Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1989, Page 138

Strandapósturinn - 01.06.1989, Page 138
Tálminn óyfirstíganlegi Guðmundur Árnason í Naustvík (fæddur 9. maí 1889) sagði mér frá eftirfarandi atviki. Reyni ég að endursegja söguna sem næst hans eigin frásögn, þótt auðvitað verði hún ekki orðrétt eftir höfð: „Eg var staddur úti á Gjögri, einhverra erinda. Þetta var um hausttíma. Er ég var búinn til heimferðar og mjög kvöldsett orðið. Jörð var auð. Loft var þungbúið. Hélt ég heimleiðis framhjá Kjörvogi, og stefndi sem leið liggur inn undir Kjörvogshlíðina. Þetta var áður en nokkur vegabót hafði farið þarna fram. En hestatroðningar lágu inn alla hlíð. Eg var þaulkunnugur leiðinni, svo oft hafði ég farið þarna um bæði í björtu og dimmu og á öllum árstíðum. Aldrei hafði ég fundið til hræðslu þótt ég væri einn á ferð í myrkri og misjöfnum veðrum. I þetta sinn var ég gangandi og með léttan poka á baki. Eg hafði olíulugt í hendi, því mjög var dimmt orðið, svo að varla sáust handa skil. Er ég var kominn nokkuð inn fyrir Kjörvog, nálægt því svæði sem hlíðin verður snarbrött, eða inn á móts við Óna, — þar sem spönsku skipin strönduðu í ofviðri árið 1627, svo sem frægt er — fannst mér ég verða fyrir einhverri mótstöðu, svo að ég átti erfitt með að komast áfram. Það var eins og ósýnileg hindrun stæði hér í vegi. Eg reyndi að komast áfram bæði ofar og neðar. En það kom fyrir ekki. Ég komst ekki leiðar minnar. Þá gerðist það einnig, að ljósið slokknaði á luktinni, svo að allt varð niðadimmt í kringum mig. Og brátt dró úr mér mátt. Ég hörfaði til baka nokkurn spotta til að átta mig og sækja í mig veðrið. Og ekki leið á löngu, þar til ég fékk aftur fullan kraft og þrótt. Ekki varð ég neitt hræddur. Ég hugsaði, að þetta hlyti að vera einhver vitleysa í mér sjálfum. Slíkt hafði aldrei hent mig fyrr. Ekki fann ég til neins ótta. Ég kveikti aftur á luktinni og gerði nýja tilraun til að komast áfram. En allt fór á sömu leið. Mótstaðan var hér eins og áður. Hvernig sem ég reyndi var ég hindraður í að komast áfram. Ég neytti allrar orku, en allt kom fyrir ekki. Og eins og í fyrra skiptið 136
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.