Gnúpverjinn - 01.12.1992, Page 21

Gnúpverjinn - 01.12.1992, Page 21
seiðmagnaðri en niðri í byggðum. Blámi himins og fjarlægra fjalla var þó mestu ráðandi hér. Fyrst renndi ég augum til veranna innan Fjórðungssands, það er gleggsta kort sem ég hef séð af þeim. Nokkuð sást efst í Arnarfellsbrekkuna bak víó Múlajökul og Kertjallið. Trölladyngja bak við Tungnafellsjökul sýndist furðu nærri með sömu lögun og Skjaldbreiður. Þarna niður frá var Helgavatn, Rjúpnafellsvatn og Grænavatn sem sendir Stóru-Laxá í boga til norðausturs. Parna var hún nú, þó að hún geti þornað á sumrum á þessu svæði. Fyrir fótum okkar lágu margir hnúkar en jöklarnir til allra átta nema suðvesturs. Við kunnum skil á þeim flestum. Við undum nokkuð lengi við að horfa yfir sviðið og rýna í fjarlæg fjöll. Nokkur stöðuvötn sáust í tjarska og ár á Suðurlandi. Fossar sögðu til sín með silfurlituðum úða. Við hugðum nú til niðurgöngu. Hér á toppnum voru hrafntinnumolar. Við tókum nokkur brot til minja. Sólin nálgaðist nú Langjökul og Eiríksjökul en jakarnir á Hvítárvatni glóðu. Nú völdum við leiðina niður vestan í Nípunum. Þó að það væri nokkur bugur á leið til hestanna tók sá áfangi stutta stund. Hestarnir höfðu ekki haggast en urðu fegnir komu okkar. Nokkuð var eftir af degi þegar við settumst að í Arskarði. Engan gest hafði borið að garði, svo að við urðum enn einu húsbændurnir. "Nú var setið og soðið og sopið og borðað og steikt." Matarlystin var mikil eftir erilsaman dag. Aður en við gengum til náða litum við enn til Snækolls, sem nú stóð í gullrauðum loga kvöldsins. Jón Eiríksson. Þorrablótsvísur 1991 Fjallíerð (L ag: Eitt lag enn) rija mér ekki spurning um þaó er þegar fer aö hausí fýsir mig á fjall með þér. Það er ofsa íjör sem fylgir þér svo ég finn í snatri flatkökur og ket og smér. Ein ferð enn ugg í brjósti ei ber þó hann blási bæði og rigni það sem eftir er. Ein ferð enn enga fæ ég þó ró fyrr en fer ég þar á kaf í vatni, for og snjó. Eg er frjáls á fjöllunum með fjallaköliunum svona fáum okkur eina réttarskál. Ein ferð enn... 21

x

Gnúpverjinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gnúpverjinn
https://timarit.is/publication/1637

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.