Fréttablaðið - 26.11.2021, Page 82

Fréttablaðið - 26.11.2021, Page 82
Svo er síminn brotinn. Sími af því við erum öll í símanum. Brotinn sími – brotin sjálfs- mynd. Hildur segir myndlistarsýn- inguna snúast um síðasta ár. MYND/AÐSEND Gular fígúrur. Hreinsun er tólf mynda sería af A3 kolateikningum. Hildur Hermannsdóttir heldur fyrstu einkasýningu sína í Gallerí Schaeffers í mið- borg Óslóar. Á sýningunni eru málverk, vídeóverk og skúlp- túr. Hildur lærði grafíska hönnun í Listaháskóla Íslands og teikningu í Høyskolen Kristiania í Ósló þar sem hún vann til verðlauna fyrir frábæran árangur. Hún býr í Ósló. Sýningin heitir Divulge/Afhjúp- un/Røpe. Á henni eru fjórtán mál- verk. „Ég notast aðallega við akrýl sem grunnefni en einnig blek, túss, lakk, sprey og gullfólíu,“ segir Hildur. „Málverkin eru af alls kyns fígúrum og lýsa mismunandi and- legu ástandi, frá því að vera undir- gefin, dæmd og hrædd, yfir í að vera sterk, hugrökk og yfirveguð. Ég sýni einnig sjö myndir, akrýl og leir, sem sýna upphleyptar 3D píkur sem koma út úr striganum. Þarna er líka stórt verk sem er hangandi lak sem ég hef málað og spreyjað með nafni sýningarinnar.“ Brotinn sími Einnig er á sýningunni sería af kola- teikningum sem ber nafnið Hreins- un/Purification, en það eru fyrstu verkin sem Hildur gerði þegar hún var að undirbúa sýninguna. Hildur sýnir síðan þrjú vídeóverk. „Í vídeó- verkunum vinn ég með sjálfa mig og kynferðislega orku. Í verkinu Cream maka ég á mig rjóma og sýni að ég er frjáls skandinavísk kona sem getur gert það sem hún vill. En staðreynd- in og írónían er samt að ég er alltaf dæmd fyrir að vera kynvera. Í vídeóverkinu Slím er svart slím í bakgrunni sem táknar olíu, tjöru, leðjuna í botninum sem maður þarf að fara ofan í og svo upp úr til að frelsa sjálfa sig. Ég sést maka mig í blóði og munnur með rauðum varalit talar. Í því verki eru tilvísanir í þekktar bíómyndir. Þarna fjalla ég um of beldi, kynferðislegt of beldi, ástar- og kynlífsfíkn og það að frelsa sjálfa sig og hætta að vera hrædd. Þriðja vídeóið er hluti af skúlp- túrnum sem er á sýningunni og er Upp í ljósið og litina af mér að endurtaka í sífellu: Fuck you! Verkið heitir Lekandi kyn- þokki/ Dripping Sexuality. Skúlp- túrinn skapaði ég með sprautu- froðu og málaði hann síðan bleikan. Ég gerði mót fyrir síma og vídeóið er á brotnum iPhone-síma innan í skúlptúrnum. Þetta verk er mín mee too-tjáning. Svo er síminn brotinn. Sími af því við erum öll í símanum. Brotinn sími – brotin sjálfsmynd.“ Að fylgja hjartanu Hildur segist vera að vinna með sjálfa sig á þessari sýningu. „Frá árinu 2018 til 2020 var ég á hraðri andlegri niðurleið. Mér þykir mikil- vægt að tala um þessa hluti opin- berlega. Það er nógu erfitt að vera andlega veik, en það er helmingi verra þegar maður þarf samtímis að skammast sín fyrir það. Eftir að hafa náð svokölluðum andlegum botni hef ég unnið mikið í sjálfri mér, með hjálp fagaðila, sálfræðinga, geð- lækna, lyfja og alls kyns samtaka. Ég er á betri stað í dag andlega séð en ég hef nokkurn tímann verið. Þessi myndlistarsýning snýst um þetta síðasta ár. Hún snýst um að koma sér upp úr hinu svartasta þunglyndi, upp í ljósið og litina ... að heila sjálfa sig. Að þora og fylgja hjartanu. Hætta að vera hrædd og ganga ekki inn í óttann,“ segir Hildur. ■ Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is BÆKUR Svefngarðurinn Aðalsteinn Emil Aðalsteinsson Útgefandi: Dimma Fjöldi síðna: 180 Kristján Jóhann Jónsson Svefngarður Aðalsteins Emils er smásagnasafn. Bókinni er skipt í átta sögur. Fyrsta sagan hefst á apríl- morgni 1901, í þremur sagnanna er tímasetning í undirtitli, 1941, í einni er talað um frétt frá 2020, einn undir kafli hefur ártalið 2021. Sögurnar eru nokkrum sinnum tengdar, en textinn dregur þau tengsl stundum í efa. Í sjávarmáli þorps þar sem f lestar sögurnar virðast eiga sér stað, er sandrif þar sem margvíslegur reki skolast á land. Þar er hús á mörkum tveggja heima, stendur á landi, en er bundið niður með skipsakkerum. Þetta sandrif kallast „Svefngarð- urinn“. Þar rekur ýmislegt góss að landi og í því felast kannski tengslin við bókartitilinn. Í bókinni er líka ýmislegt góss sem rekið hefur á fjörur höfundar . Það er að sjálfsögðu alvanalegt í nútímaskáldskap að draga hulu yfir stað og tíma og ekkert við það að athuga. Það er yfirleitt gert til þess að lokast ekki inni í marg- sk r if uðum eða sögðum sögum, en horfa frekar vítt yfir veröldina. Texti Aðalsteins Emils er oft mynd- rænn og sterkur, leitar svolítið inn í hryllingssöguna. Það þarf að grafa „hræið af pabba“. Sjórinn er „iðandi í dauðum sjávar- gróðri. Stæka rotn- unarlykt leggur yfir allt“. Málfar hefði batnað við betri y f irlestur. Menn „rogast“ til dæmis ekki með hesta í taumi niður af fjöllum. En hverju hefur skolað á fjörur höfundarins? Árið 1901 kemur ljós- myndari í lítið þorp. Hann heillast af því að mynda lík, með aðstand- endum eða án þeirra. Í stuttri sögu segir frá Eyjólfi sem málar myndir en hrapar í gjá, sér þá heiminn á hvolfi en nær aldrei að túlka þá sýn í málverki. Bókin hefst þann- ig á sögum tveggja myndasmiða og allar sögurnar eru frekar stakar myndir en hlekkir í frásögn, þó að þær vísi stundum hver inn í aðra eða minni hver á aðra. Í annarri sögu heyrum við af stúlku sem er lofuð íslenskum spjátrungi, nær sér í amerískan friðil en hann springur í loft upp. Í sögunni „Endur f undir“ he f u r maðu r misst konu og þrjú börn. Hann k e n n i r s é r um og þjáist, en sy ndir nar v i rða st ek k i sambær ilegar við refsinguna. Ein saga er af bræðrum. Í skriðu- hlaupi kemur kista föður þeirra upp úr kafinu og það þarf að grafa karlskrattann aftur. Faðirinn hefur verið leiðindakurfur og er holað niður í ónýtum kálgarði hjá göml- um frænda. Faðirinn stytti sér aldur áður en hann var grafinn í fyrra skiptið og sjálfsvíg er einnig í sögunni Hvörf. Þar er sektartilfinning ráðandi eins og í Endurfundum. Borgir undir vatni er örstutt, súrrealísk saga, þar sem veruleiki og skáldskapur flæða saman, en lokasagan, Svefn- garðurinn, fjallar ekki um dauða- þrá, sjálfsvíg, framhjáhöld, sekt og innibyrgða reiði. Þar bregst að vísu gæfan, græðgin er banvæn og váboðarnir rotnir og illa lyktandi, en þar er gamall maður sem hlúir að stúlkubarni og kallast þannig á við ekkjuna sem lífgar drenginn í fyrstu sögunni. ■ NIÐURSTAÐA: Áhugaverðar sögur með skýrum mannlífsmyndum. Útgefandinn hefði mátt styðja betur við höfund sinn í ritstjórn og yfirlestri. Svefngarður í sjávarmáli Texti Aðalsteins Emils er oft myndrænn og sterkur, leitar svolítið inn í hryllingssöguna. Hin vinsæla sýning um Ástu Sigurðar er komin á Stóra sviðið í Þjóðleik- húsinu. MYND/AÐSEND kolbrunb@frettabladid.is Sýningin Ásta, eftir Ólaf Egil Egils- son, hefur nú gengið fyrir fullu húsi í Kassanum frá því frumsýnt var í haust. Vegna mikillar eftirspurnar hefur nú verið ákveðið að færa sýn- inguna á Stóra sviðið. Þegar er orðið uppselt á tvær sýningar á Stóra sviðinu, en aukasýningum hefur nú verið bætt við. Í þessu nýja verki er svipmyndum af Ástu og skáldskap hennar fléttað saman. Matthildur Haf liðadóttir söngkona og hljómsveit Guðmund- ar Óskars Guðmundssonar f lytja frumsamin lög við ljóð Ástu og endurskapa tíðarandann í tónum. ■ Ásta á Stóra sviðið 56 Menning 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.