Bændablaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 2021 31
Þetta gekk frábærlega vel, betur en
ég nokkurn tíma þorði að vona,“
segir Hólmgeir Karlsson, sem
sýndi ljósmyndir í listaskálanum
á Brúnir horse í Eyjafjarðarsveit
tvær helgar í október. Myndirnar
voru til sölu og fór andvirðið í
að styrkja söfnun vegna smíði á
risakú sem verður nýtt kennileiti
í sveitarfélaginu.
Hólmgeir seldi 71 mynd og lagði
söfnuninni til 753.700 krónur. Alls
hafa safnast tæpar 4 milljónir króna
en heildarkostnaður við verkefnið
nemur um 5 milljónum króna.
Ljósmyndun hefur verið áhuga-
mál Hólmgeirs frá unga aldri og
hefur hann lengi gælt við að halda
sýningu á myndum sínum. „Ég hef
aldrei haft löngun til að selja mynd-
irnar mínar eða fá pening fyrir þær,
mér finnst svo mikið frelsi fólgið í
því að eiga ljósmyndun fyrir áhuga-
mál. Frelsið sem fylgir því að ekkert
reki mann áfram nema gleðin við
að taka góða mynd er mér svo dýr-
mætt,“ segir Hólmgeir.
Nýtt kennileiti í Eyjafjarðarsveit
Um skeið hefur verið unnið að því
að útbúa risakú, Eddu, og koma
fyrir sem nýju kennileiti í einu
helsta mjólkurframleiðsluhéraði
landsins. Hólmgeir segir fjár-
mögnun verksins byggja á því að
takist að safna fyrir smíðinni. „Mér
fannst söfnunin ekki ganga nógu
hratt og að hana vantaði athygli, þá
fékk ég þessa hugmynd að halda
sýningu, selja myndir og láta sölu-
andvirðið renna óskert til styrktar
smíði á Eddu,“ segir Hólmgeir,
sem ámálgaði hugmyndina við
Hugrúnu Hjörleifsdóttur og Einar
Gíslason á Brúnum. „Þau tóku
mér strax opnum örmum, lögðu
til sýningarsalinn og hjálpuðu
mér að láta hugmyndina verða að
veruleika.“ /MÞÞ
Thermomix®TM6
Það er ekkert mál
að elda frá grunni
ELDHÚSTÖFRAR EHF.
SÍÐUMÚLI 29 108 REYKJAVÍK
INFO@ELDHUSTOFRAR.IS
THERMOMIXICELAND
THERMOMIX Á ÍSLANDI
ICELAND.THERMOMIX.COM
LÍF&STARF
Framkvæmdastjóri Bústólpa liðtækur ljósmyndari:
Sýndi og seldi ljósmyndir og styrkti
smíði á risakúnni Eddu
Hólmgeir Karlsson við opnun sýningarinnar. Hann seldi 71 mynd og fékk
fyrir 753 þúsund krónur sem hann gefur í verkefni sem unnið er að í Eyja-
fjarðarsveit, smíði á risakú sem ber heitið Edda.
Svona er fyrirhugað að risakýrin Edda muni líta út.
Beate Stormo, eldsmiður í Kristnesi, ásmt Hólmgeiri á opnun sýningar-
innar á Brúnum um fyrri helgi. Beate smíðar Eddu, risakú sem verður nýtt
kennileiti í Eyjafjarðarsveit, og Hólmgeir styrkir smíðina með söluandvirði
ljósmynda sinna.
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
Lely Center Ísland
Landbúnaðarleikföng
Veitur á Suðurlandi í nýtt húsnæði
Veitur hafa tekið í notkun nýja
aðstöðu fyrir umfangsmikla starf-
semi sína á Suðurlandi.
Nýja byggingin, sem er í
Vorsabæ 9 í Hveragerði, gjörbylt-
ir aðstöðu starfsfólks sem býr og
starfar á Suðurlandi enda er það sér-
hannað fyrir veiturekstur samkvæmt
tilkynningu frá fyrirtækinu.
Heildarstærð hússins er 446 m2
sem skiptist í skrifstofuhluta og
verkstæðishluta, allt á einni hæð.
Í skrifstofuhlutanum eru skrif-
stofur, vinnuherbergi og fundarað-
staða auk kaffiaðstöðu fyrir starfs-
fólk og búningsherbergi.
Verkstæðishlutinn skiptist í lager
og almennt verkstæði með loftræsti-
klefa, tæknirými og inntaksrýmum.
Húsið er byggt af Viðskiptaviti
ehf. og skrifstofuhluti þess upp-
steyptur en iðnaðarhlutinn úr
burðarvirki úr límtré ásamt ylein-
ingum frá Límtré Vírnet. Mikil
áhersla var lögð á að hljóðvist
væri sem best og að auðvelt væri
að breyta skipulagi eða stækka
byggingu síðar. /MHH
Nýja húsið í Hveragerði er allt hið glæsilegasta og til mikils sóma fyrir Veitur.
Heildarkostnaður við byggingu hússins er um 290 milljónir króna.
Fjölmenni leit inn á opnun, gerði sér veitingar að góðu og skoðaði ljósmyndir.