Fréttablaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 54
Um 90 prósent eru
seld úr landi,
meðal annars vegna þess
að meira safnast upp af
fötum en hægt er að
selja. Mikið af þeim
fatnaði sem seldur er í
verslunum með notuð
föt er ónotaður.
Norskur kjólarisi hefur
ákveðið að sleppa öllum
Black Friday-tilboðum en
gefur þess í stað nokkur
hundruð flíkur til Fretex,
deildar innan norska Hjálp-
ræðishersins sem rekur
verslanir með notuð föt.
elin@frettabladid.is
Norska fatamerkið byTimo er mjög
vel þekkt í heimalandinu. Í Noregi
eins og í öðrum löndum er Black
Friday farinn að festa sig í sessi
sem risastór söludagur. Talið er að
Norðmenn muni eyða sem svarar
16,5 milljörðum norskra króna í
verslunum meðan á tilboðstím-
anum stendur, að því er greint er
frá á e24, viðskiptasíðum norska
miðilsins VG.
ByTimo var stofnað árið 2004 af
Tine Mollatt. Fyrirtækið er með
verslanir í Noregi, London og í
Bandaríkjunum. Fatnaður ByTimo
er seldur í meira en 200 verslunum
víða um heim.
ByTimo hefur ákveðið að taka
ekki þátt í Black Friday að þessu
sinni heldur gefa föt sem annars
hefðu farið á útsölu til Fretex.
„Við hefðum getað valið að vera
með tilboðsdag en viljum frekar
stuðla að einhverju jákvæðu sem
felst í því að gefa þeim sem á þurfa
að halda,“ segir markaðsstjóri
ByTimo, Elisa Mollatti, í samtali
við e24.
Textílfræðingurinn Ingun
Grimstad Klepp er ekki hrifin af
þessu framtaki og bendir á að á
hverjum einasta degi fái Fretex
50 tonn af vefnaðarvöru. „Um 90
prósent eru seld úr landi, meðal
annars vegna þess að meira safnast
upp af fötum en hægt er að selja.
Mikið af þeim fatnaði sem seldur
er í verslunum með notuð föt er
ónotaður. Framleiðslan er miklu
meiri en eftirspurnin. Það þarf
að draga úr framleiðslu og sölu á
fatnaði. Sömuleiðis ætti fólk að
kaupa minna af fötum og framleið-
endur ættu að sjá til þess að auð-
velt sé að fá lagfæringar á fatnaði sé
þörf á því,“ bendir hún á.
Birgitte Glette, sem er yfirmaður
hjá Fretex í Osló, er hins vegar
himinlifandi að fá ónotuð föt frá
ByTimo en alls hefur fatamerkið
gefið 350 flíkur. „Þetta eru tekjur
fyrir starf Hjálpræðishersins.
Ég vona að fólk velji fremur að
styðja okkur en stuðla að frekari
ofneyslu,“ segir hún.
Markaðsstjóri ByTimo segir
að fyrirtækið sé á móti ofneyslu
og þeim söluþrýstingi sem fylgir
Black Friday. Hún segir fyrirtækið
ekki standa fyrir ofneyslu heldur
selji það að mestu framleiðsluna.
„Við framleiðum eftir pöntunum
frá verslunum og eftirspurn. Eins
og í öllum atvinnugreinum verða
alltaf einhver afföll sem lítið er við
að gera.“
Hinn þekkti norski útivistar-
fataframleiðandi, Bergans, hvetur
til sjálfbærni og að fólk láti gera
við eldri flíkur á Black Friday. Þeir
gefa góðan afslátt í dag á við-
gerðum á fatnaði þeirra. „Þetta
snýst um að fólk fari yfir þær flíkur
sem það á í skápunum og athugi
hvort þær þarfnist viðgerðar. Við
seljum vörur sem eiga að endast
lengi og auðvelt er að lagfæra ef
þess þarf,“ segir samskiptastjóri
fyrirtækisins. Bergans hefur boðið
viðgerðir á eigin vörum í 100 ár.
Í fyrra á þessum degi fengu þeir
norskan tískuskóla, Esmod, til að
hefja söfnun á textílafgöngum til
að vinna með.“ ■
Engir afslættir en gefa fötin
Norskur kjólarisi
gefur fatnað til
Hjálpræðishers-
ins í stað þess
að veita Black
Friday-tilboð.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Staðreyndir
■ Um allan heim er vörubíls-
farmur af fatnaði brenndur á
hverri sekúndu.
■ Fataiðnaðurinn stendur fyrir
um 10 prósentum af heildar-
kolefnislosun heimsins. Það
er meira en flugvélar og skip
samanlagt.
■ Losun frá fataiðnaði mun
aukast um 50 prósent árið
2030, ef ekki verður gripið til
róttækra aðgerða.
23 - 29 NÓV
ALLT AÐ
60% AFSLÁTTUR
JÖFURSBÁSI 4, 112 RVK
S: 566-6666
12 kynningarblað 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURsvartur föstudagur