Bændablaðið - 21.10.2021, Síða 1

Bændablaðið - 21.10.2021, Síða 1
28–29 20. tölublað 2021 ▯ Fimmtudagur 21. október ▯ Blað nr. 597 ▯ 27. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Karólína Elísabetardóttir, sauðfjárbóndi í Hvammshlíð, er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni um riðuveiki: Segir stutt í að hægt sé að rækta upp ónæmt sauðfé Karólína Elísabetardóttur, sauð­ fjár bóndi í Hvammshlíð í Skaga­ byggð, segir að lausnin til að rækta upp verndandi arfgerðareiginleika í sauðfé gegn riðu sé innan seil­ ingar. Samstarf hennar við þýska, enska og ítalska vísindamenn með aðkomu riðusérfræðings á Keldum og ráðunauts frá Ráðgjafar miðstöð landbúnaðarins, hefur skilað þeim árangri að arfgerðin T137 hefur fundist í tveimur kindum í sömu fjölskyldunni á bæ á Norðurlandi vestra. „Kindurnar tvær með T137 fund- ust á Sveinsstöðum í Þingi, rétt við Vatnsdalshóla. Þórður Pálsson frá Matvælastofnun benti mér á þessa hjörð í vor, sem er mjög stutt frá gamla riðusvæðinu í Vatnsdal. Þar hefur samt aldrei komið upp riða – sem er sérstakt. Það var sem sagt í kindinni Þoku sem arfgerðin fannst fyrst og áfram er leitað í fjölskyldu hennar,“ segir Karólína. Sigurður Sigurðarson dýralæknir segir í grein í Bænda blaðinu í dag (bls. 40) að leit að arfgerðum í fé, sem verji gegn riðu, sé vissulega af hinu góða. Hins vegar sé óraunhæft að fullyrða, eins og gert hafi verið að undanförnu, að hægt sé að útrýma riðuveiki á 10 árum við aðstæður sem hér eru. Hann segir fullyrðingar líka rangar um að niðurskurður á riðusvæðum hafi engu skilað og vísar í gögn því til staðfestingar. Þá segir Sæmundur Sveinsson, fagstjóri erfðarannsókna hjá Matís, í viðtali á bls. 8, að það séu að minnsta kosti þrjú sæti í riðugen- inu Prnp sem hafa áhrif á næmi sauðfjár gagnvart riðu. „Hinn eig- inlegi verndandi eiginleiki í sæti 171 hefur aldrei fundist hér á landi, þrátt fyrir umtalsverða leit,“ segir Sæmundur, en nú á bæta við arf- gerðagreiningum á þessum þekkta verndandi breytileika í samstarfs- verkefni Matís og Keldna. Segir málið furðu einfalt Karólína segir að arfgerðin T137 hafi í umfangsmiklum rannsóknum á Ítalíu reynst eins verndandi og önnur þekkt verndandi arfgerð – sæti 171 arfgerð R eða ARR – sem notast er við í Evrópu við að byggja upp þolna sauðfjárstofna. „Ég veit að sumum þykir þetta full bjartsýnt, að lýsa því yfir að lausnin sé handan við hornið. Ég skil vel að embættisfólk og fólk í opinberum stofnunum, eins og vís- indamenn, stigi varlega til jarðar,“ segir Karólína. Hún bætir við að allt bendi samt til þess að „kerfið“, sem hefur erlendis virkað vel síðustu 20 ár til að rækta upp stofn með vernd gegn riðu, verði fljótlega hægt að yfirfæra á Ísland. „Þótt það hljómi ólíklega við fyrstu sýn þá er málið í rauninni furðu ein- falt – ef það er tekið tillit til aðferðar- fræðinnar í öðrum löndum. Það þarf bara að leita að arfgerðinni með opnum huga og skipulegum hætti – hefja svo markvissa ræktun út frá þeim gripum sem finnast með arfgerðina,“ segir hún. Til að vera hundrað prósent viss, sé auk þess á döfinni að prófa gildi aðferðarinnar, para saman ólíka íslenska riðustofna og þessa „nýju“ arfgerð – sem þarf þá að sanna verndargildi sitt. Fyrsta kynslóðin strax vel varin Karólína segir að ítölsku rannsóknirnar bendi til þess að T137 virki jafnvel í arfblendnu formi – ólíkt ARR sem þarf helst að koma arfhreint fyrir til að virka fullkomlega verndandi. „Ef þetta verður staðfest mun það flýta mikið fyrir, því fyrsta kynslóðin væri strax vel varin.“ Vegna þess hversu arfgerðin er mjög sjaldgæf í dag yrði þess vegna að passa upp á að koma í veg fyrir skyld- leikaræktun. „Mikilvægast er auðvit- að fyrst að rækta upp þolinn stofn á „upphafssvæði“ riðu í Skagafirði og Húnavatnssýslum og hinum varn- arhólfum þar sem riða hafði komið upp áður. En á meðan fyrirkomulagið með líflambasölusvæðin er enn notað, þar sem líflömb eru seld til riðusvæða, er ekki síður mikilvægt að hafa verndandi arfgerðina einnig þar.“ Arfgerðin T137 hafði fundist í rann- sóknum á Keldum sem meðal annarra Stefanía Þorgeirsdóttir stóð að á tíunda áratugnum. „Núverandi leit eftir þessari arfgerð byggist að hluta til á upplýsingum frá þeim tíma; hún fannst á Núpsstað í Skaftárhreppi og á Enni í Hofshreppi ásamt nokkrum riðubæjum – sem koma eðlilega ekki lengur til greina sem mögulegur grunnur,“ segir Karólína. Þær Karólína og Stefanía Þorgeirsdóttir, riðusérfræðingur á Keldum, hafa í sam- starfi við bændur sem þekkja til rakið afkomendur gömlu T137-kindanna á bæina Hvol og Sandfell. „Því miður er arfgerðin greinilega dáin út á Hvoli, en niðurstöðurnar frá Sandfelli eru væntanlegar í næstu viku,“ segir Karólína. Hún vonast til að finna fleiri einstak- linga með arfgerðina annars staðar á landinu í haust, í samstarfi við Eyþór Einarsson frá Ráðgjafarmiðstöð land- búnaðarins. Rannsóknin er fjármögnuð af þróunarsjóði sauðfjárræktar og þeim stofnunum erlendis sem taka þátt í henni, meðal annars Justus-Liebig- háskólanum í Giessen og Friedrich- Loeffler-Institut í Greifswald í Þýskalandi. Ef allt gengur að óskum eiga helstu niðurstöðurnar að liggja fyrir í kringum áramótin 2022–2023. – Sjá einnig frétt á bls. 8. /smh/HKr. Reykjavík: Kjötsúpudagur 1. vetrardag Íslensku kjötsúpunni verður gert hátt undir höfði með árlegum kjöt­ súpudegi fyrsta vetrardag, laugar­ daginn 23. október næstkomandi, og hefst klukkan 13.00. Þar bjóða veitinga­ og verslunarmenn við Skólavörðustíg gestum og gang­ andi upp á rjúkandi kjötsúpu með stuðningi bænda. Allir Íslendingar elska kjöt- súpu, enda eiga allar íslenskar fjöl- skyldur sína uppáhaldsuppskrift að kjötsúpunni sinni. Hún vekur góðar minningar, kallar fram bros og yljar hjartanu, jafnt sem hún er bragðgóð, seðjandi og næringar- rík. Kjötsúpudagurinn er haldinn af veitinga- og verslunarmönnum á Skólavörðustíg með stuðningi bænda. /HH 36 Mögulegur innflutningur sníkjuvesputegunda til höfuðs óværu í birkitrjám Ævintýri líkast að fylgjast með skógarhöggs- mönnunum að störfum 22 Signe Arendorf Bache gerir magnaðar blýantsteikn- ingar af íslenskum hestum Nú er sumarið 2021 að renna sitt skeið og fyrsti vetrardagur er laugardaginn 23. október. Þessi mynd var tekin af henni Hörpu Maríu Ólafsdóttur, fimm ára, úr Kjósinni í sumar, með stóðhestinum Toppi frá Meðalfelli og sýnir hvernig tenging barns og hests getur verið einstaklega falleg og báðum dýrmæt.– Sjá myndasyrpu af börnum í sumarskapi á bls. 7. Mynd / Sólrún Björg.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.