Bændablaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 202146 Einn söluhæsti bíll landsins síð- ustu þrjú til fimm ár er 4X4 KIA Sorento. KIA var fyrsti bíllinn sem seldur er með 7 ára ábyrgð á Íslandi sem gefur bílnum meira traust og áreiðanleika. Í byrjun árs 2021 kom KIA Sorento sem plug in hybrid og sam- kvæmt uppgefnum bæklingi á hann að komast allt að 57 km á rafhlöð- unni áður en bensínvélin tekur við. Fyrir stuttu síðan fékk ég að prófa þennan sjö manna fjórhjóla drifna Hybrid bíl. Besta hávaðamæling í db. á bíl með bensínvél Bíllinn sem prófaður var nefnist KIA Sorento Plug-in-Hybrid og er sjö manna bíll. Vélarnar eru tvær, annars vegar 1,6 bensínvél + raf- magnsmótor sem skila samanlagt 268 hestöflum, skiptingin er sex- þrepa sjálfskipting. Uppgefin drægni á rafhlöðunni, sem er 13,8 kWh, er allt að 57 km miðað við bestu aðstæður. Uppgefin eldsneytiseyðsla í Hybrid bílum er almennt svolítið villandi. Þá er miðað við fullhlaðna rafhlöðu og að bara sé keyrt 100 km og elds- neytiseyðslan um 1,6 lítrar af bens- íni við bestu aðstæður. Þegar ég prófaði bílinn hafði hann verið prófaður af nokkrum viðskiptavinum KIA á undan mér og þegar ég settist upp í bílinn voru ekki nema nokkrir kílómetrar eftir á rafhlöðunni og fljótlega tók bens- ínvélin við. Þegar bíllinn var hávaðamældur (eins og allir aðrir bílar sem ég prófa á sama stað á 90) var allt rafmagn búið og því var bíllinn á bensín- vélinni þegar mælt var. Mælingin kom vel út og mældist hávaðinn inni í bílnum ekki nema 65,8 db. Með þessari lágu mælingu komst Sorento í topp 10 af öllum bílum. Held reyndar að þetta sé besta mæl- ing á bíl með bensínvél sem ég hef keyrt. Fjöðrun góð á holóttum malarvegi Eins og áður hefur komið fram þá var ég fljótur að klára rafmagnið, en í innanbæjarumferðinni hlóðst inn á rafhlöðuna lítilræði af rafmagni sem hjálpaði við að spara bensín. Eftir rúman 50 km akstur innanbæjar var mín bensíneyðsla ekki nema 8,6 lítrar miðað við 100 km akstur. Næst var það langkeyrsla með malarvegaprófun í leiðinni og í langkeyrslunni sagði aksturstölvan að ég hefði verið að eyða 6,8 lítrum á hundraðið. Inni í þessari keyrslu var um 10 km malarvegaakstur þar sem ekki var verið að hugsa um sparakstur sérstaklega þegar verið var að prófa fjöðrun og grip í beygjum á holótt- um malarveginum. Í langkeyrslunni var lítið stigið á bremsur og hjálpaði rafmagnsmótorinn lítið við að spara bensín. Fjöðrunin kom vel út á malarveg- inum, en 19 tommu dekkin gáfu litla fjöðrun. Ef mikið er keyrt á möl og í snjó þá væri betra að vera með 17 tommu felgur til að fá mýkri fjöðr- un. Á malbikinu koma 19 tommu dekkin vel út og hreinn unaður að beita bílnum ákveðið í beygjum því gripið var svipað og í sportbíl. Mikið lagt upp úr þægindum og öryggi Bíllinn er hlaðinn aukabúnaði til þæginda bæði fyrir ökumann og farþega, en eins og í flestum bílum er akreinalesari, árekstravari, hiti í stýri, gott útvarp og 12,3 tommu skjár fyrir bakkmyndavél. Fótarými er mjög gott í fram- og miðsætum, en aðeins síðra í öftustu tveim. Það sama gildir um sætin, þau eru öll góð nema öftustu tvö sem mér fannst ekkert gott að sitja í. Í bílnum er varadekk sem ég kalla „aumingja“, lítið mjótt dekk sem er undir bílnum að aftan, en varadekk samt, því að í flestum Hybrid bílum er ekkert varadekk. Dekkið er ekki staðsett á skemmtilegasta stað því þegar springur hjá manni er alltaf leiðinlegt veður, maður í sparifötun- um og að flýta sér. Séu öftustu tvö sætin niðurfelld er farangursrýmið mjög stórt. Svo stórt að við fyrstu sýn virðist hægt að koma þar golfsetti langsum. Lokaorð, fínn bíll og gott að keyra Það hjálpar örugglega KIA í vin- sældunum að það eru ekki margir mínusar sem maður finnur í Sorento. Helst væri það verðið. Sorento kostar frá 8.590.777 upp í 10.990.777, en á móti því kemur 7 ára ábyrgð KIA. Eini alvarlegi mínusinn er að þessi Hybrid bíll mun hækka í verði um næstu áramót þegar breyt ing verður á virðisauka skatti Hybrid bíla á Íslandi. Samkvæmt mínum útreikningum er það hækkun yfir 500.000 og það eru bara tveir mánuðir til áramóta þannig að nú þarf að hugsa hratt, „annaðhvort að kaupa núna eða strax“. Nánar er hægt að fræðast um KIA Sorento á vefsíðunni www.kia.is. VÉLABÁSINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Kia Sorento fór í topp 10 í hávaða- mælingunni. Þyngd 2.099 kg Hæð 1.700 mm Breidd 1.900 mm Lengd 4.810mm Helstu mál og upplýsingar KIA Sorento plug-in-Hybrid. Myndir / HLJ Muna að hafa ljósatakkann alltaf kveiktan. Ef öftustu tvö sætin eru niðri er farangursrýmið með stærstu farangurs- rýmum sem eru í bílum. Til að ljósin séu alltaf rétt á bílnum í akstri er best að hafa ljósatakkann alltaf svona. Þrjár stillingar á skiptingunni og aðrar 3 fyrir undirlag. 19 tommu dekkin voru ekki að gefa mikla fjöðr- un á holóttum malarveginum, plássið leyfir minni felgur. Sorento er með varadekk sem oft nefnist aumingi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.