Fréttablaðið - 26.11.2021, Síða 60
„Buy Nothing Day“, eða
kauplausi dagurinn, er
alþjóðlegur hátíðisdagur
stofnaður til að andmæla
neyslumenningunni.
jme@frettabladid.is
Listamaðurinn Ted Dave, frá
Vancouver, er maðurinn á bak við
kauplausa daginn.
Fyrsti kauplausi dagurinn var
skipulagður í Kanada í septem-
ber 1992. Var markmiðið að fá
fólk til að íhuga ofneysluvandann
sem hrjáir nútímasamfélagið á
háu stigi. Fimm árum síðar var
dagurinn færður á föstudaginn
eftir þakkargjörðarhátíðina í
Bandaríkjunum, sem kallast öðru
nafni svartur föstudagur og er einn
stærsti verslunardagur í heimi.
Kauplausi dagurinn er auglýstur
árlega af kanadíska Adbusters-
fyrirtækinu. Árið 2000 gerðist það
að auglýsingar Adbusters fyrir
kauplausa daginn voru bannaðar
á öllum helstu sjónvarpsstöðvum
Bandaríkjanna fyrir utan sjón-
varpsstöðina CNN.
Kauplausar hefðir
Á kauplausa deginum hittist
fólk og mótmælir neyslumenn-
ingu samtímans með ýmsum
skapandi leiðum. Meðal annars er
„kreditkortaklippið“ vinsæll við-
burður. Þar stendur fólk fyrir utan
verslunarmiðstöðvar með skæri
og skilti sem auglýsir hjálp handa
fólki sem vill binda enda á skulda-
halann. Þá er fólki boðið að láta
bókstaflega klippa kreditkortið
sitt með skærum.
Önnur vinsæl mótmælaaðferð
er að hópur mótmælenda ráfi um
tómeygður fyrir utan verslunar-
miðstöðvar líkt og uppvakningar.
Þegar fólk forvitnast um hvað um
sé að vera, þá tekur einn sig til og
útskýrir kauplausa daginn og boð-
skap hans.
Kauplaus jakkaskipti er sérstök
mótmælahefð í Bandaríkjunum
þar sem jökkum er safnað í nóvem-
ber frá hverjum þeim sem vilja
gefa þá í söfnunina. Jökkunum
er dreift á ýmsa staði í hverju ríki
fyrir sig. Föstudaginn eftir þakkar-
gjörðina, kemur fólk saman og í
stað þess að munda kreditkortin á
svörtum föstudegi býður það fram
krafta sína við að útdeila jökkum.
Þá er fólki boðið að skipta út
sínum eigin jakka fyrir annan, eða
einfaldlega næla sér í frían jakka
úr söfnuninni. Jakkasöfnunin á
uppruna sinn í Providence á Rhode
Island og álíka jakkaskiptahefðir
hafa myndast í Kentucky, Utah og
í Oregon.
Önnur hefð sem hefur myndast
í kringum þennan dag er að fólk
fagnar deginum með því að fara í
gönguferð í náttúrunni í stað þess
að kaupa sér hluti á afslætti.
Kaupum ekkert á Íslandi
Á Íslandi var Kaupum ekkert-
dagurinn fyrst haldinn þann 24.
nóvember árið 2000, en þá var það
hópur af listamönnum sem tók sig
saman og skipulagði dagskrá fyrir
daginn í Reykjavík.
Árið 2006 hvatti Landvernd
Íslendinga til þess að taka þátt í
Kaupum ekkert-deginum með því
að kaupa ekkert á síðasta laugar-
degi nóvembermánaðar það ár,
þann 25. nóvember. Þá segir í
auglýsingunni: „Á þessu ári, árinu
2006, hefur umræða um gróður-
húsaáhrif og hlýnun jarðar náð
mikilli útbreiðslu og náð eyrum
bæði fjölmiðla, stjórnmálamanna
og alls þorra manna. Kaupum
ekkert-dagurinn er tilvalin leið til
að undirstrika og benda á raun-
verulegar lausnir á vandanum
sem hefur skapast einmitt vegna
óhóflegrar neyslu.“ Landvernd
minnti þá enn fremur á mikilvægi
vistvæns jólahalds og óefnislegra
jólagjafa.
Kauplaus jól
Í stíl við kauplausa daginn er nú
þegar til fyrirbæri sem kallast
kauplaus jól, eða Buy Nothing
Christmas. Kauplausa jólahefðin
hófst óformlega þegar Ellie Clark
og fjölskylda hennar ákváðu árið
1968 að afneita jólahátíðinni
opinberlega. Kauplaus jól urðu að
opinberu fyrirbæri árið 2001 þegar
lítill hópur kanadískra mennóníta
bjó til vefsíðu og gaf hreyfingunni
nafnið. Adbusters-fyrirtækið hefur
í nútímanum unnið að því að
yfirfæra kauplausa daginn á alla
jólahátíðina og hefur endurnefnt
aðgerðina Occupy Xmas. ■
Kauplausi dagurinn
Ert þú tómhuga uppvakningur í
mollinu? Fréttablaðið/Getty
Það eru líklega ekki allir jafnhamingjusamir og þetta myndarlega par þegar
þeir klippa á kreditkortið til að binda enda á skuldahalann. Fréttablaðið/Getty
BLACK FRIDAY
20%
AF ÖLLU
EINUNGIS Í VERSLUN 11:00 - 18:00
18 kynningarblað 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURsvartur föstudagur