Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.2021, Side 39

Læknablaðið - 01.03.2021, Side 39
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 151 Síðan byrjað var að bólusetja fyrir COVID-19 þann 29. desember 2020 og fram til 16. febrúar 2021 hafa 307 tilkynn- ingar borist til Lyfjastofnunar vegna gruns um aukaverkun. Slíkar tilkynn- ingar þarf að setja í samhengi við hversu margir hafa verið bólusettir, en einnig þá hópa sem hafa fengið bólusetningu. Á vef- síðunni covid.is má sjá tölulegar upplýs- ingar um fjölda, aldursdreifingu og tíma- setningu bólusetninga með þeim þremur bóluefnum sem hafa fengið markaðsleyfi á Íslandi.1 Fyrstu bólusetningar voru með bóluefni Pfizers og nú hafa tæplega 16.000 manns fengið að minnsta kosti eina bólu- setningu með bóluefni Pfizers, 1312 með bóluefni Moderna og 1209 með bóluefni AstraZeneca. Vinnsla þessara aukaverkanatilkynn- inga er í forgangi hjá Lyfjastofnun svo hægt sé að meta nýjar upplýsingar um öryggi lyfjanna hratt og örugglega. Fyrsta öryggisskýrsla vegna bóluefnis Pfizers, fyrir tímabilið 1.-31. desember 2020, kom út í janúar síðastliðnum. Þar var meðal annars farið yfir þær aukaverkanatilkynn- ingar sem höfðu borist og hvort einhverjar vísbendingar væru um nýjar eða óvæntar aukaverkanir eftir notkun bóluefnisins og orsakasamband metið. Ekkert óvænt kom út úr því mati og niðurstaðan var að hlutfallið milli ávinnings og áhættu væri ennþá jákvætt. Þær tilkynningar sem berast frá Íslandi eru teknar með í slíkt mat og því er mjög mikilvægt að tilkynna ef grunur vaknar varðandi aukaverkanir eftir bólusetningu. Sérstaklega mikilvægt er að tilkynna ef aukaverkun telst alvarleg eða ef ný eða óvænt einkenni koma fram. Fyrstu skýrslu varðandi Moderna-bólu- efnið er að vænta og sömuleiðis næstu skýrslu fyrir bóluefni Pfizers, en matið fer fram mánaðarlega fyrst um sinn. Miklar umræður um aukaverkanatil- kynningar vegna bóluefnanna hafa vakið athygli í fréttum og er það von okkar að þetta hafi vakið athygli á mikilvægi þess að tilkynna aukaverkanir til Lyfjastofn- unar. Án tilkynninga tekur lengri tíma að safna upplýsingum um ný lyf á markaði. 1. covid.is/tolulegar-upplysingar-boluefni - febrúar 2021 F R Á L Y F J A S T O F N U N COVID-19- bóluefni og aukaverkanir Mynd 1. Fjöldi tilkynninga fyrir bóluefni frá Pfizer, AstraZeneca og Moderna. Flestar tilkynningarnar koma frá heilbrigðisstarfsfólki vegna bólusetningar með bóluefni Pfizers. Það rímar vel við að heilbrigðisstarfsfólk og fólk á dvalar- og elliheimilum voru í fyrstu forgangshópum og bólusett með bóluefni Pfizers. Mynd 2. Fjöldi tilkynninga um aukaverkun eftir starfsstéttum, innan og utan Landspítala. Algengustu einkennin voru almenns eðlis, eins og verkur eða roði frá stungustað og flensulík ein- kenni. Athygli vekur að 17 tilkynningar hafa borist þar sem tilkynnt er um einkenni frá stungustað sem komu fram um viku eftir bólusetningu. Þetta er heldur lengri tími en kom fram í rannsóknum á bóluefnunum fyrir markaðssetningu og lengri tími en sést eftir aðrar bólusetningar, til dæmis gegn inflúensu. Guðrún Stefánsdóttir lyfjafræðingur lyfjafaraldsfræðingur Elín I. Jacobsen lyfjafræðingur Hrefna Guðmundsdóttir lyflæknir Fjöldi aukaverkanatilkynningar Tilkynnt lyf Fjöldi aukaverkanatilkynningar Starfsheiti tilkynninga

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.