Sjálfsbjörg - 01.07.1972, Blaðsíða 4
En þegar málin eru komin á dagskrá,
sýnir sig, að það er allra hagur að not-
færa sér getuna, sem þekking og tækni
nútímans býður til að jafna svo um mun-
ar aðstöðumuninn, sem af örkumlun staf-
ar. Lífshamingja einstaklingsins, sem í hlut
á, og hagur samfélagsins, sem hann telst
til, fara í þessu efni svo algerlega saman,
að á betra verður ekki kosið.
Hugmyndin um velferðarþjóðfélag bygg-
ist einmitt á því, að hið forna og til
skamms tíma virðingarverða góðgerða-
sjónarmið, er úrelt í samfélagi nútímans.
Það sem þar er unnið í þágu hópsins,,
sem þarfnast sérstakrar fyrirgreiðslu og
umönnunar til að gerast sjálfbjarga, á
ekkert skylt við gustukaverk. Samfélags-
ráðstafanir, sem miða að því að veita þeim,
sem við bæklun búa, skilyrði til að sjá
sér farborða og taka þátt í þjóðlífinu, miða
að velferð samfélagsins alls. Þeirra vegna
verður heildin auðugri bæði af lífsham-
ingju og lífsgæðum en ella.
En það er nokkuð undir hælinn lagt,
hvort nýtt eru úrræði, sem til boða standa
til að greiða götu fólks, sem ekki er heilt
heilsu, ef skortir aðila, sem lítur á það
sem sérstakt hlutverk sitt að vekja bæði
athygli á þörfinni, sem um er að ræða og
úrbótum, sem völ er á til að fullnægja
henni. Sjálfsbjörg hefur tekið að sér þetta
verkefni og rækt það af dugnaði. En á
slíku starfi getur aldrei orðið lát eðli máls-
ins samkvæmt, því stöðugt breytast þarf-
irnar og nýir möguleikar koma í ljós.
Starf Sjálfsbjargar hefur hingað til og
verður áfram nauðsynlegur þáttur í sókn
íslendinga til bættra samfélagshátta og
hamingjuríkara þjóðlífs.
Magnús T. Ólafsson.
Efnisyfirlii:
Magnús Torfi Ólafsson: Ávarp .............. bls. 3
Adda Bára Sigfúsdóttir: Almannatryggingar
og öryrkjar ............................... — 3
Unnur Guttormsdóttir: Halliwick-aðferðin .. — 7
Tor-Albert Henni: Foreldrafræðsla ........... — 10
Þorsteinn Sigurðsson: Skóli fyrir hreyfi-
hamlaða ................................... — 13
Kristján frá Djúpalæk: Styrjöldin við flóna — 16
14. þingið .................................. — 20
Trausti Sigurlaugsson: Vinnu- og dvalar-
heimilið .................................. — 26
Bréf frá Pálínu frænku ...................... — 28
8. þing Bandalags fatlaðra á Norðurlöndum — 32
Spjallað í spaugi ......................... — 34
Limasmíðaverkstæði Arnórs Halldórssonar . — 36
Stoðtækjaverkstæðið Össur hf............... — 37
Ólafur Júliusson: Skipulag með tilliti til
fatlaðra ................................ — 38
Vinningaskrá .............................. — 42
Stafaþraut ................................ — 45
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra ........ — 31
Forsíðuteikning: Bjarni Jónsson listmálari.
Forsíðumynd: Gerde Malcow.
4 ,9 JÁLFSBJÖRG