Bændablaðið - 21.10.2021, Síða 4

Bændablaðið - 21.10.2021, Síða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 20214 FRÉTTIR Innflutningur á því sem skilgreint er í tollskrá sem jurtaostur á fyrstu átta mánuðum þessa árs hefur fallið um nær 71% frá því sem var 2020. Fyrstu 8 mánuðina 2021 voru flutt inn 55 tonn af jurtaosti en 187 í fyrra. Erfitt er að sjá aðra skýringu en ábendingar um að stór hluti þessa innflutnings á árinu 2020 og jafnvel fyrr hafi verið á snið við tollalög. Héraðsdómur Reykjavíkur stað- festi í raun með dómi þann 8. júlí síðastliðinn að um ólögmætan inn- flutning hafi verið að ræða. Mikið hefur verið fjallað um þetta mál, m.a. í Bændablaðinu. Erna Bjarnadóttir, fyrrverandi hag- fræðingur Bændasamtaka Íslands, benti ítrekað á ýmsa vankanta varð- andi m.a. innflutning á mjólkurvör- um. Upp hafi komist að einhvern veginn hafi þessar vörur átt til með að umbreytast í hafi í aðrar vörur á leið sinni frá meginlandinu til Íslands. Venjulegur ostur breyttist t.d. í jurtaost svo dæmi sé tekið. Eftir ábendingar Ernu stórminnk- aði innflutningur á jurtaosti. Pizzaostur fluttur inn sem jurtaostur Ágreiningur aðila sneri að því hvernig tollflokka eigi vöruna Festino IQF Mozzarella Pizza Mix, sem samkvæmt gögnum málsins er rifinn ostur, sem inniheldur u.þ.b. 11–12% af viðbættri pálmaolíu. Stefnandi, innflutnings fyrirtækið Danól, mun hafa flutt vöruna inn til landsins frá árinu 2018 og flokkaði hana í 21. kafla tollskrárinnar, í tollskrárnúmerið 2106.9068, sem ber heitið „Matvæli, ótalin annars staðar: „Jurtaostur.“ Rétt er að geta þess að vörur í tollskrárlið 2106 bera enga tolla. Í úrskurði tollgæslustjóra sem deilt var um er varan hins vegar flokkuð í 4. kafla tollskrárinnar en í þeim kafla eru m.a. vörur unnar úr mjólk, þ.m.t. ostar. Í fjórða kafla tollskrárinnar eru landbúnaðarvör- ur, m.a. ostar, sem lagðir eru á bæði magn- og verðtollar. Niðurstaða tollgæslustjóra er sú að vöruna skuli flokka í toll- skrárnúmer 0406.2000, þ.e. „Hvers konar rifinn eða mulinn ostur“. Innflytjandi tapaði máli við ríkið Innflytjandinn Danól ehf. höfðaði mál gegn íslenska ríkinu og var réttarstefna birt 19. apríl 2021. Málið var síðan dómtekið að lokinni aðalmeðferð 11. júní sl. Mál þetta sætti flýtimeðferð sam- kvæmt ákvæðum XIX. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einka- mála. Stefnandi krafðist þess að felld- ur verði úr gildi úrskurður embætt- is tollgæslustjóra nr. 3/2021, sem kveðinn var upp 29. mars 2021 og greiðslu málskostnaðar úr hendi stefnda. Ríkið krafðist hins vegar sýknu af öllum kröfum stefnanda og greiðslu málskostnaðar úr hendi hans. Niðurstaða Héraðsdóms Reykja - víkur var ótvíræð. Hvorki var fallist á að efnislegir né form legir ann- markar hafi verið á um deildum úrskurði tollgæslu stjóra nr.3/2021. Kröfum stefnanda um ógildingu hans var því hafnað. Í dóms orði segir: „Stefndi, íslenska ríkið, er sýkn af kröfu stefnanda, Danól ehf. Stefnandi greiði stefnda 950.000 krónur í málskostnað.“ /HKr. Mánuðir 2020 2021 Mismunur % Janúar 6 4 -2 -33 Febrúar 31 13 -18 -58 Mars 17 3 -14 -82 Apríl 17 13 -4 -24 Maí 30 3 -27 -90 Júní 12 14 2 17 Júlí 32 2 -30 -94 Ágúst 42 3 -39 -93 Samtals: 187 55 -132 -71 *Í tonnum talið Innflutningur fyrstu 8 mánuði ársins* Jurtaostur (Tollnúmer 2106.9068) Um 71% samdráttur í innflutningi á jurtaostum á milli ára – Samdrátturinn virðist í takti við ábendingar um ólögmæta tollskráningu Tímabundinn skortur á myglu- ostum hjá Mjólkursamsölunni Skortur hefur verið á myglu ostum frá starfsstöð Mjólkursamsölunnar í Búðardal sem átti að setja í sölu í október, vegna galla í nýjum fram­ leiðslubúnaði. Á það við um allar tegundir mygluosta, nema gráðaostinn. Að sögn Guðbjargar Helgu Jóhannes dóttur, markaðs- og vöru- flokka stjóra osta og smjörvara hjá Mjólkursamsölunni, kom gallinn í ljós eftir að búið var að setja bún- aðinn upp og framleiða í september það magn sem átti nú að fara í sölu í október. Framleiðsla hafin á ný „Okkur hjá MS þykir þetta miður en þetta leiðir til tímabundinnar vöntunar á mygluostum frá fyrirtækinu. Framleiðsla á mygluostum er hafin á ný eftir viðgerð á framleiðslu- tækjunum en ostagerð er langtíma ferli og þurfa ostarnir tíma til að þroskast áður en þeir verða sölu- hæfir,“ segir Guðbjörg sem telur að neytendur geti búist við því að þeir komi aftur í verslanir í þessari viku. Hún tekur fram að nóg sé til af gráðaostinum. /smh Damian Jakub Kondracki með gimbrina Sólveigu og Alexander Örn Matthías­ son með gimbrina Söru. Myndir / Birgitta Lúðvíksdóttir Sauðburður í október í Hörgársveit „Nei, ég átti nú alls ekki von á sauðburði í október en svona getur þetta stundum verið í sveit­ inni, þetta er bara skemmtilegt og gefur lífinu lit,“ segir Birgitta Lúðvíksdóttir, sauðfjárbóndi á bænum Möðruvöllum 3 í Hörgár­ sveit, en ærin Dúdda bar þar nýlega tveimur fallegum lömbum. „Þegar við vorum að fara yfir ærnar nýlega þá átti þessi ær að fá lit fyrir sláturfé. Hún var geld í vor og átti þess vegna ekki að fá líf. Ég tók undir hana og fann að það var komið mikið júgur. Ég hélt samt að hún mundi ekki bera fyrr en eftir viku til hálfan mánuð. Þegar við fórum í fjárhúsið daginn eftir þá var hún að bera. Það var bara haus sem kom og hann var orðinn bólginn og kaldur, en lambið á lífi. Ég komst inn með hálsinum og náði öðrum fætinum og tók það þannig út. Við vorum smá tíma að koma því af stað, en það tókst. Ég þurfti að ná í hitt lambið, því hausinn lá niður með. Það tókst vel og þeim heilsast vel en lömbin eru bæði gimbrar,“ segir Birgitta alsæl í sveitinni sinni. /MHH Hrossa- og folaldakjöt er takmörkuð auðlind – Tilefni til að bæta og breyta vinnsluaðferðum við meðferð á þessum kjötafurðum Undanfarin þrjú ár hefur Eva Margrét Jónudóttir, sérfræðing­ ur hjá Matís, unnið að rann­ sóknum á hrossa­ og folaldakjöti í tengslum við búvísindanám við Landbúnaðarháskóla Íslands og svo meistaranám í matvælafræði við Háskóla Íslands. Í sumar skilaði hún ritgerð til meistaragráðu þar sem hún varpar nýju ljósi á ástæð­ ur þess að geymsluþol hrossakjöts sé styttra en annars kjöts; sem er fyrst og fremst vegna ófullnægjandi verkunar og pökkunar á því. Líkast til eru þessar rannsókn- ir Evu á hrossakjöti einhverjar þær heildstæðustu sinnar tegundar sem ráðist hefur verið í hér á landi – og fjalla um eðli þessara kjötafurða og markaðsmöguleika. Í lokaverkefninu í búvísindanám- inu skoðaði hún viðhorf íslenskra neytenda gagnvart hrossakjöti og kauphegðun þeirra á slíkum kjötvör- um. Þar kom fram að slíkar kjötvörur virtust ekki nógu áberandi í verslun- um og ástæða fólks fyrir því að fólk vildi ekki smakka slíkt kjöt væri oft og tíðum tilfinningalegs eðlis. Í meistararitgerðinni var sjónum meira beint að rannsóknum á kjötgæðum hrossakjötsins og er niðurstaðan sú að folaldakjöt sé náttúrulega meyrt kjöt – meira að segja aðeins meyrara en lambakjöt við samanburð á lund og hryggvöðva – og meyrnar aðeins meira með auknum geymslutíma. Algengt að sjá brúna hrossakjötsbita í kjötborði Verkun og geymsla hrossakjöts var líka skoðað sérstaklega í meistararit- gerðinni. „Hrossakjöt er talsvert við- kvæmara fyrir þránun og upplitun en annað rautt kjöt sem við erum vön að sjá í kjötborðinu eins og kjöt af sauðfé og nautgripum til dæmis. Ástæðan er hátt hlutfall fjölómettaðra fitusýra og litarefni í vöðvarauða. Það er ekki óalgeng sjón í kjötborði að sjá brúnan bita af hrossakjöti við hliðina á fjölmörgum fagurrauðum steikum af annarri kjöttegund. Hrossakjöt er hreinlega of viðkvæmt til að þola sömu pökkunar- eða geymsluað- stæður og annað kjöt,“ segir Eva. „Hrossakjöt er í vissum skilningi hliðarafurð búgreina sem eru ekki með kjötframleiðslu sem aðalmark- mið, heldur þá frekar hrossarækt til framleiðslu reiðhesta eða lyfjafram- leiðslu. Það þýðir þó ekki að kjötið sé ekki af háum gæðum, síður en svo, og má færa rök fyrir því að hrossakjöt sé takmörkuð auðlind, enda ekki nema 3,4 prósent af heildar kjötframleiðslu í landinu.“ Meðhöndlun kjötsins ekki í lagi Að sögn Evu hefur hrossakjöt ekki verið áberandi í matvöruverslunum undanfarin ár eða áratugi, vöruúr- val verið lítið og framboð óstöðugt. „Þegar hrossakjöt er svo fáanlegt þá er ekki óalgengt að sjá kjötið á allt að 30–60 prósenta afslætti mjög fljót- lega eftir að kjötið kemur í búðina vegna þess hve geymsluþolið er stutt. Það er alveg óhætt að segja að geymsluþolið er svona stutt því með- höndlunin er ekki við hæfi. Fyrir svona vöru þá hentar hreinlega ekki að notast við smásölupakkningar eins og frauðplastbakka með þunnri teygjufilmu yfir, ef það á að geyma kjötið lengur en tvo daga. Eftir sex daga í þannig aðstæðum er kjötið orðið óhæft út af örveruvexti, svo ekki sé minnst á að liturinn er þá líka orðinn mjög óaðlaðandi eða albrúnn. Þar að auki eykst þráabragð með hverjum geymsludegi í þess háttar smásölupakkningum meðan þráa- bragð eða þráalykt er ekki til staðar ef aðstæður eru við hæfi,“ segir hún og nefnir nokkrar leiðir til úrbóta. „Bara við það að fullvinna kjötið strax í neytendaumbúðir við úrbein- ingu, lækka geymsluhitastig niður í mínus eina gráðu, takmarka aðgengi súrefnis að kjötinu með betri umbúð- um og útiloka ljós. Þannig er hægt að lengja geymsluþolið úr tveimur vikum í að minnsta kosti einn mánuð og allt upp í þrjá mánuði við bestu aðstæður.“ Þó svo frostmark vatns sé 0 gráður þá er kjöt ekki 100 prósent vatn og byrjar þar af leiðandi ekki að frjósa fyrr en það nálgast mínus tvær gráð- ur. Þess vegna telst kjöt sem geymt er við mínus eina gráðu vera ferskt, ófrosið kjöt.“ Mikilvægt að tryggja gæði og auka nýtingu Að sögn Evu eru margar einfaldar leiðir til að takmarka eða útiloka að ljós skíni á kjötið. „Ein leið er að pakka vörunni í lofttæmdar umbúðir á bakka og renna pappahólk yfir, eins og var gert við hrefnukjötið þegar það var fáanlegt. Kjarnafæði hefur einnig verið með umbúðir fyrir hrossakjöt til fyrirmyndar hvað þetta varðar; þar sem framhliðin á lofttæmdu pakkn- ingunni er svört en bakhliðin glær. Þannig skín ljós almennt ekki á kjötið en auðvelt fyrir neytandann að taka upp pakkninguna til að líta undir og skoða vöruna betur.“ Hún telur að meistararitgerðin sýni fram á að tilefni sé til að bæta og breyta vinnsluaðferðum við meðferð hrossakjöts, bæði til að tryggja gæði og auka nýtingu með minni afföllum og þá meiri arðsemi. „Það er að mínu mati alveg tilefnislaust að vera með þessa endalausu afslætti á hrossakjöti því það er ekki geymsluþolið sem er vandamálið heldur geymsluaðferð- irnar. Með því að aðlaga aðferðirnar að vörunni þá verður hún meira virði fyrir vikið.“ /smh Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 HAUGSUGU- DÆLUR 6,500 - 9,500 11,000 - 13,500 lítra HAUGSUGUHLUTIR VARAHLUTIR Eva Margrét Jónudóttir. Mynd / Unsplash - Wesual Click

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.