Bændablaðið - 21.10.2021, Page 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 2021 45
Bókaútgáfan Sæmundur hefur
gefið út barnabók eftir sauðfjár-
bóndann Guðríði Baldvinsdóttur,
í Lóni í Kelduhverfi, sem heitir
Drengurinn sem dó úr leiðindum.
Þetta er önnur barnabók Guðríðar,
en árið 2019 kom út bókin Sólskin
með vanillubragði, sem var saga um
stelpu og forystugimbrina hennar.
Að sögn Guðríðar er umfjöllun-
arefni bókarinnar vel þekkt hjá for-
eldrum barna á aldrinum í kringum
átta til 12 ára, sumsé togstreitan sem
myndast þegar foreldrar vilja draga
úr tölvu- og snjalltækjanotkuninni.
„Hugmyndin að sögunni kom ein-
hverju sinni þegar ég var að reyna
að koma böndum á þann tíma sem
börnin mín dvöldu við tölvuleiki,
YouTube-gláp og símahangs. Þá
varð einhverju þeirra að orði að þá
myndu þau deyja úr leiðindum.
Þá kviknaði hugmyndin um
drenginn sem dó úr leiðindum,
en átti bara að verða smásaga. En
þegar ég byrjaði að skrifa sá ég
fljótt að þessi litla hugmynd gæti
auðveldlega orðið að heilli bók,“
segir Guðríður.
Er hægt að deyja úr leiðindum?
Aðalpersóna bókarinnar heitir Kári
Hrafn, sem er venjulegasti tólf ára
strákur í heimi. Heimur hans hrynur
þegar foreldrar hans taka frá honum
öll snjalltæki og í staðinn fær hann
skærgulan farsíma sem hentar bara
risaeðlum. Þá er spurning hvort
hann hreinlega deyr úr leiðindum.
Guðríður segir að sagan fjalli fyrst
og fremst um vináttu, fjölskyldu
og allt annað milli himins og jarðar
sem skiptir máli.
Káputeikning er eftir dóttur
Guðríðar, Ásdísi Einarsdóttur,
en Guðríður naut einnig aðstoðar
Björns Ófeigs, sonar síns, sem ljáði
söguhetjunni Kára Hrafni rithönd
sína við skreytingar í bókinni.
Bókin er því sannkallað fjölskyldu-
verkefni.Hún segir að hún hafi nú
þegar fengið góð viðbrögð við
bókinni og hefur henni verið lýst
sem „æsispennandi og skemmtilega
óvenjuleg með frumlegum titli“.
Vænst þykir Guðríði um lofsam-
legan bókadóm Jóns Emils, 11 ára á
Kópaskeri, sem þótti bókin vera sú
næstbesta sem hann hafði lesið – á
eftir Harry Potter 3.
Næsta bók úr sveitaumhverfinu
„Eins og stór hluti íslensku þjóðar-
innar hefur mig lengi langað til að
skrifa bækur. Var alltaf að búa til
sögur í huganum frá því að ég man
eftir mér en lét verða af því að sækja
ritlistarnámskeiðið Úr neista í nýja
bók við Endurmenntun Háskóla
Íslands 2013. Á því kom kveikjan
og fyrsti kafli fyrstu bókarinnar
minnar, Sólskin með vanillubragði.
Bókarskrifin lágu svo í dvala í ein
fimm ár, en þá gróf ég fyrsta kaflann
upp og skrifaði bókina á nokkrum
mánuðum. Hún var svo gefin út hjá
Bókaútgáfunni Sæmundi 2019,“
segir Guðríður.
„Ég er endalaust með nýjar
hugmyndir að sögum í kollinum.
Næsta bók verður væntanlega úr
því umhverfi sem ég þekki best,
eins og fyrsta bókin, eða úr nútíma
sveitaumhverfi. Ég sé fyrir mér
spennusögu fyrir börn um dular-
full kindahvörf, æsilegar eftirleitir
og óveður.
Bókarskrif fara vel með sauð-
fjárbúskap, enda er veturinn frekar
rólegur í þeirri atvinnugrein. Verst
að ég er fyrir löngu búin að fylla
allan dauðan tíma vetrarins af
öðrum verkefnum, en þá er bara
að forgangsraða.“ /smh
Drengurinn sem dó úr leiðindum:
Ný barnabók úr
smiðju sauðfjárbónda
Guðríður Baldvinsdóttir, barnabóka-
höfundur og sauðfjárbóndi í Lóni í
Kelduhverfi.
BÆKUR& MENNING
HÁ verslun ehf tók við umboði Husqvarna byggingavörum á
Íslandi þann 11. júní.
• Steinsagir
• Kjarnaborvélar
• Jarðvegsþjöppur
• Sagarblöð
• Kjarnaborar
Víkurhvarfi 4 - 203 Kópavogur
Opið mán. - fös. kl. 8-17.
S. 588-0028
haverslun@haverslun.is
haverslun.is
Þjónustuverkstæði og varahlutir
Husqvarna K970
15,5 cm sögunardýpt
Husqvarna K3600
Vökvasög
Sögunardýpt 27cm
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Káputeikning er eftir dóttur Guðríðar, Ásdísi Einarsdóttur.
HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS https://www.bbl.is/hladan
líka hægt að lesa á bbl.is og Facebook
Smáauglýsingar 56-30-300