Sjálfsbjörg - 01.07.1972, Blaðsíða 24
eftirgjöf aðflutningsgjalda ekki lægri en
sem svarar aðflutningsgjöldum af bifreið-
um, sem nú kosta um kr. 350.000.00 og
endurveiting verði á f jögurra ára fresti.
3. Öryrkjar hafi frjálst val bifreiðateg-
unda.
4. Öll þau hjálpartæki, sem fatlaðir
þurfa að nota í bifreiðum sínum, verði
greidd eins og önnur nauðsynleg hjálpar-
tæki þeirra, þar með talin sjálfskipting,
vökvastýri og aflhemlar.
5. Tryggingastofnun ríkisins veiti líf-
eyrisþegum vaxtalaus lán til bifreiða-
kaupa og vexti af lánum til annarra ör-
yrkja verði lækkaðir verulega frá því sem
nú er. Lánin verði a. m. k. kr. 100.000.00,
eða nemi 1/3 af andvirði bifreiðarinnar,
að frádreginni eftirgjöf og verði þau veitt
a. m. k. til 5 ára.
6. Vegna þeirrar nauðsynjar fatlaðs
fólks að eiga bifreið, beinir þingið þeirri
áskorun til skattayfirvalda, að rekstrar-
kostnaður og afskriftir bifreiða þeirra
verði frádráttarbær við álagningu tekju-
útsvars og tekjuskatts og verði þar um
settar ákveðnar reglur.
7. Tekjulitlum lífeyrisþegum verði veitt-
ur sérstakur styrkur til reksturs eigin bif-
reiðar.
8. Þingið ályktar að beina því til við-
komandi ráðuneytis, að ekki verði reikn-
aður söluskattur af eftirgefnum aðflutn-
ingsgjöldum til öryrkja, heldur leggist
hann við eftirgjafarupphæðina og fyrnist
á sama tíma og hún. — Þá verði bifreiða-
umboðum eigi heldur heimilt að leggja
álagningarprósentur á eftirgjafarupphæð-
ina.
9. Þungaskattur af bifreiðum lífeyris-
þega verði felldur niður.
Félagsmál.
1. Lögð verði áherzla á stofnun nýrra
félagsdeilda. Einkum verði kannaður
grundvöllur á stofnun deilda á Austurlandi
og Snæfellsnesi.
2. Landssambandið haldi áfram að
styrkja fólk til náms í sjúkraþjálfun og
öðru því námi, sem snertir endurhæfingu,
enda njóti það starfskrafta þess að námi
loknu eftir samkomulagi, ella verði styrk-
urinn endurgreiddur.
3. Unnið verði að því, að öryrkjar
njóti sérstakra lánakjara til húsbygginga.
Þingið fagnar þeim breytingum, sem gerð-
ar hafa verið á lögum um Húsnæðismála-
stofnun ríkisins, varðandi lán til breytinga
á gömlu húsnæði öryrkja. Hvetur þingið
sambandsstjórn til að fylgjast vel með
samningu væntanlegrar reglugerðar um
þetta efni.
4. Félagsdeildirnar eru hvattar til þess
að kynna starfsemi sína með fréttatil-
kynningum og auglýsingum í fjölmiðl-
um.
5. Félagsdeildirnar leitist við að hafa
samband við bæjar- og sveitarstjórnir,
hver á sínum stað og kynni þeim kröfum
fatlaðra og starfsemi samtakanna.
6. Framkvæmdaráð og stjórnir allra fé-
laganna sjái um, að alþjóðadagur fatlaðra
verði haldinn hátíðlegur ár hvert, til þess
að minna á samtökin.
7. Þingið beinir því til framkvæmda-
ráðs að kaupa eða láta framleiða alþjóða-
merki fatlaðra úr varanlegu efni og merkja
með því þá staði á landinu, hótel, samkomu-
hús o. s. frv., sem að mati samtakanna
teljast eiga skilið að hljóta þá viðurkenn-
ingu.
8. Þingið fagnar þeim hugmyndum, sem
fram hafa komið um íþróttaiðkanir fatl-
24 SJÁLFSBJÖRG