Fréttablaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 50
Fólk er almennt
farið að læra að
opna ekki viðhengi og
hlekki í tölvupóstum frá
ókunnugum en margir
eru ekki jafn varir um sig
þegar kemur að smá-
skilaboðum.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr
@frettabladid.is
Iðnvélar ehf | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | s: 414-2700 | sala@idnvelar.is | www.idnvelar.is
SVARTUR FÖSTUDAGUR
Spennandi tilboð í verslun Iðnvéla 22.-28. nóvember 2021
Í HEILA VIKU!
STAFRÆNN MÁNUDAGUR
TILBOÐ Í VEFVERSLUN IÐNVÉLA
29. NÓVEMBER 2021
Netöryggissérfræðingar
hafa varað við því að svindl-
arar reyni í síauknum mæli
að nýta Black Friday til að
svindla á neytendum. Það
hefur orðið gríðarleg aukn-
ing á þess háttar svindli og
aðferðafræðin breytist hratt.
Fleiri en eitt netöryggisfyrirtæki
hefur sent út viðvörun vegna þess
að ýmsum gerðum af svindli í
tengslum við Black Friday hefur
fjölgað hratt að undanförnu.
Svindlararnir beina sjónum
sínum að hinni hratt stækkandi
netverslun og hafa fundið upp á
nýjum ráðum til að fá fólk til að
falla í gildrur sínar.
Vilja fá fólk til að hringja í sig
Samkvæmt skýrslu frá tölvu
póstsöryggisfyrirtækinu Inky eru
svindlarar næstum hættir að setja
hættulega hlekki og viðhengi við
tölvupóstana sína því öryggiskerfi
eru orðin svo góð í að stoppa slíka
pósta. Í staðinn eru þeir farnir að
senda pósta þar sem þeir þykjast
vera stórar netverslanir eða
greiðsluforrit. Íslendingar kannast
líklega margir við svipað svindl, en
hér hafa svindlarar sent pósta sem
er reynt að láta líta út fyrir að vera
frá Póstinum.
Inky segir að þessir tölvupóstar
líkist pöntunarstaðfestingu frá
netverslun og séu skaðlausir þegar
þeir eru opnaðir en þeir innihaldi
símanúmer sem fólki er ráðlagt að
hringja í ef það telur að því hafi
verið send staðfestingin fyrir mis
tök. Svindlararnir vonast til þess
að fólk sem fær póst um að það
hafi keypt vörur sem það kannast
ekkert við lítist illa á og gruni jafn
vel að einhver hafi verið að kaupa
vörur í þeirra nafni og flýti sér því
að hafa samband. Ef fólk gerir það
svarar svindlari sem reynir að fá
það til að gefa upp greiðslukorta
upplýsingar og aðrar viðkvæmar
upplýsingar.
Inky segist hafa séð gríðarlega
aukningu á svona póstum á síðustu
mánuðum og að fjöldinn hafi
Varist svindl í kringum Black Friday
Það borgar sig
að fara varlega
í netverslun
og treysta ekki
óvæntum skila-
boðum í blindni,
því þau gætu
verið frá aðilum
sem sigla undir
fölsku flaggi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Svindlarar reyna ýmis ráð til að veiða fólk í gildrur sínar. Þeir falsa meðal
annars tölvupósta, smáskilaboð og vefsíður til að reyna að gabba fólk.
Svindlarar hafa sent skilaboð sem eru látin líta út fyrir að vera frá vinsælum
netverslunum til að plata fólk til að senda þeim viðkvæmar upplýsingar.
aukist eftir því sem Black Friday og
Cyber Monday færast nær. Til að
forðast að verða fyrir svona svindli
mælir Inky með því að skoða
netfangið og textann í póstinum
vandlega, ef fólk fær tölvupóst af
þessu tagi, til að reyna að átta sig á
hvort hann sé raunverulegur. Það
er líka sniðugt að fara á síðu net
verslunarinnar í tölvunni og athuga
hvort pantanirnar sjáist þar.
Mikið af fölsuðum síðum
Annað netöryggisfyrirtæki,
Kaspersky, hefur varað við því að
það sé mikið af fölsuðum síðum
sem taka við greiðslum yfir netið
og fjöldi þeirra hafi meira en
tvöfaldast milli september og
október á þessu ári. Oftast reyna
þessar síður að líkja eftir vefjum
vinsælla vefverslana eins og Ama
zon, eBay eða Alibaba. Kaspersky
segir að Black Friday leiki lykil
hlutverk í þessari skyndilegu
aukningu á svona svindli og að
það hafi orðið mikil aukning
í fjöldapóstum sem innihalda
orðin „Black Friday“ síðustu vikur.
Það er ýmislegt sem Kaspersky
mælir með að fólki geri til að
tryggja öryggi sitt þegar það versl
ar á netinu. Eitt gott ráð er að opna
aldrei viðhengi eða hlekki í tölvu
póstum frá bönkum, greiðslufor
ritum eða netverslunum, sérstak
lega ef sendandinn leggur mikla
áherslu á að það sé gert.
Neytendur ættu líka alltaf að
skoða vel slóðina og athuga hvort
nöfn fyrirtækjanna séu örugglega
skrifuð hárrétt, auk þess sem þeir
ættu alltaf að skoða umsagnir um
vefverslanir og tryggja að þær séu
öruggar áður en viðkvæmar upp
lýsingar eru slegnar þar inn.
Svindl SMS eru vinsæl ný aðferð
Fjöldi sviksamlegra smáskila
boða hefur næstum tvöfaldast
frá því í fyrra því að svindlarar
leggja svo mikinn kraft í að reyna
að svindla á þeim sem ætla að
versla á Black Friday og Cyber
Monday. Samkvæmt netöryggis
fyrirtækinu Proofpoint eru meira
en tvenn af hverjum þrennum
smáskilaboðum sem eru send um
allan heim á einhvern hátt tengd
pöntunum eða vörumerkjum.
Þar sem neytendur hafa vanist
því að eiga samskipti við fyrir
tæki í gegnum textaskilaboð hafa
svindlarar verið að senda skilaboð
þar sem þeir þykjast vera vin
sælar verslanir eða póstburðar
fyrirtæki og plata fólk til að senda
þeim viðkvæmar upplýsingar eða
smella á hlekki inn á síður sem
eru hannaðar til að stela slíkum
upplýsingum.
Fólk er almennt farið að læra
að opna ekki viðhengi og hlekki í
tölvupóstum frá ókunnugum en
margir eru ekki jafn varir um sig
þegar kemur að smáskilaboðum.
Samkvæmt Proofpoint eru 98%
smáskilaboða opnuð og 90% við
takenda opna þau innan þriggja
mínútna. Það er líka átta sinnum
algengara að fólk smelli á hlekki í
smáskilaboðum en tölvupóstum.
Til að forðast að falla fyrir svona
svikum bendir Proofpoint fólki á
að fara varlega ef óvænt skilaboð,
tilkynningar um sendingar eða
tilboð berast. Það ætti líka að fara
varlega í að dreifa númerinu sínu
og varast að opna hlekki í smá
skilaboðum beint. Það er betra að
afrita þá og opna þá í vafra í tölvu,
þar sem almennt eru betri varnar
kerfi til staðar. Það þarf líka að
fara mjög varlega í að hlaða niður
nýjum hugbúnaði fyrir snjallsíma
og ganga úr skugga um að hann sé
alltaf frá traustum aðila. ■
8 kynningarblað 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURSVartur FöStudagur