sem þeir þykjast vera vin­ sælar verslanir eða póstburðar­ fyrirtæki og plata fólk til að senda þeim viðkvæmar upplýsingar eða smella á hlekki inn á síður sem eru hannaðar til að stela slíkum upplýsingum. Fólk er almennt farið að læra að opna ekki viðhengi og hlekki í tölvupóstum frá ókunnugum en margir eru ekki jafn varir um sig þegar kemur að smáskilaboðum. Samkvæmt Proofpoint eru 98% smáskilaboða opnuð og 90% við­ takenda opna þau innan þriggja mínútna. Það er líka átta sinnum algengara að fólk smelli á hlekki í smáskilaboðum en tölvupóstum. Til að forðast að falla fyrir svona svikum bendir Proofpoint fólki á að fara varlega ef óvænt skilaboð, tilkynningar um sendingar eða tilboð berast. Það ætti líka að fara varlega í að dreifa númerinu sínu og varast að opna hlekki í smá­ skilaboðum beint. Það er betra að afrita þá og opna þá í vafra í tölvu, þar sem almennt eru betri varnar­ kerfi til staðar. Það þarf líka að fara mjög varlega í að hlaða niður nýjum hugbúnaði fyrir snjallsíma og ganga úr skugga um að hann sé alltaf frá traustum aðila. ■ 8 kynningarblað 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURSVartur FöStudagur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.