Sjálfsbjörg - 01.07.1972, Blaðsíða 27
er að taka það fram hér, að aðeins þeir ein-
staklingar koma til greina, sem hafa ferli-
vist, en þarfnast verulegrar aðstoðar vegna
fötlunar.
Að öðru jöfnu sitja þeir fyrir um dvöl,
sem eru á aldrinum 16—60 ára. Öllum um-
sóknum verður svarað bréflega, eftir að
úthlutun hefur farið fram.
í júní s. 1. hófust framkvæmdir við
íbúðaálmuna (C-álmu), en þar verða 12
tveggja herbergja íbúðir, 24 einstakl-
ingsíbúðir, félagsheimili
Sjálfsbjargar í Reykjavík,
skrifstofur fyrir landssam-
bandið, félagið í Reykja-
vík og húsið, vinnustofa,
lítil verzlun o. fl. Verkið
hefur gengið mjög vel og
er gert ráð fyrir að húsið
verði fokhelt snemma á
næsta ári. I þennan hluta
byggingarinnar hefur Hús-
næðismálastofnun ríkisins
samþykkt að veita sam-
tökunum lán að upphæð
kr. 18.000.000, eða krón-
ur 500.000.00 á hverja
íbúð. Yfirsmiður er Guðmundur Jóhanns-
son, húsasmíðameistari, en hann hefur
verið eftirlitsmaður byggingarinnar frá
því að framkvæmdir við dvalarheimilið
hófust, um áramótin 1966—’67.
Gervilimaverkstæði Össurar Kristins-
sonar hóf starfsemi sína 1. október 1971.
Þar vinna nú fjórir menn og hefur verk-
stæðið yfir að ráða fullkomnum vélakosti.
Framleiddir eru gervilimir, stoðtæki,
stuðningsbelti fyrir bakveikt fólk, innlegg
í skó og margt fleira.
I vor og sumar hefur bílastæði og lóð
við aðalinngang verið lagfærð og verður
væntanlega gengið frá lóðinni í haust.
I febrúar s. 1. gerði Teiknistofan s/f,
Ármúla 6, Reykjavík, kostnaðaráætlun
fyrir að ljúka byggingaframkvæmdum við
Vinnu- og dvalarheimilið. Kostnaður þessi
skiptist þannig milli deilda:
FRAMHALD á bls. Jf3.
SJÁLFSBJÖRG 27