Bændablaðið - 21.10.2021, Side 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 202146
Einn söluhæsti bíll landsins síð-
ustu þrjú til fimm ár er 4X4 KIA
Sorento. KIA var fyrsti bíllinn
sem seldur er með 7 ára ábyrgð
á Íslandi sem gefur bílnum meira
traust og áreiðanleika.
Í byrjun árs 2021 kom KIA
Sorento sem plug in hybrid og sam-
kvæmt uppgefnum bæklingi á hann
að komast allt að 57 km á rafhlöð-
unni áður en bensínvélin tekur við.
Fyrir stuttu síðan fékk ég að prófa
þennan sjö manna fjórhjóla drifna
Hybrid bíl.
Besta hávaðamæling
í db. á bíl með bensínvél
Bíllinn sem prófaður var nefnist
KIA Sorento Plug-in-Hybrid og er
sjö manna bíll. Vélarnar eru tvær,
annars vegar 1,6 bensínvél + raf-
magnsmótor sem skila samanlagt
268 hestöflum, skiptingin er sex-
þrepa sjálfskipting.
Uppgefin drægni á rafhlöðunni,
sem er 13,8 kWh, er allt að 57 km
miðað við bestu aðstæður. Uppgefin
eldsneytiseyðsla í Hybrid bílum
er almennt svolítið villandi. Þá er
miðað við fullhlaðna rafhlöðu og
að bara sé keyrt 100 km og elds-
neytiseyðslan um 1,6 lítrar af bens-
íni við bestu aðstæður.
Þegar ég prófaði bílinn hafði
hann verið prófaður af nokkrum
viðskiptavinum KIA á undan mér
og þegar ég settist upp í bílinn voru
ekki nema nokkrir kílómetrar eftir
á rafhlöðunni og fljótlega tók bens-
ínvélin við.
Þegar bíllinn var hávaðamældur
(eins og allir aðrir bílar sem ég prófa
á sama stað á 90) var allt rafmagn
búið og því var bíllinn á bensín-
vélinni þegar mælt var. Mælingin
kom vel út og mældist hávaðinn
inni í bílnum ekki nema 65,8 db.
Með þessari lágu mælingu komst
Sorento í topp 10 af öllum bílum.
Held reyndar að þetta sé besta mæl-
ing á bíl með bensínvél sem ég hef
keyrt.
Fjöðrun góð
á holóttum malarvegi
Eins og áður hefur komið fram þá
var ég fljótur að klára rafmagnið, en
í innanbæjarumferðinni hlóðst inn á
rafhlöðuna lítilræði af rafmagni sem
hjálpaði við að spara bensín. Eftir
rúman 50 km akstur innanbæjar
var mín bensíneyðsla ekki nema
8,6 lítrar miðað við 100 km akstur.
Næst var það langkeyrsla með
malarvegaprófun í leiðinni og í
langkeyrslunni sagði aksturstölvan
að ég hefði verið að eyða 6,8 lítrum
á hundraðið.
Inni í þessari keyrslu var um 10
km malarvegaakstur þar sem ekki
var verið að hugsa um sparakstur
sérstaklega þegar verið var að prófa
fjöðrun og grip í beygjum á holótt-
um malarveginum. Í langkeyrslunni
var lítið stigið á bremsur og hjálpaði
rafmagnsmótorinn lítið við að spara
bensín.
Fjöðrunin kom vel út á malarveg-
inum, en 19 tommu dekkin gáfu litla
fjöðrun. Ef mikið er keyrt á möl og
í snjó þá væri betra að vera með 17
tommu felgur til að fá mýkri fjöðr-
un. Á malbikinu koma 19 tommu
dekkin vel út og hreinn unaður að
beita bílnum ákveðið í beygjum því
gripið var svipað og í sportbíl.
Mikið lagt upp úr þægindum
og öryggi
Bíllinn er hlaðinn aukabúnaði til
þæginda bæði fyrir ökumann og
farþega, en eins og í flestum bílum
er akreinalesari, árekstravari, hiti
í stýri, gott útvarp og 12,3 tommu
skjár fyrir bakkmyndavél. Fótarými
er mjög gott í fram- og miðsætum,
en aðeins síðra í öftustu tveim.
Það sama gildir um sætin, þau eru
öll góð nema öftustu tvö sem mér
fannst ekkert gott að sitja í.
Í bílnum er varadekk sem ég kalla
„aumingja“, lítið mjótt dekk sem er
undir bílnum að aftan, en varadekk
samt, því að í flestum Hybrid bílum
er ekkert varadekk. Dekkið er ekki
staðsett á skemmtilegasta stað því
þegar springur hjá manni er alltaf
leiðinlegt veður, maður í sparifötun-
um og að flýta sér.
Séu öftustu tvö sætin niðurfelld
er farangursrýmið mjög stórt. Svo
stórt að við fyrstu sýn virðist hægt
að koma þar golfsetti langsum.
Lokaorð, fínn bíll
og gott að keyra
Það hjálpar örugglega KIA í vin-
sældunum að það eru ekki margir
mínusar sem maður finnur í Sorento.
Helst væri það verðið. Sorento kostar
frá 8.590.777 upp í 10.990.777, en á
móti því kemur 7 ára ábyrgð KIA.
Eini alvarlegi mínusinn er að
þessi Hybrid bíll mun hækka í
verði um næstu áramót þegar
breyt ing verður á virðisauka skatti
Hybrid bíla á Íslandi. Samkvæmt
mínum útreikningum er það hækkun
yfir 500.000 og það eru bara tveir
mánuðir til áramóta þannig að nú
þarf að hugsa hratt, „annaðhvort að
kaupa núna eða strax“.
Nánar er hægt að fræðast um KIA
Sorento á vefsíðunni www.kia.is.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Kia Sorento fór í topp 10 í hávaða-
mælingunni.
Þyngd 2.099 kg
Hæð 1.700 mm
Breidd 1.900 mm
Lengd 4.810mm
Helstu mál og upplýsingar
KIA Sorento plug-in-Hybrid. Myndir / HLJ
Muna að hafa ljósatakkann alltaf kveiktan. Ef öftustu tvö sætin eru niðri er farangursrýmið með stærstu farangurs-
rýmum sem eru í bílum.
Til að ljósin séu alltaf rétt á bílnum í akstri er
best að hafa ljósatakkann alltaf svona.
Þrjár stillingar á skiptingunni og aðrar 3 fyrir
undirlag.
19 tommu dekkin voru ekki að gefa mikla fjöðr-
un á holóttum malarveginum, plássið leyfir
minni felgur.
Sorento er með varadekk sem oft nefnist
aumingi.