Sjálfsbjörg - 01.07.1972, Blaðsíða 32
r--------------^
8. þing
Bandalags fatl-
aðra á Norður-
löndum
Ólöf Ríkaiðsdóttir flytur skýrslu Sjálfsbjargar.
Áttunda þing Bandalags fatlaðra á Norð-
urlöndum var haldið í Danmörku, dagana
28. júní til 2. júlí s. 1. Mótsstaður var Geels-
gárd skóli í nágrenni Kaupmannahafnar,
en hann er heimavistarskóli fyrir fötluð
börn.
Þátttakendur héðan voru 26 talsins,
Sjálfsbjargarfélagar víðsvegar af land-
inu.
Þingsetning fór fram í Kristjánsborgar-
höll í Kaupmannahöfn og setningarræð-
una flutti félagsmálaráðherra Danmerk-
ur, Eva Gredal. Ráðherrann lét í Ijós að-
dáun á samheldni og samvinnu öryrkja-
félaganna á Norðurlöndum og hinu virka
starfi félaganna sjálfra. I því sambandi
benti hún á þá miklu hættu í nútíma þjóð-
félagi, að mikill hluti þegnanna er að verða
andlega staðlaður, ef svo má að orði kom-
ast. — Auk ræðu félagsmálaráðherra,
fluttu formenn aðildarfélaganna og fram-
kvæmdastjóri bandalagsins, ávörp.
Að lokinni setningarathöfn bauð félags-
máiaráðherra fulltrúum til hádegisverðar.
Síðan sátu fulltrúar einnig veizlu í ráð-
húsi Kaupmannahafnar í boði borgar-
stjóra.
Dagskrá þingsins var mjög f jölbreytt og
skiptust á fyrirlestrar og umræður um hin
fjölþættu hagsmunamál fatlaðra.
Hópurinn heimsótti nýtt og fullkomið
vistheimili fyrir fatlaða og einnig var
skoðuð hjálpartækjadeild, sem opnuð var
á þessu ári í húsakynnum Landssambands
fatlaðra í Kaupmannahöfn.
Það var ákveðið á þessu þingi, að banda-
lagið breytti um nafn og heitir það nú
Nordiska Handikappförbundet, en banda-
lagið er yfirleitt nefnt á sænsku. Gamla
nafnið, Vanföras Nordiska Invalidor-
32 SJÁLFSBJÖRG