Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 47
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 159 Kristján Guðmundsson Dagur í lífi háls-, nef- og eyrnalæknis Allt einhver allsherjar misskilningur. Kolniðamyrkur og einhver að leika vögguvísu. Skil smám saman að þetta er vekjaratónninn í nýja símanum. Einhver húmoristi austur í Kóreu hefur valið þetta tónskrípi til að vekja mig. Ég rís upp og slekk á kvikindinu. Klukkan er 6:15. Fer að iðrast þess að hafa stungið upp á fundartíma kl. 8. Egg og hafragrautur en engin blöð komin, útburðurinn sofandi og engar minningargreinar, bridgeþættir eða Ferdinand. Í dag er skrifborðsdagur og engin mót- taka. Flest verkefni dagsins vegna samn- inga sérfræðilækna. Mættur snemma í Hlíðasmárann til fund- ar við formann LR og tvo lögfræðinga. Þétt prógram, 8 liðir á dagskrá og fundi skal lokið kl. 9. En fyrst átök við kaffivél- ina. Alltaf þegar ég kem að kaffivél skal hún þurfa að keyra heavy maintenance program. Hef sterklega á tilfinningunni að fyrsti dreitillinn eftir hreinsun sé ekk- ert skárri en kælivökvinn úr Chernobyl. Fundurinn fínn, gaman að vinna með kunnáttufólki. Síðan taka við símtöl, tölvupóstar og snarl með léttum spenningi fyrir stóra bankamálið. Leigði bankahólf fyrir mörgum árum tengt fasteignakaupum og einhverjum Húsbréfum. Setti sjálfsagt eitthvað fleira í hólfið. Bankinn búinn að skipta um nafn og flytja hólfin og nú enn einn ganginn er ég beðinn um að tæma hólfið. Látinn panta tíma með löng- um fyrirvara og fékk stöðugan straum af áminningum um þennan mikilvæga atburð. Las leiðbeiningarnar og sá að að- alinngangurinn væri lokaður og ég ætti að nota bakdyrainngang. OK, gerði það, fann hurð við gám og setti upp grímuna. Sko COVID-grímuna, ekki hina. Hurðin var læst og hvergi mannveru að sjá. Hefði lögreglan komið hefði ég verið tæpur, í hettuúlpu, grímuklæddur með bakpoka og bjánalegar skýringar um að bankinn hefði boðað mig á fund. Svo var opnað, ég leiddur niður í kjallara, látinn kvitta og framvísa lyklunum. Maðurinn kom svo með sinn lykil en það þarf tvo til að opna hvelfinguna, meina hólfið. Það var af minnstu gerð. Maðurinn vék til hliðar og lét mig einan um að handfjatla dýr- gripina. Fékk snert af innilokunarkennd, aleinn í hvelfingunni og hvað ef hann lok- aði nú stáldyrunum og fleygði lyklinum? Ég harkaði af mér og opnaði. Það flassaði í fjölmörgum synöpsum þegar ég sá að ílátið var galtómt. Mikil vonbrigði, ekki arða af illa fengnu fé, eðalsteinum eða ættargripum. Eins og fágaður diplómat sagði bankamaðurinn að ég hefði síðast opnað hólfið 2012. Ég man ekkert eftir því og heldur ekki af hverju ég var að leigja tómt bankahólf. Þurfti bolla af góðu kaffi og hrökkbrauð (þett sem lítur út eins og spónaplata eða ódýrt byggingarefni) til að jafna mig eftir bankahneykslið. Svo kl. 3 var ég í beinni eða þannig, fjarfundur hjá Emb- ætti landlæknis um lágmarksskráningu á heilsugæslustöðvum og læknastofum. Hvað er skráð, hvers vegna og hvað er svo gert við upplýsingarnar? Þetta er skráð: „Hjúskaparstaða samkvæmt þjóðskrá á þeim tímapunkti sem samskiptin fara fram. Nauðsynlegt er að geyma þessar upplýsingar með samskiptunum vegna þess að hjúskaparstaða getur breyst.“ Og kóðar fyrir hverja hjúskaparstöðu. Það þarf ekki að spyrja sjúklinga, sjúkraskrár- kerfin fletta þessu upp en er engu að síður atriði sem á að fara inn fyrir hverja komu. Ekki viss um að sjúklingar viti um upp- lýsingagjöfina og hvað gert er við þessar upplýsingar. Hefur verið birt samantekt eða niðurstaða? Þetta er angi af stærra máli og snýr að greiningum og aðgerðum sem eru viðkvæmar. Þurfa þær að vera persónugreinanlegar eða dugar saman- tekt? Þarf samþykki sjúklings? Brýtur skráning og innsending í bága við lög um persónuvernd? Það er ekki tekið á þeim brotum með neinum silkihönskum, há- markssekt upp á 2,4 milljarða. Umgangist með gát. Næst í stöðunni er kvöldmaturinn. Það er góð hvíld frá amstrinu. Skrapp í fisk- búðina og fékk mér ýsuflak. Maður fer í hringi með eldamennskuna, austurlenskt, indverskt og alls konar, en með góðan fisk er einfaldleikinn vanmetinn, hafa hitann hóflegan og taka eldunartímann alvarlega. Karamelliseraður laukur tekur 45 mín en er fyrirhafnarinnar virði. Fiskurinn látinn malla í smjöri yfir vægum hita. Kartöflur, sali og pipar, punktur. Ég man ekki hvort ég gerði eitthvað frá- sagnarvert eftir kvöldmat. Fór allavega frekar snemma í háttinn, las eins og venjulega og stillti vekjarann í nýja síman- um á 6:30. Framundan heill dagur á stofu og viss tilhlökkun að komast í umhverfi sem er manni tamt. Ég hef ákveðið að halda vögguvísuvekjaranum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.