Strandapósturinn - 01.06.1989, Síða 27
Aðrar verklegar framkvœmdir. Áfram var unnið við vatnsveitu í
Norðurfirði, og var hún tekin í notkun í haust. Enn er þó eftir að
ganga frá lögnum. Nýja vatnsveitan á Hólmavík var einnig tekin í
notkun, en lítið var unnið við verkið á árinu. Á næsta ári verður
byggður þar 600 rúmmetra miðlunartankur, en þangað til geta
Hólmvíkingar ekki haft full not af nýju veitunni.
Þann 12. nóvember var ný flugbraut tekin í notkun á Hólmavík,
en þá lenti Dornier-flugvél Arnarflugs þar fyrst véla. Fram-
kvæmdir við nýju flugbrautina hófust í sumar. Bygging flug-
brautarinnar var boðin út, og kom verkið í hlut Strandaverks hf. á
Hólmavík. Vinnu við brautina er nú að mestu lokið, en á næsta ári
verður byggð ný flugstöð við völlinn og gengið frá flughlaði. Nýja
flugbrautin er á sama stað og sú gamla, en stefna hennar er önnur.
Fullbúin verður brautin 1000 m að lengd og 30 m á breidd auk
öryggissvæða. Nýja brautin bætir mjög alla aðstöðu til flugs til og
frá Hólmavík, þar sem hún snýr mun betur við ríkjandi vindáttum
en sú gamla, sem var auk þess aðeins 746 m að lengd. Flestar
áætlunarflugvélar þurftu því sérstaka undanþágu til að rnega nota
gömlu brautina.
Sveitarstjórnarmál. Fyrsti aðalfundur Héraðsnefndar Strandasýslu
var haldinn á Hólmavík 27. nóvember, en samkvæmt sveitar-
stjórnarlögum frá 1986 áttu héraðsnefndir að taka við hlutverk-
um sýslunefnda 1. jan. 1989. Oddviti héraðsnefndarinnar er
Brynjólfur Sæmundsson á Hólmavík, en Stefán Gíslason, sveitar-
stjóri Hólmavíkurhrepps, er framkvæmdastjóri nefndarinnar.
Eldsvoðar og slysfarir. Þann 21. október fékk strandferðaskipið
Hekla á sig brotsjó skammt út af Óðinsboða norður við Geirólfs-
gnúp, með þeim hörmulegu afleiðingum að einn skipverji lést.
Skipið komst inn til Hólmavíkur seint um kvöldið í fylgd flutn-
ingaskipsins Isbergs. Gífurlegar skemmdir urðu á skipinu, og var
því siglt í slipp til Akureyrar eftir bráðabirgðaviðgerð á Hólmavík.
Laust fyrir hádegi 17. okt. kom upp eldur í íbúðarhúsinu að
Höfðagötu 9 á Hólmavík, svonefndu Magnúsar Fýðssonar-húsi.
Slökkvilið Hólmavíkur réði niðurlögum eldsins á skömmum tíma,
25