Fréttablaðið - 26.11.2021, Side 74
Þetta er sýning sem
kemur sérstaklega til
móts við þá sem eru
feimnir við samtíma-
list eða vita ekki hvað
hún er, sem og til
byrjenda og ungs fólks.
Það er mjög
gaman að skoða
þessa sýningu,
segir Áslaug.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Þetta verk
samanstendur
af fötum Stein-
gríms J. Sigfús-
sonar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Sýningin Abrakadabra –
Töfrar samtímalistar, stendur
yfir í Hafnarhúsinu. Hún er
ætluð ungu fólki og öllum
þeim sem vilja upplifa og
kynnast samtímalist.
kolbrunb@frettabladid.is
Verkin eru öll nýleg úr safneigninni
og eru eftir 30 listamenn. Heiti sýn-
ingarinnar vísar í gamalt töfraorð
og þýðir: „Það sem ég segi verður að
veruleika.“
„Hér er verið að sýna hvað sam-
tímalist getur verið í allri sinni fjöl-
breytni. Þetta er sýning sem kemur
sérstaklega til móts við þá sem eru
feimnir við samtímalist eða vita
ekki hvað hún er, sem og til byrjenda
og ungs fólks sem hefur áhuga á að
kynna sér samtímalist,“ segir Áslaug
Guðrúnardóttir, kynningar- og
markaðsstjóri safnsins.
Axel Hallkell Jóhannesson hönn-
uður hannaði umgjörð sýningar-
innar og veggi sem eru hér og þar
í sýningarsölunum, með litlum
gluggum og hugtökum úr myndlist,
eins og: efniskennd – innsetning –
staðbundin verk – blönduð tækni.
„Það er mjög gaman að skoða þessa
sýningu og velta fyrir sér hlutum
eins og: Hvað er skúlptúr? Hvenær
hættir málverk að vera málverk og
verður skúlptúr? Hver er munurinn
á teikningu og málverki eða skúlptúr
og innsetningu?“ segir Áslaug.
Föt Steingríms
Hún segir eitt af uppáhaldsverkum
sínum á sýningunni vera Gerðið eftir
Steingrím Eyfjörð. Verkið var sýnt
á Feneyjatvíæringnum árið 2007.
„Það fjallar um huldukind og þar er
gerði, jata og dallur fyrir kindina, allt
smíðað eftir forskrift huldubónda
sem listamaðurinn komst í samband
við í gegnum miðil. Gestir vita ekki
hvar huldukindin er, hvort er hún
inni í gerðinu, einhvers staðar inni í
safninu eða úti,“ segir Áslaug.
Hún nefnir einnig hugmynda-
ríkt listaverk eftir Ólaf Svein Gísla-
son, Þjóðarsál, sem samanstendur
af fötum Steingríms J. Sigfússonar.
„Listamaðurinn hafði samband við
Steingrím og fékk föt af honum frá
því hann var fjármálaráðherra í
hruninu, spretti fötunum í sundur
og saumaði þau síðan saman þann-
ig að þau urðu ein heild, eitt verk, ein
mynd.“
Straumur skólakrakka
Safnið fékk styrk úr Barnamenn-
ingarsjóði til að vinna efni á sér-
staka Abrakadabra-síðu sem verður
á heimasíðu safnsins. „Þar verður
orðabók um samtímalist og í fram-
tíðinni verður hægt að senda þar inn
spurningar, líkt og gert er á vísinda-
vefnum,“ segir Áslaug. „Einnig er
verið að vinna vídeó fyrir síðuna og
er það listamaðurinn Krassasig sem
á veg og vanda af þeim í samvinnu
við ungt fólk.“
Stríður straumur skólakrakka
kemur á sýninguna ásamt kenn-
urum sínum. „Þeim finnst hún for-
vitnileg. Eitt verk er þannig að ef
maður flautar þá pípa á mann lykla-
kippur. Hægt er að klifra upp á verk
eftir Katrínu Sigurðardóttur og kíkja
ofan í kassa og þá sér maður hulinn
heim sem aðeins einn getur notið í
einu. Verk eftir Hrafnhildi Arnar-
dóttur/Shoplifter er loðinn hellir
sem er eins og snjóhús í laginu og
hægt er að fara inn í. Börn elska að
komast í námunda við listaverk eins
og þessi.“n
Samtímalist
í allri sinni
fjölbreytni
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
48 Menning 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR