Strandapósturinn - 01.06.1989, Síða 70
í „Öldinni sautjándu“ segir að hvalveiðimenn af kyni Baska hafi
á árunum fyrir 1615 leitað mjög í norðurhöf til veiða. Hin síðustu
ár þessa tímabils hafí Baskar þessir leitað til Islands, hafst við á
sumrin á fjörðum inni á Ströndum og skutlað hvali á Húnaflóa.
I upphafi áttu hvalveiðimenn þessir friðsamleg samskipti við
landsmenn og keyptu þeir þá sauði af bændum sér til matar.
Sumarið 1614 urðu nokkrir stuldir á báða bóga og var lands-
mönnum bannað að eiga skipti við Spánverjana. Vildu þeir þá
taka sauði með valdi en bændur bjuggust til varnar með ljáum og
bareflum án þess að til stórtíðinda drægi. Baskar voru vel vopnum
búnir og þjálfaðir í herþjónustu, höfðu jafnvel byssur, samanber
þegar Marteinn skipstjóri lét byssuna af hendi við Ara í Ögri, svo
þarna var mjög ójafn leikur. Voru bændur stundum handteknir
og hafðir í varðhaldi úti á skipunum meðan skipsmenn fóru sínu
fram í landi, rændu og rupluðu og tóku konur til sængur að eigin
geðþótta. Að þessu loknu fengu bændur að fara í land aftur.
Vorið 1614 komu þessir hvalveiðimenn og varð fyrst vart
tveggja báta sem hröktust undan hafís á Húnaflóa. Tóku þeir land
alls 13 menn á Eyjum á Bölum hraktir og matarlitlir. Þar voru þá
fyrir nokkrir Islendingar er þar lágu ístepptir og hugðust þeir
veita Spánverjunum atgöngu. Svo fóru þó leikar að Islendingar
lutu í lægra haldi og flýðu, sumir nokkuð meiddir. Ekki er getið
um af hvaða skipi þessir Baskar voru, en sennilega hefur það verið
fast í ísnum og bátarnir ekki náð að komast að því. Tveir menn af
Böskurn, sem orðið höfðu fyrir hnjaski í Eyjaupphlaupi, frömdu
stuld þar sem þeir héldu óvini sína búa er þeir áttu leið úr Reykjar-
firði til Steingrímsfjarðar, og urðu þá nokkrar skærur þar sem
einum Spánverjanum var greitt rothögg með steini, en skipstjóri
liðsinnti þeim er valdur var að því verki svo hann galt þess ekki.
Sumarið 1615 er getið um 16 skip spænsk á Húnaflóa. Ekki voru
allir Baskar ágengir við landsmenn. Til dæmis má geta þess að
aldrei kom neinn þeirra heim að Reykjanesi í Arneshreppi sumar-
langt þó sjö bátar væru þar nær því daglega fyrir framan að
veiðum. Bátarnir voru notaðir til að skutla hvalina og fóru Baskar
yfírleitt ekki á bátum sínum lengra en svo að þeir sæju til skipsins.
Spánverjar höfðu vara á sér og létu tvo menn vaka um nætur á
68