Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 22
134 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 R A N N S Ó K N svo, hvað einkenndi þá einstaklinga sem höfðu IgE-mótefni fyrir rykmítlum í Reykjavík? Þetta var athugað á rannsóknarúrtaki í Evrópurannsókninni 1990-91 (ECRHS I) og árið 2000 (ECRHS II).26 Árið 1990-91 voru 49 einstaklingar með sértæk IgE-mótefni fyrir D. pteronyssinus, og af þeim voru 24 orðnir neikvæðir árið 2000. Þegar þessir tveir hópar voru bornir saman við einstaklinga með jákvæð IgE-mótefni fyrir grasfrjóum en ekki rykmítlum, höfðu þeir sem voru jákvæðir fyrir D. pteronyssinus bæði 1990 og 2000 oftar dvalið í sveit á sumrin sem börn, en hinir hóparnir tveir. Einnig voru könnuð jákvæð IgE-mótefni fyrir nokkrum ofnæmisvöldum sem vitað er að geta valdið krossnæmi við rykmítla. Fjöldi þeirra sem náðist til í rannsóknina er sýndur í töflu VI. Taflan sýnir mikið krossnæmi við heymítla hjá þeim sem voru jákvæðir fyrir rykmítl- um árin 1990 og 2000. Þannig er tenging við sveitirnar og heymítla sýnileg í þessari niðurstöðu. Í Evrópurannsókninni lungu og heilsa I (ECRHS I) var kannað ofnæmi fyrir L. destructor í Reykjavík og nágrenni.28 Þátttakend- ur í rannsókninni voru 519 og 57% þeirra höfðu unnið með hey eða komið nálægt heyryki með öðrum hætti. Í hópi karla voru það 69%, en í hópi kvenna 41%. Þessir einstaklingar skiptust þannig að 210 höfðu verið sendir í sveit sem börn, 54 höfðu alist upp í sveit og 34 höfðu fengist við að fóðra hesta. Jákvæð húðpróf fyrir L. destructor voru marktækt algengari hjá þeim sem höfðu kom- ið nærri heyryki, og var það sérstaklega áberandi hjá þeim sem höfðu fóðrað hesta. Sextíu einstaklingar höfðu einkenni í heyryki (21,5%), og af þeim höfðu 70% einkenni frá nefi, 42% einkenni frá augum og 45% hósta. Í nýbirtri niðurstöðu úr Evrópukönnuninni III (ECRHS III) eru bornar saman útkomur úr húðprófum fyrir heymítlum í fjórum borgum: Árósum, Bergen, Reykjavík og Uppsölum. Þarna var um að ræða einstaklinga á aldrinum 40-67 ára og fjöldi í hverju rann- sóknarþýði var frá 354 (í Reykjavík) til 195 (í Árósum). Prófað var fyrir Lepidoglyphus destructor, Acarus siro og Tyrophagus putrescentiae, nema í Uppsölum, þar sem einungis var prófað fyrir L. destruct- or (29). Í Reykjavík höfðu 13% jákvæð húðpróf fyrir heymítlum, í Bergen 8%, í Árósum 7%. Í Uppsölum voru 3% jákvæðir fyrir L. destructor. Í samanlögðum hópnum voru 10% jákvæðir fyrir heymítlum en 8% fyrir rykmítlum. Næmi fyrir heymítlum var áhættuþáttur fyrir ofnæmiseinkennum í nefi og astma. Umræða Rannsóknir sem gerðar voru á heysýnum sýndu ofnæmisvaka frá heymítlum, myglu, músum og frjókornum. Þeir geta valdið bráða- ofnæmi af sömu gerð og ofnæmi fyrir grasfrjóum og húsdýrum. Mygla og hitakærir geislagerlar geta valdið seinu ofnæmissvari eftir 6-8 tíma, sem er dæmigert fyrir heysótt. Hallas sýndi fram á mikið magn heymítla í heyinu og 5 tegundir mynduðu nærri 97% af mítlasamfélaginu.7 Eðlilegast hefði verið að prófa fyrir öllum heymítlum sem fundust, en aðeins þrjár tegundir voru fáanlegar í próflausnum. Þannig er ekki vitað hvort Tarsonemus sp. hefur mikla þýðingu sem ofnæmisvaldur hér á landi. Heymítlar voru aðalofnæmisvaldar í sveitunum og T. putrecentia var sá ofnæmisvaldur sem kom næst á eftir L. destructor og naut- gripum, þótt hann fyndist aðeins í 6% þeirra heysýna sem voru til rannsóknar. Möguleg skýring á vægi hans í þessari rannsókn er krossnæmi við L. destructor.30 Rannsóknin á ofnæmi í bændafjölskyldum fór fram árið 1983. Það vakti athygli rannsakenda að jákvæð húðpróf fyrir hundum og köttum lentu í 9. og 10. sæti, þó gera mætti ráð fyrir því að hundar og kettir væru á flestum heimilum. Í Evrópurannsókninni lungu og heilsa I (ECRHS I), sem gerð var árin 1990-91 á slembi- úrtaki Reykvíkinga á aldrinum 20-44 ára, voru grasfrjó, kettir og hundar algengustu ofnæmisvaldarnir.31 Síðari tíma rannsóknir benda til þess að dýr í umhverfi ungbarna sé ekki áhættuþáttur fyrir ofnæmi, og að hundar á heimili ungbarna dragi beinlínis úr ofnæmi.32-34 Varðandi ketti er þetta ekki jafn öruggt. Kettir á heim- ilum ungbarna virðast þó geta dregið úr ofnæmi fyrir köttum hjá fullorðnum, einkum hjá þeim sem eru með fjölskyldusögu um of- næmi, en þrátt fyrir það er algengi kattaofnæmis í beinu sambandi við fjölda katta í samfélaginu.35 Einnig hafa rannsóknir sýnt að þeir sem alast upp á sveitabýlum fá síður ofnæmi en þeir sem alast upp í þéttbýli.36 Þetta er vegna þess að óhreinindi (endotoxin) frá dýrun- um hafa verndandi áhrif gegn ofnæmi.37 Það verður að teljast ólíklegt að farið væri með ungabörn í hlöðu og fjós við gegningar og mjaltir. Þau hafi því komist í snertingu við ofnæmisvaka frá heymítlum og nautgripum inni á heimilinu, frekar en í útihúsum. Ekkert er vitað um magn ofnæmisvaka frá nautgripum inni á bændaheimilum, en magn rykmítla og heymítla hefur verið rannsakað.12 Safnað var ryksýnum úr rúmdýnum og af stofugólfi á 42 bæjum á Suður- og Vesturlandi. Það fundust 17 tegundir mítla í þessum sýnum, en í öllum tilfellum var um lítið magn að ræða á hverjum bæ. A. siro fannst á 13 bæjum og D. pter- onyssinus á 8 bæjum og aðrar tegundir í minna mæli. Þannig er hugsanlegt að lítið magn af heymítlum inni á heimilunum valdi til- tölulega miklu ofnæmi, en mikið magn af ofnæmisvökum frá hund- um og köttum eigi þátt í litlu ofnæmi fyrir hundum og köttum. Þótt algengi bráðaofnæmis væri svipað í V-Skaftafellssýslu og á Ströndum var mikill munur á jákvæðum felliprófum, hitaköst- um eftir vinnu í heyryki og skertri lungnastarfsemi, bændum í V-Skaftafellssýslu í óhag. Er það væntanlega vegna þess að þeir höfðu unnið í miklu meira heyryki. Ef gengið er út frá því að að- stæður inni á heimilunum hafi ráðið meiru um þróun bráðaof- næmis er kannski eðlilegt að ekki hafi fundist munur á bráðaof- næmi milli þessara landsvæða. Hvort sem horft er til fjölskyldna bænda eða þeirra sem bjuggu á Reykjavíkursvæðinu og höfðu verið í snertingu við heyryk var það sameiginlegt þessum hópum að algengustu einkennin voru frá nefi og augum. Hvers vegna er þessara einkenna þá ekki getið í eldri skrifum frá 18. og 19. öldinni? Jafnvel þegar komið er fram á 20. öld, þegar minnst er á ofnæmi fyrir heyryki, er ekkert minnst á einkenni frá nefi og augum. Jón Finsen tekur beinlínis fram að ein- kenni bænda séu annars konar en einkenni þeirra sem voru með „höfeber“.38 Í okkar rannsóknum voru þó miklu fleiri sem þjáðust af þessum einkennum en einkennum frá lungum. Var athyglis- gáfu þessara kollega okkar svona ábótavant? Í hinni vönduðu ritgerð Charles H. Blackley um frjóofnæmi, sem birt var 1873, getur hann þess að hann hafi haft 16 sjúklinga til rannsóknar og vitnar í þýskan lækni, Philipp Phoebus, sem hafði haft 56 sjúklinga til rannsóknar.39 Fyrst þessir miklu frumkvöðl- ar höfðu ekki fleiri sjúklinga að vinna með hefur sjúkdómurinn verið afar sjaldgæfur á þeim tíma. Hann getur þess einnig að sjúkdómurinn virtist helst koma upp meðal menntamanna, og að hann þekki engan innan bændafjölskyldna með þennan sjúkdóm.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.