Syrpa - 01.05.1948, Blaðsíða 21
flaueli, peysa og ef til vill treyja utan yfir, ágæt-
ur búningur. Matrósaföt hafa lengi verið hefð-
bundin spariföt allra drengja frá þriggja ára aldri
fram að fermingu, þótt deila megi um, hve hent-
ug þau séu.
Einfaldir tvisttaukjólar, hnepptir að framan
með samstæðum buxum, eru mjög lientugir fyrir
telpur hversdagslega, þegar þær eru ekki í skrið-
buxum eða leikbuxum. Einnig eru prjónakjólar
með síðum ermum góðir, þegar kalt er, en bezt
er að nota við þá svuntu, svo að sjaldan þurfi að
þvo þá. Smokksaumaðir bómullarkjólar eru með
fallegustu spariflíkum, sem völ er á handa litlum
telpum.
Yfirhafnir
Samfestingar með áfastri liettu úr vatnsheldu
stormefni, fóðraðir með flóneli eða lipru ullar-
efni, eru ágætar liversdagsyfirhafnir bæði á drengi
og telpur. Enn betri eru þó tvískipt útiföt af
sömu gerð, síðar buxur og treyja með áfastri
ltettu, því að barnið vex ekki eins fljótt upp úr
slíkum fötum, auk þess sem auðveldara er að
klæða það í þau. Einnig er það kostur við tví-
skipt útiföt, að hægt er að nota treyjuna sér, ef
vill.
Útiföt úr stormefni hæfa vel íslenzkri veðráttu.
Þau má líka þvo og strjúka með lítilli fyrirhöfn
og þau eru endingargóð. Kápu — eða frakkasam-
stæður úr ullarefni geta verið fallegar, en eru
ekki hentugar nema sem betri föt, auk þess sem
þær eru ekki nrjög hlýjar og erfitt að búa börnin
vel innan undir.
Regnkápur, olíubornar eða úr plastdúki, eru
nauðsynlegar öllum smábörnum, þegar þau fara
að leika sér titi í hvaða veðri sem er.
Ætla má, að margar störfum hlaðnar mæður
grípi fegins hendi hverju því, er létt geti undir
með þeim, meðal annars hvað saum á barnafatn-
aði viðkemur. Skal því að endingu bent á, að á
])essu ári mun koma út í íslenzkri þýðingu lítil en
athyglisverð bók, þar setn meðal annars verða
gefnar leiðbeiningar urn saum og prjón á lientug-
um smábarnafatnaði og er ætlunin, að snið verði
seld með bókinni. Bók þessi er þýdd úr sænsku.
I lienni birtist niðurstaðan af víðtækri rannsókn,
sem fram fór í Svíþjóð á hentugum barnafatnaði
og eru allar uppskriftir og öll snið í bókinni
þaulreynd. Mun bók þessi bæta hér tir brýnni
> þörf.
„SYRPA“ heilsar nú
lesendum sínum á ný
og biður afsökunar á hinum langa drætti, sem orðinn er á
ntkomunni. Ekki má þó kenna henni um hann, heklur papp-
Irsskortinum, sem þjarmar nú að aílri útgáfustarfsemi í land-
inu, — ekki sízt nýgræðingum, sem engan bakhjall eiga sér.
Loksins hefur þó raknað dálítið úr þessu, og leggur nú blaðið
upp í vegferð sína á ný í von um að geta framvegis haldið
sitt strik. Allmargir áskrifendur hafa þegar greitt fullt
gjald fyrir fyrsta árganginn, og eiga því inni fimm blöð. Til
þess að koinast sem fyrst úr þessari skuld, verða fjögur næstu
heftin höfð svo stór, að lesmálið alls jafngildi þá 9 heftum
með 32 bls., og er vonandi, að kaupendurnir taki þetta ekki
illa upp.
„Syrpa“ hefur fengið ágætar viðtökur, — en ekki nógu
marga kaupendur. Fjöldi hlýlegra bréfa hefur borizt með
góðum óskum og spádómum um langa lífdaga, en jafnframt
hér um bil undantekningarlaust unrkvörtum um of hátt verð.
Þetta er undarlegt, því að „Syrpa" er einmitt eitt allra ódýrasta
ritið, sem gefið er út óstyrkt hér á landi, og það jafnvel þó
að miðað sé við gömul tímarit, sem fengið höfðu mikinn
áskrifendafjölda löngu áður en útgáfukostnaðurinn rauk upp
úr öllu valdi. Sannleikurinn er sá, að hún er svo ódýr, að
ógerningur er að halda útgáfunni áfram nema með því móti
að hækka lausasöluverðið töluvert. Áskriftargjaldið helzt að
sjálfsögðu óbreytt.
Endurminningar Gythu Thorlacius
eru nú komnar út. Eins og lesendur „Syrpu" mun reka minni
til, þá birtist upphaf þessarar skemmtilegu frásagnar í tveim
fyrstu blöðunum, en féll niður sökum þess að í Ijós kom, að
liókaútgáfa ísafoldarprentsmiðju var farin að prenta hana i
heild. Til þess að bæta svolítið fyrir þetta óhapp, hefur blaðið
komizt að samningum við ritgefendann og getur nú boðið
föstum áskrifendum sínum bókina með sama verði og hún er
seld bóksölum, en það er 20 kr. fyrir hana óbundna og 28 kr.
í bandi. Fyrir jólin gaf „Syrpa“ út bók,
Haftneyjuna litlu
eftir Ff. C. Andersen með teikningum eftir F'alke Bang, og dá-
lítið af
pjóðlegum kortutn,
og stendur hvort tveggja áskrifendum hennar til boða fyrir
bóksalaverð.
Hafmeyjan kostar þannig 12 kr. óbundin, en kr. 14.40 i
bandi. Kortin eru með myndum af teikningum eftir Guðmund
Thorsteinsson, Gunnlaug Scheving, Guðmund frá Miðdal og
Falke Bang, og ennfremur fyrirmyndum úr gömlum hand-
ritum. Engar kveðjur eru prentaðar á þau, svo þau eru nothæf
við ýmis konar tækifæri. Gerðirnar eru 12 og kostar samstæðan
13 kr. (12 kort, stór og smá, útsöluverð 20 kr.). Verður þetta
afgreitt á afgreiðslunni, Laugavegi 17 (sími 3164), eða gegn
póstkröfu út um land.
CAeðilegt sumar!
S Y R I’ A
19