Læknablaðið - 01.03.2021, Blaðsíða 4
116 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
123
Katrín Júníana Lárusdóttir, Hjalti Guðmundsson, Árni Johnsen, Martin Ingi Sigurðsson,
Tómas Guðbjartsson, Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Ábendingar og árangur ósæðarlokuísetningar með
þræðingartækni (TAVI) á Íslandi
Ósæðarlokuþrengsl eru algengasti hjartalokusjúkdómurinn á Vesturlöndum Á Íslandi er
algengið 4,3% hjá einstaklingum yfir sjötugt og með hækkandi aldri þjóðarinnar má gera ráð
fyrir að fjöldi sjúklinga tvöfaldist á næstu 20 árum.
Árangur TAVI-aðgerða hér á landi er mjög góður, ekki síst þegar litið er til lágrar 30 daga
dánartíðni og heildarlifunar, og tíðni alvarlegra fylgikvilla er lág.
130
Davíð Gíslason, Tryggvi Ásmundsson, Þórarinn Gíslason
Heysjúkdómar á Íslandi II. Sjúkdómavaldar í heyi
og rannsóknir á Íslandi
Heyverkun á Íslandi hefur breyst mikið á þessari öld. Lengst af var hey þurrkað, en
í óþurrkum var þurrkunin léleg. Þá hitnaði í heyinu í hlöðunni. Þetta voru kjörað-
stæður fyrir myglu og heymítla og það myndaðist mikið ryk þegar farið var að
gefa það. Votheysverkun sem hófst á seinustu öld kom í veg fyrir þannig myglu.
Bráðaofnæmi fyrir heyryki virðist ekki hafa verið rannsakað að ráði fyrr en í lok
síðustu aldar. Þá var vakin athygli á því að heymítlar (storage mites), sem áður
voru nefndir heymaurar á íslensku, væru aðalorsök bráðaofnæmis fyrir heyryki.
137
Berglind Lilja Guðlaugsdóttir, Svava Engilbertsdóttir, Leifur Franzson, Hjörtur Gíslason,
Ingibjörg Gunnarsdóttir
D-vítamínbúskapur fyrir og eftir efnaskiptaaðgerðir á Landspítala
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni er offita eitt stærsta heilsufarsvandamál heims.
Meiri líkamsþyngd eykur líkur á sjúkdómum eins og sykursýki 2 og hjarta- og æðasjúkdómum.
Offitu fylgir einnig aukin hætta á að fá ýmis krabbamein, kæfisvefn og sálfræðilega kvilla.
Langtímaárangur efnaskiptaaðgerða hjá fólki með offitu er almennt góður, með tilliti til
þyngdartaps, fylgisjúkdóma offitu og lífsgæða. Hins vegar geta aðgerðirnar aukið líkur á nær-
ingarefnaskorti. Markmið rannsóknarinnar var að kanna D-vítamínbúskap einstaklinga fyrir og
eftir efnaskiptaaðgerðir á Landspítala.
F R Æ Ð I G R E I N A R
3. tölublað · 107. árgangur · 2021
119
Ingileif Jónsdóttir
Bylting í þróun
bóluefna
Reynslan af þróun bóluefna
gegn COVID-19, prófunum,
mati og framleiðslu, verður
ómetanleg við þróun nýrra og
betri bóluefna.
121
Rafn Benediktsson
Ofþyngd þjóðar –
hvað getum við gert?
Fæstir geta snúið við einir og
óstuddir og almennar ráð-
leggingar um „heilbrigðan lífsstíl“
leysa sjaldnast málið. Það þarf
eitthvað miklu meira. Í aðgerða-
áætluninni frá 2013 var talað um
þekkingarteymi sem hægt væri
að leita til með alvarlegustu
tilfellin. Það hefur ekki enn verið
stofnað.
z
L E I Ð A R A R
TAVI-aðgerð
á Landspítala
Á FORSÍÐU
Ósæðarlokuþrengsl eru algengasti lokusjúkdómurinn á Vesturlöndum. Hefðbundin meðferð við alvarlegum
þrengslum hefur verið opin ósæðarlokuskipti en síðastliðin ár hefur ósæðarlokuísetning með þræðingar-
tækni (TAVI) rutt sér til rúms.
Tómas Guðbjartsson brjóstholsskurðlæknir og einn höfunda fræðigreinar um TAVI í marsblaðinu tók
kápumyndina og myndina hér fyrir ofan í aðgerð nýlega.