Fréttablaðið - 26.11.2021, Qupperneq 90
toti@frettabladid.is
„Ég hef aldrei drepið svona mikið
af fólki eins og við gerum í þessari
seríu af Svörtu söndum,“ segir Bald-
vin Z, sem er leikstjóri glæpaþátt-
anna Svörtu sanda, en hann skrifar
einnig handritið ásamt aðalleikkon-
unni Aldísi Amah Hamilton og lög-
reglumanninum Ragnari Jónssyni.
„Þrátt fyrir það var tökutímabilið
eitt það ljúfasta og yndislegasta
sem ég hef tekið þátt í. Þegar maður
vinnur með svona ótrúlega hæfi-
leikaríku og skemmtilegu fólki sem
leggur allt að veði, verður útkoman
sturluð,“ segir Baldvin um þættina
sem hefja göngu sína á Stöð 2 á jóla-
dag.
Aldís Amah leikur Anítu, þrítuga
lögreglukonu, sem hrekst til starfa
á æskuslóðunum eftir að hafa verið
neydd til að segja upp starfi sínu í
Reykjavík.
Hún hefur ekki komið í þorp-
ið, sem er orðið túristagildra,
umkringd svörtum söndum, í fjór-
tán ár, en eftir að lík ungrar konu
finnst á svæðinu, kemst hún að
raun um að óumf lýjanlegt upp-
gjör við móður hennar er síður en
svo það versta sem býður hennar,
þegar eltingaleikur við mögulegan
raðmorðingja sogar hana ofan í
myrkan hyl fortíðar.
Líkfundurinn virðist í fyrstu ekki
tengjast neinu saknæmu, en þegar
vinkona hinnar látnu finnst, hrakin
og alblóðug í kjölfarið, tekur rann-
sókn Anítu, lögreglustjórans Ragn-
ars, þorpslæknisins Salomons og
lögregluteymisins á staðnum, aðra
stefnu.
Á meðan rannsóknin vindur
upp á sig endar Aníta í miðju eld-
heits ástarþríhyrnings og í ljós
kemur að lögreglan á staðnum
hefur ekki sinnt rannsóknum sem
skyldi og málið tengist hugsanlega
eldri málum og mögulegum fjölda-
morðingja, þannig að fortíðarupp-
gjör Anítu breytist í martröð.
Stöð 2 sendir fyrsta þáttinn,
eins og áður segir, út á jóladag, en
annar þáttur fylgir í kjölfarið strax
á öðrum degi jóla.
Auk Anítu eru Þór Tulinius, Stein-
unn Ólína Þorsteinsdóttir, Ævar Þór
Benediktsson og Kolbeinn Arn-
björnsson í helstu hlutverkum. n
Martröð og morð
í túristagildru
svartra sanda
Túristagildran við svörtu sandana reynist mun hættulegri en ætla mátti, þegar lík ungrar konu finnst í sandfjörunni.
Þegar svartir sandarnir umhverfis æskuslóðir Anítu
verða vettvangur glæps mögulegs raðmorðingja, snýst
fortíðaruppgjör lögreglukonunnar upp í martröð.
Aldís Amah er bæði einn handritshöfundanna og fer
með aðalhlutverkið. MYNDIR/ JULIETTE ROWLAND
Glæpaþáttaserían Svörtu
sandar segir frá lögreglukon-
unni Anítu, sem sogast ofan í
myrkan hyl fortíðar þegar hún
eltist við mögulegan raðmorð-
ingja á æskuslóðum sínum.
Stöð 2 byrjar að sýna þættina
á jóladag, en Fréttablaðið
skyggndist bak við tjöldin þar
sem ekki er allt sem sýnist í
svartri sandfjörunni.
Ævar Þór Benediktsson leikur lögreglumanninn Gústa. Þór Tulinius er reffilegur sem lögreglustjórinn Ragnar.
Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir í hlutverki
Elínar, móðurinnar sem
Aníta getur ekki komið
sér hjá því að gera for-
tíðina upp við.
Rannsókn morð-
málsins vindur
fljótt upp á sig
og leiðir Aldísi á
háskalegar slóðir.
Kolbeinn Arnbjörnsson leikur þorps-
lækninn Salomon sem kemur að
rannsókn líkfundarmálsins sem á
eftir að ganga mjög nærri Anítu, sem
Aldís Amah Hamilton leikur.
64 Lífið 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ