Sjálfsbjörg - 01.07.1972, Síða 9

Sjálfsbjörg - 01.07.1972, Síða 9
McMillans. Yfirleitt áttar fólk sig ekki á því, að mun auðveldara er að synda á baki en bringu, vegna þess að þá snúa vitin frá vatninu og öndun verður léttari, en þegar sund- maðurinn þarf að basla við að halda höfð- inu upp úr á bringusundi. McMillan hefur haldið sundnámskeið víða um heim við góðan orðstí. Alls konar fólk sækir þessi námskeið hans, til að ger- ast leiðbeinendur, t. d. íþróttakennarar, sjúkraþjálfarar, foreldrar fatlaðra barna og annað áhugafólk. Vonumst við til að geta fengið McMillan hingað til lands áður en langt um líður, til þess að kenna okkur Halliwick-aðferð- ina. 10) Lokastigið er svo stundtök, sem þró- ast hafa upp úr 9. atriði. Þessi sundtök eru mjög einstaklingsbundin og fara eftir fötlun hvers og eins og nást aðeins eftir mikla þjálfun (5. mynd). Þá er hinu langþráða takmarki náð: Nemandinn er syndur. Með þessari aðferð McMillans er ætlun- in að allir yfir fjögurra ára aldri geti lært að synda. Eins og þegar er ljóst af fram- anskráðu, styðst hver nemandi við leið- beinanda í staðinn fyrir flottól þau, sem hingað til hafa verið notuð við sund- kennslu (6.-7. mynd). Þar af leiðir að Halliwick-aðferðin er ákaflega mannfrek, þegar einnig er tekið tillit til þess, að yfirleitt er kennt í hópum. Þess ber þó að geta, að þessi kennsluaðferð tekur marg- falt skemmri tíma en hin hefðbundna. — Hópkennslan er afar f jörleg, því að mikið er notast við alls konar keppnisform og taktfasta leiki með söng. Annað, sem skil- ur Halliwick-aðferðina frá hefðbundinni sundkennslu, er að nemandinn lærir bak- sund, áður en kennsla í bringusundi hefst. 6.—7. mynd: Grip það, er Ieiðbeinandi notar til aðstoðar nemanda. Haldið er flötum Iófa við neð- anverð herðablöð. SJÁLFSBJÖRG 9

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.