Fréttablaðið - 26.11.2021, Qupperneq 56
Í desem-
ber ætlum
við að
skiptast á
að sýna frá
skemmti-
legum og
nærandi
samveru-
stundum.
Elín
Albertsdóttir
elin
@frettabladid.is
Leiksamfélagið á Insta-
gram samanstendur af hópi
mæðra sem hafa brennandi
áhuga á samveru fjölskyld-
unnar ásamt leik og námi
barna. Fjölmargir fylgja
Leiksamfélaginu og hópur-
inn stækkar ört.
Það er margt skemmtilegt að gerast
á samfélagsmiðlum þegar eftir því
er leitað. Níu mæður hafa til dæmis
sett upp leiksamfélag fyrir foreldra
þar sem þeir fá ýmsar hugmyndir
um skemmtilegar samverustundir.
„Við leggjum okkur fram við að
koma með einfaldar hugmyndir
og nýta efnivið sem flestir eiga nú
þegar,“ segir Hlín Magnúsdóttir
Njarðvík sem er ein af aðstandend-
um Leiksamfélagsins. Hún segir að
það hafi verið Pálína Ósk Hraundal
sem fyrst hafi komið með hug-
myndina. „Pálína spurði hvort við
værum tilbúnar að gera eitthvað
skemmtilegt saman á Instagram
til að sýna frá okkar daglega lífi.
Við erum allar með Instagram-
reikning og nýtum hann einmitt
til fræðslu og að vera upplýsandi,“
segir Hlín.
„Verkefnið byrjaði sem þema-
vikur þar sem við settum fram
eitthvert ákveðið viðfangsefni.
Við gerðum slíkan þemamánuði
tvisvar sinnum og fundum allar
að okkur langaði í meira, það er
ótrúlegur kraftur í þessum hópi og
við ákváðum því að skella okkur út
í Leiksamfélagið af fullum krafti.
Við erum níu mæður og búum
vítt og breitt um heiminn. Okkar
helsta áhersla er nærandi sam-
vera með börnum, í hvaða formi
sem hún getur verið. Útivera, nám,
leikur, málörvun, náttúran, föndur
og bakstur. Okkur langar að veita
öðrum innblástur – hver á sinn
hátt,“ upplýsir hún.
Fyrir jólin ætla þær að vera með
jóladagatal sem byrjar 1. desem-
ber. „Á hverjum degi í desember
ætlum við að skiptast á að sýna
frá skemmtilegum og nærandi
samverustundum í aðdraganda
jólanna. Þar sem við erum allar
Veita foreldrum innblástur í uppeldinu
Krökkum finnst skemmtilegt að
fleyta steinum.
Það má alltaf drullumalla.
Ratleikur
finnst flestum
skemmtilegur.
Jólaföndur með fjölskyldunni.
Samvera úti í náttúrunni.
Að lita mynd, til dæmis handa
ömmu og afa, er alltaf gaman.
Hlín Magnús-
dóttir Njarðvík
er ein þeirra
mæðra sem
standa á bak við
Leiksamfélagið
á Instagram.
MYNDIR/AÐSENDAR
ólíkar þá fá fylgjendur gott tæki-
færi til að skyggnast inn í daglegt
líf, kynnast okkur enn betur og
vonandi fá góðar hugmyndir. Við
erum með tæplega 1.800 fylgj-
endur og vonumst til að þeim fjölgi
á næstunni,“ segir Hlín og bætir við
að aðgangurinn sé ókeypis, verk-
efnið sé hugsjón hjá þeim öllum.
„Það er auðvitað nokkur vinna
á bak við þetta en við spáum
ekki mikið í það. Við erum allar
metnaðarfullar og viljum vanda til
verka. Þetta er gríðarlega skemmti-
leg vinna sem gefur okkur mikið.
Okkar draumsýn er í raun að
hafa jákvæð áhrif á fjölskyldu og
barnasamfélagið, veita innblástur
og vera hvetjandi. Við höfum
fengið góða gesti með okkur í lið á
Insta gram og vonandi heldur sam-
félagið áfram að vaxa og dafna.“ ■
Hverjir standa á bak við verkefnið?
■ Hlín Magnúsdóttir – málþroski, nám og að læra
í gegnum leikinn
■ Pálína Ósk Hraundal – fjölskyldustundir og
útivist
■ Alma Rut Ásgeirsdóttir – fjölskyldustundir,
föndur og leikur
■ Sigrún Yrja Klörudóttir – leikur barna
■ Sólveig María Svavarsdóttir – heimakennsla og
hæglæti
■ Guðný Valborg Guðmundsdóttir – hæglæti,
sjálfbærni og náttúran
■ Sabína Steinunn Halldórsdóttir – hreyfifærni í
náttúrunni
■ Hrefna Pálsdóttir – föndur, skynjun og útivera.
■ Halldóra Kristín Bjarnadóttir – fjölskyldu-
stundir, útivera, föndur og bakstur.
14 kynningarblað 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURSVartur föStudagur