Bændablaðið - 21.10.2021, Page 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 2021 35
Hrossabændur um allt land
óska eftir hryssum
Mega vera allt að fimmtán vetra
Greiðum 40.000 kr. án vsk. fyrir hryssuna
og sækjum frítt.
Hafið samband við okkur og við tengjum þig við næsta bónda
og aðstoðum við að ganga frá kaupunum.
Upplýsingar gefnar um netfangið hryssa@isteka.com eða í síma
581-4138 (9-15 virka daga)
Geymið auglýsinguna!
Hryssur eru greiddar eftir reikningi og eftir umskráningu í WorldFeng.
Steinsagir – Kjarnaborvélar – Gólfsagir
Allt fyrir
atvinnumanninn
MHG Verslun ehf / Víkurhvarfi 8 / 203 Kópavogi / S: 544-4656 / mhg.is
Husqvarna K770
Sögunardýpt 12,5cmDM400 kjarnaborvél
Hámark: 350mm LF75 LAT
Jarðvegsþjappa
Þjöppuþyngd 97 kg
Plata 50x57cm
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
FS400 LV
Sögunardýpt 16,5cm
K7000 Ring 27cm
Sögunardýpt 27cm
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR
gerðir dráttarvéla
TIL SÖLU - GEYMSLUR – HVERAGERÐI
Stærð 43,1 fm. Verð 11.900.000 kr.
Nánari upplýsingar hjá BYR FASTEIGNASÖLU
s. 483-5800
*verð miðast við að yfirtekin sé vsk kvöð að fjárhæð 1.700.000,-.
Ráðstefna Circumpolar Agricultural Association í Færeyjum:
Beina sjónum að jaðarsvæðum
landbúnaðar á norðurheimskauti
Framlag bænda á norðurslóðum
til áskorana sem fylgir loftslags-
breytingum geta skipt sköpum
bæði fyrir kolefnisbindingu jarð-
ar og fæðuframleiðslu í framtíð-
inni. Þótt áskoranir landbún-
aðar á jaðarsvæðum í norðri
séu fjölþættar munu veðurfars-
breytingar opna fyrir möguleika
og tækifæri sem rýna þarf í.
Tróndur Leivsson, yfirmaður
Landbúnaðarstofnunar Færeyja
og forseti samtakanna Circumpolar
Agricultural Association (CAA),
var á dögunum staddur hér á landi
til að taka þátt í pallborðsumræðum
um fæðuöryggi á norðurslóðum í
ljósi loftslagbreytinga á ráðstefn-
unni Arctic Circle í Hörpu.
„Sama hver ber ábyrgð á lofts-
lagsbreytingum, þá verðum við að
horfast í augu við þær. Það kom
mér á óvart þegar ég sótti Arctic
Circle árið 2018 að þar var nær
engin umræða um landbúnað í
því ljósi. Það er hins vegar ljóst
að veðurfarslegar breytingar munu
hafa áhrif á bæði plöntur og dýr,
en þær munu einnig leiða af sér
möguleika sem vert er að kanna,“
segir Tróndur og tekur dæmi um
fóðurplöntur.
„Þær eru ein áhrifaríkasta
kolefnisbinding sem við vitum um.
Þær nota sólarljósið, binda kolefni,
framleiða fóður sem dýrin nota sem
mennirnir nýta. Þá er ljóst að nýtt
landflæmi kallar á aðgerðir sem
geta byggt á aldarlangri reynslu
okkar í grasnytjum. Norðurslóðir
ættu að geta orðið leiðandi svæði
í því verkefni sem við stöndum
frammi fyrir.“
Þverfaglegur samstarfsvettvangur
Samtök jaðarsvæða landbúnaðar í
norðri, Circumpolar Agricultural
Association (CAA), voru stofnuð
árið 1995 en markmið þeirra er fyrst
og fremst að skipuleggja reglulegar
landbúnaðarráðstefnur.
Næsta samkoma mun fara fram
í Þórshöfn, höfuðborg Færeyja, í
byrjun júlí á næsta ári. Yfirskrift
ráðstefnunnar snýr að framlagi
búskapar á norðurslóðum til sjálf-
bærra staðbundinna lífhagkerfa.
Skapaður verður umræðuvett-
vangur um þá möguleika sem
opnast þegar ný landflæði skapast
vegna loftslagsbreytinga. Einnig
mun dagskráin innihalda málþing
um samspil ferðaþjónustu og stað-
bundinnar framleiðslu, möguleika
tæknivæðingar á aukið aðgengi að
mörkuðum sem og lýðfræðilega
dreifingu á norðurslóðum út frá
jafnrétti kynjanna.
Meðal aðalefnisþátta ráðstefn-
unnar eru plöntukynbætur og gena-
fjölbreytileiki. Tróndur segir það
nokkurt hitaefni enda sé nauðsyn-
legt að viðhalda og vernda erfðaefni
frá villtum forfeðrum þeirra nytja-
plantna sem jarðrækt byggir á í dag.
Ráðstefnan verður opin öllum
en Tróndur segist búast við að um
200 manns verði þar samankomin.
„Þetta er hvorki stíf vísindasamkoma
né pólitískur vettvangur, heldur góð
samsuða sem hefur það að markmiði
að stuðla að áhuga á landbúnaðar-
málum á norðurslóðum.“ /ghp
Tróndur Leivsson, yfirmaður Landbúnaðarstofnunar Færeyja og forseti
samtakanna Circumpolar Agricultural Association (CAA). Mynd/ghp
Réttað í Færeyjum. Mynd / MÓH