Strandapósturinn - 01.06.1995, Page 53
Magnúsi Benediktssyni á tuttugu og fimm krónur. Þau voru mjög
slitin og stálkantalaus og næstum ómögulegt var að taka nokkrar
beygjur á þeim. Bindingarnir voru í sama stíl. Járn var fest á
skíðin, sem skósólanum var rennt í. Gormur lá aftur fyrir hælinn,
sem var svo hertur með spennu fyrir framan tána. Maður hrökk
iðulega upp úr þessum bindingum og missti skíðin af sér, en það
forðaði manni frá meiðslum.
Skórnir voru venjulegir gönguskór (tramparar) og héldust illa í
bindingunum, enda ekki gerðir til slíks brúks. Þá voru allir komn-
ir með tvo göngustafi.
Magnús leiðbeindi okkur um noktun skíðaáburðar. T.d. átti að
nota tjöruáburð í blautum snjó, en vaxáburð í þurrum snjó
o.sv.fr. Svo var auðvitað mikill vandi og kúnst að bera áburðinn
rétt á skíðin, svo að þau yrðu ekki bakskreið. “
Með þessari skíðakennslu er hafin starfsemi sem er í gangi
næstum áratug með æfingum og mótum í nágrenni Djúpuvíkur
og þátttöku í mótum í Bjarnarfirði, Isafirði og Reykjavík.
Fyrsta opinbera mótið er haldið fram í dal í Reykjarfirði vetur-
inn eða vorið 1940. Keppt mun hafa verið í göngu og svigi.
Keppendur voru á mótinu frá Eflingu, Jóhann Elíasson í Bæ og
jafnvel einhverjir frá Gretti í Bjarnarfirði. Ekki hefur tekist að
komast að því hverjir og hve margir þátttakendur voru. Sveinn í
Djúpuvík var fyrstur í göngunni og Sigurður Pétursson í Djúpu-
vík annar. Ekki er vitað um röð annara í göngunni né um röð
keppenda í sviginu. Heirna í Reykjarfirði var staðið fyrir veitinga-
sölu á vegum Eflingar og var stofan þar notuð sem veitingasalur.
Matthías frá Reykjarfirði segist muna þetta tilstand á heimilinu
vel. Að loknu mótinu var haldin skemmtun í Djúpuvík í salnum í
Kvennabragganum. Fyrst flutti Guðntundur Pétursson í Reykjar-
firði ávarp, þá voru afhent verðlaun eða sagt frá röð keppenda og
flutt einhver skemmtiatriði, síðan var dansað lengi nætur.
Um starfsemina 1941 hefur lítið fengist staðfest. Það má þó
teljast víst að haldið hafi verið uppi æfingum og einhver mót hafi
verið haldin í Djúpuvík og í Trékyllisvík. Félagar úr Eflingu
kepptu á móti í Bjarnarfirði sem haldið var á vegum Sundfél.
Grettis. Gengið var yfir Trékyllisheiði í norðaustan byl, varla sást
51