Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 44
156 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 V I Ð T A L Ég virkilega nýt þess að starfa hér.“ Hér hafi fjölskyldan eignast vini. „Það er frábært að vera hérna, svona ef litið er framhjá veðrabrigðum. „Bráða- móttakan er þróaðri en ég þekki að heiman. Á sama tíma langar mig að kynna það sem ég hef lært hér heima í Svíþjóð.“ Slysa- og bráðalækningar sem sérfag hafi aðeins verið kennt sem slíkt í Svíþjóð síðustu ár en verið áður tveggja ára nám eftir annað sérnám. „Fagið er ungt,“ segir hann. Margir spítalar bjóði ekki einu sinni upp á bráðamóttöku allan sólarhringinn. „Við verðum því að berjast fyrir því að fá meira svigrúm sem fag.“ Sér sænskuna í erfiðri íslenskunni En hvernig gengur svo Svíanum að læra íslensku. „Erfiðlega,“ segir hann og hlær. „Ég var að vona að hún rynni auðveldlega inn í minnið en ég hef strögglað og átt erfitt með málfræðina og uppbyggingu málsins. Ég er farinn að átta mig á skrif- uðu máli og sé leifar af sænskunni í ís- lenskum orðum en talað mál er allt annað mál.“ En hvað hefur svo komið honum mest á óvart? „Sundlaugarnar; við elskum að fara þangað með dæturnar. Náttúr- an, skýjafarið, loftslagið heilluðu okkur einnig strax í sóttkvínni. Algjörlega magnað. Íslensk náttúra er einstök og við nýtum hvert tækifæri til að njóta hennar.“ Rasmus, Camilla og dætur þeirra tvær hafa notið tímans á Íslandi. Loftslagið og náttúran hafa heillað þau og þau notað hvert tækifæri til að njóta hennar. „Rasmus er fyrsti útlendingurinn sem kemur í viðbótarnám hingað til lands og lýkur sérnámi sínu hér,“ segir Hjalti Már Björnsson, kennslustjóri bráðalækninga á Landspítala. „Við erum því komin lengra en aðrir á Norðurlöndunum í að stilla flæði námsins inn í störf bráðamóttökunnar,“ segir hann. Víða sé verið að byggja námið upp um þessar mundir og margir fari sömu leið og hér. „Það er að segja að gera þá kröfu að sérnámslæknar í faginu sæki sér að hluta þekkingu erlendis.“ Rasmus sá fyrsti í skiptinámi í bráðalækningum Hjalti segir að námsstöður hér á landi hafi ekki verið auglýstar formlega er- lendis. „En ég verð var við mikinn áhuga hjá fleiri norrænum læknum á að koma hingað og taka hluta sérnámsins þar sem við erum lengra komin í þeim efnum en víðast hvar annars staðar á Norður- löndunum.“ Bráðalækningar hafa verið kenndar við Landspítala samkvæmt námskrá allt frá árinu 2002. Námið hefur þróast og haustið 2016 hófst kennsla samkvæmt námskrá The Royal College of Emergency Medicine. Hjalti segir að þótt Rasmus sé fyrsti skiptineminn í sérnáminu séu erlendir læknar í því. Norðmaður á fyrsta ári og Ný-Sjálendingur á sínu fimmta. „Þau eru bæði hér af gömlu og góðu ástæðunni að vera gift Íslendingi,“ segir hann. Alls eru 20 læknar í sérnámi í bráða- lækningum sem er 6 ára sérnám.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.