Fréttablaðið - 26.11.2021, Síða 58
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Jómfrúin fagnar 25 ára
afmæli í ár og í tilefni þess
ákvað Jakob Einar Jakobs-
son, eigandi og veitingamað-
ur, að gefa út bók um sögu
staðarins og svipta hulunni
af nokkrum vinsælustu rétt-
unum í gegnum árin.
„Jómfrúin á hug minn allan núna
eins og oftast nær. Jólin byrjuðu
hjá okkur fimmtudaginn 11. nóv
ember síðastliðinn og það er alltaf
töluverð en skemmtileg vinna í
kringum undirbúning jólamat
seðils,“ segir Jakob sem heldur
mikið upp á þennan árstíma í
veitingarekstrinum.
„Ákvörðun um bókina var
tekin í hálfgerðu bríaríi á Jóm
frúnni 23. desember í fyrra þegar
vinkonur okkar í Sölku bóka
útgáfu voru hjá okkur einu sinni
sem oftar. Hugmyndin um bók
hefur oft verið rædd en þarna
færðist ákafi í okkur, svo mikill
að þær stöllur Dögg og Anna Lea
skottuðust á skrifstofuna og náðu í
útgáfusamning. Góðir hlutir gerast
hratt og við krotuðum undir strax.
Þær héldu svo svipunni að mér og
höfðu í kurteislegum hótunum
við mig, Óla bróður og Ómar kokk
ef við vorum eitthvað að flaska á
skilafrestum eða að skæla undan
álagi.“
Sagan um tilurð Jómfrúarinnar
Jakob heldur sérstaklega upp á
einn kafla bókarinnar. „Sagan um
tilurð Jómfrúarinnar. Ég er svo
stoltur af pöbbum mínum að hafa
fengið svona frábæra hugmynd
árið 1996, fóstrað hana svo vel og
undirbyggt og að lokum fram
kvæmt. Þetta er eiginlega hin
fullkomna saga af mönnum sem
elta draumana sína og gefast aldrei
upp.“
Hvernig er að gefa út bók á
aðvent unni og vera með í jólabóka-
f lóðinu?
„Spennandi, maður er aðeins að
læra inn á nýjan bransa. Bókin er
fremur tímalaus og getur vonandi
átt langan líftíma, alveg eins og
Jómfrúin sjálf.“
Jakob segist ekki hafa lært smur
brauðsgerðina líkt og faðir hans
gerði, enda sé hans svið í raun
meira viðskiptalega eðlis. „Því
miður lærði ég ekki smurbrauðs
gerðina líkt og faðir minn gerði,
mitt svið liggur meira þegar kemur
að viðskiptum. Ég er bara einhver
viðskiptatútta eins og annar hver
maður á þessu skeri. En ég hef
ótrúlega gaman af þessu og sem
betur fer gengur Jómfrúin nógu
vel til þess að maður geti haft mun
Fullkomin saga af mönnum sem elta drauma sína
Jómfrúin er 25 ára á þessu ári. Mig langaði að sýna henni tilhlýðilega virðingu, segir Jakob Einar Jakobsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Glæsilegur
jólaplatti á Jóm-
frúnni sem
er alltaf mjög
vinsæll á að-
ventunni.
hæfara fólk en mig sjálfan í helstu
stöðum. Sjálfur er ég þó ágætur í að
hafa yfirsýnina, móta stefnuna og
fylgja málum eftir, auk þess sem ég
hleyp eins og hýena á vaktinni. Of
mikið segja sumir nákomnir mér.
Ég er lélegur hlustandi.“
Mikið jólabarn
Jakob segist vera mikið jólabarn
og elska jólin enn meira eftir að
hann varð faðir. „Ég datt aðeins úr
stuði á tímabili en þegar maður á
börn, ég á eina níu ára og aðra sem
verður hálfs árs þegar jólin koma,
þá er svo gaman að fá að upplifa jól
barnanna, alla eftirvæntinguna,
spennuna sem og spennufallið og
þakklætið.
Jólin eru þó ekki full af jóla
boðum og lítið um fastar hefðir
hjá fjölskyldunni. Vinnan tekur
sinn toll á aðventunni. Eftir lokun
á Jómfrúnni á Þorláksmessukvöld
er alltaf smá gill og vinaknús hjá
okkur staffinu, aðfangadagur fer
oftast í að undirbúa jólamatinn
og jóladagur í spil og bókalestur –
svo er „back to work“ á annan dag
jóla.“
Jakob segir að hann og heitkona
hans haldi ekki mikið í hefðir og
siði í tengslum við jólin. „Hangi
kjöt á jóladag er eina fasta hefðin.
Við höfum stundum farið til Jafa
og Gafa (afi Jakob og afi Guðmund
ur) í sveitina til þeirra í Ölfusi, en
annars erum við bara heima hjá
okkur að njóta.
Bræður mínir hafa oftast
verið í mat hjá okkur hjónaleys
unum á aðfangadagskvöld og við
höfum opnað pakkana saman,
en stundum fara þeir vestur í
Önundarfjörð á uppeldisstað
okkar Jómfrúarbræðranna þar
sem foreldrar okkar búa. Það er
alger sælureitur og ljúft að njóta.
En keyrslan er löng þangað eftir
atganginn á Jómfrúnni.“
Hluti af forréttinum
á aðfangadagskvöld
Eru þið mikið með danskt smur-
brauð þegar heim kemur?
„Stutta svarið er nei, en stundum
slysast hráefni frá Jómfrúnni með
heim og er hluti af forréttinum á
aðfangadagskvöld.“
Áttu þér þínar uppáhalds jóla-
smákökur eða -konfekt?
„Ég elska sörurnar sem heit
kona mín, Sólveig, gerir. Þær hafa
aldrei klikkað. Svo er konfektið
frá norsku Freyju sem heitir Kong
Olav besta súkkulaðið sem til er.
Það er svo royal að borða norskt
konfekt um jólin.
Ég get ekki sagt að jólin snúist
um mat og bakstur á mínu heimili.
Við hjónaleysin skiptum með
okkur verkum, eldri dóttir mín
er rosalegur föndrari og elskar að
skreyta fyrir jólin og ég reyni að
taka það með henni. Sólveig sér svo
um baksturinn, við erum kannski
að vinna með þrjár, fjórar sortir, og
það dugar vel.“ n
16 kynningarblað 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURSvartur FöStudagur
Tilboðin gilda til miðnættis 29. nóvember | Pantanir eru sóttar á lagerinn okkar ef ekki er óskað eftir heimsendingu
Yfir 150 vörur á allt að 50% afslætti
vefsala@vv.is | Skútuvogi 1c
Meðal annars: FROST Wishbone fatastandar, DCW lampar, MasterLock
lyklabox, Hazet verkfæravagnar, Stabila laser, Smedbo baðherbergisvörur,
d line baðherbergisvörur og hurðarhandföng, FROST Herðatré, Fenix vasa-
og höfuðljós, Anglepoise lampar, Yale verðmætaskápar og margt fleira.
honnunarlausnir.is
lykillausnir.is
verkfaeralausnir.is
Skoðaðu vefverslanir okkar og gerðu góð kaup!
frettabladid_blackfriday_vv.indd 1 11/24/2021 3:24:26 PM