Sjálfsbjörg - 01.07.1972, Blaðsíða 35
dögum er einnig sungið við athöfnina og
gengið um með samskotabauk á eftir. Það
mundi gleðja mig mjög mikið, ef ég mætti
útvega yður eitt af beztu sætunum. Ég
er reiðubúinn að veita yður alla þá aðstoð,
sem mér er framast unnt.
P.S. Konan mín og ég höfum því miður
ekki komið þarna í átta mánuði og tekur
okkur það mjög sárt. En leiðin er svo
löng.
Úr gamalli prédikun.
Vér erum þær andlegu mýsnar, en djöf-
ullinn sá helvízki kötturinn, sem snasar og
snúsar inn í veggjaholur sálarinnar. Tök-
um því skónál skynseminnar, þræðum á
hana þráð þrenningarinnar, tökum svo
lepp trúarinnar og saumum fyrir vorar
andlegu sálarholur, því að þar sem leppur
trúarinnar er fyrir saumaður, kann djöf-
ullinn ekki inn að komast að eilífu.
Skotinn: „Hún er of dýr. Hafið þér enga
á 2 pence?“
Garðyrkjum.: ,,Jú, þessa getið þér feng-
ið fyrir 2 pence.“
Skotinn: „Ágætt, hér eru 2 pence, en
skerið hana ekki af greininni. Ég kem
eftir tvær vikur og sæki hana.“
Spurning: Hvers vegna varð Sakarías
mállaus ?
Svar: „Engill birtist honum og sagði að
hann myndi fæða son. Þá varð Sakarías
mállaus.”
Á knattspyrnukappleik milli Skotlands
og Wales veltu tveir áhorfendur því fyrir
sér, hvaðan sá þriðji væri, því að hann
hafði ekki á nokkurn hátt gefið til kynna
með hvoru liðinu hann hélt.
„Ekki er hann frá Wales,“ sagði annar,
„þá hefði hann hrópað.“
„Og ekki er hann Skoti,“ sagði hinn, því
að hann hefur keypt leikskrá!"
Skoti kom inn í gróðurhús til að kaupa
gúrku.
Garæðyrkjum.: „Hér er ein, sem kostar
5 pence.“
SJÁLFSBJÖRG 35