Skessuhorn - 18.05.2022, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 202224
Nýverið lauk námsáfanganum Staf
ræn list í Menntaskóla Borgar
fjarðar, en í þeim áfanga fá nem
endur tækifæri til að vinna í vinnu
stofu listamanns og setja upp sýn
ingu fyrir almenning á verkum sín
um. Það var Michelle Bird mynd
listarkona sem sá um námskeiðið,
en hún er með vinnustofu í Borgar
nesi. Hjá henni lærðu nemend
ur m.a. að teikna andlit og fígúrur,
landslag og sögur í myndum með
hefðbundnum listaðferðum og síð
an stafrænt með spjaldtölvum sín
um. Sett var upp sýning í skólan
um á verkum nemenda í lokin og
stendur hún einhverja næstu daga.
Kjósendur sem kusu í Menntaskól
anum (Hjálmakletti) á kjördag gátu
t.d. notið listaverkanna um leið og
þeir komu til að kjósa. Á meðfylgj
andi myndum má sjá sýninguna og
nokkur verkanna.
gj
Sigurður Ingi Jóhannsson innviða
ráðherra hefur skipað Aðalstein
Þorsteinsson í embætti skrifstofu
stjóra sveitarfélaga og byggðamála í
ráðuneytinu. Aðalsteinn var valinn
úr hópi margra hæfra umsækjenda
að fengnum tillögum frá ráðgef
andi hæfnisnefnd. Hann mun taka
við embættinu 1. júní næstkom
andi. Frá 2002 hefur hann starfað
sem forstjóri Byggðastofnunar og á
þeim tíma leitt stofnunina í gegnum
umtalsverðar breytingar. Að beiðni
ráðherra tók hann tímabundið við
starfi forstjóra Þjóðskrár Íslands og
hefur gegnt því embætti frá 1. febr
úar síðastliðnum.
Aðalsteinn er úr Stykkis
hólmi, lögfræðingur að mennt og
lauk embættisprófi frá lagadeild
Háskóla Íslands árið 1993. Hann
hefur jafnframt lokið námi í opin
berri stjórnsýslu fyrir stjórnendur
í opinberum rekstri frá sama skóla.
Arnar Már Elíasson settur forstjóri
Byggðastofnunar mun áfram sinna
því starfi þar til ráðinn verður nýr
forstjóri. Jafnframt verður Hildur
Ragnars sett tímabundið forstjóri
Þjóðskrár Íslands til 1. ágúst næst
komandi.
mm
Útskriftarnemendur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga brugðu á
leik fimmtudaginn 12. maí þegar þeir fögnuðu lokametrunum á
skólagöngunni. Þá klæddu þau sig upp sem kúreka og báru for
láta vatnsbyssur sér til varnar. Einhverjir samnemendur fengu að
kenna á því og blotnuðu aðeins en var fyrirgefið. Þá var nem
endum boðið í vöfflukaffi á kennarastofunni eins og hefð er fyr
ir áður en skóladagurinn var á enda. Um kvöldið var svo lokaball
þar sem nemendur dönsuðu fram á nótt. Útskrift úr Fjölbrauta
skóla Snæfellinga verður svo 27. maí næstkomandi. tfk
Mynd eftir Caroline M. Bjarnarson
Að fanga listina stafrænt
Sýningin í Hjálmakletti. Isobel Líf Diaz gerði þessa mynd.
Jóhannes Lind Hilmarsson gerði þessa stafrænu mynd.
Aðalsteinn
í innviðina
Dimmiterað í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Hópurinn stillti sér upp fyrir
ljósmyndara Skessuhorns.