Hugur og hönd


Hugur og hönd - 2021, Side 38

Hugur og hönd - 2021, Side 38
38 HUGUR OG HÖND2021 KROSSSAUMUR KARÓLÍNU MARGRÉT VALDIMARSDÓTTIR Útbúinn hefur verið fjöldi útsaumspakkninga í tilefni af sýningunni Karólína vefari sem opnuð hefur verið í Árbæjarsafni. Pakkningarnar eru ávöxtur samstarfs Heimilisiðnaðarfélags Íslands, Láru Magneu Jóns- dóttir textílhönnuðar og eiganda Saumakassans og Borgarsögusafns sem hófst í maí 2020 þegar Lára Magnea var ráðin til að velja munstur frá Karólínu og færa þau í nútíma horf. Sautján útsaumspakkningar líta nú dagsins ljós, en möguleikar á viðbótum í framtíðinni eru óþrjótandi. Að baki krosssaumspakkninga af þessu tagi liggur ómæld vinna sem útilokað hefði verið að inna af hendi nema með dyggri aðstoð fjölmargra sjálf- boðaliða. Auglýst var eftir félagsmönnum til að sauma sýnishorn, sem síðan voru notuð til ljósmynd- unar og til útstillinga á sölustöðum. Þátttakendur í Saumaklúbbi Karólínu hittust um skeið annað hvert föstudagskvöld og saumuðu saman. Þá er ótalin öll sú mikla vinna sem fólst í að telja spotta, hnýta í hankir eða skreppur og setja í pakkningar. Án þessarar viðamiklu sjálfboðavinnu hefði verkefnið ekki reynst mögulegt. Öllum sem lagt hafa hönd á plóg er þakkað hjartanlega fyrir ómetanlega aðstoð. Ástundun handverks eflir bæði hug og hönd og hefur jákvæð áhrif á andlega heilsu. Það er notalegt að sitja með nál og þráð, sjá verkinu vinda fram og hafa að endingu í höndunum fallega híbýlaprýði. Það var löngu tímabært að endurnýja kynnin við munstrin frá vefstofu Karólínu, sérstaklega í ljósi þess að útsaum- ur nýtur nú vaxandi vinsælda. Viðtökur við kross- saumi Karólínu hafa þegar verið mjög góðar enda er söguleg tenging sterk og vandað mjög til verks. Það er von okkar að Karólína fari sem víðast, en tilkoma vefverslunar máir út landamæri í verslun því einfalt er að senda pakkningarnar hvert sem er. Ráðgert er að bjóða útsaumspakkningarnar á sem flestum sölu- stöðum um land allt en jafnframt eru þær seldar í vef- verslun Heimilisiðnaðarfélagsins heimilisidnadur.is og í vefverslun Saumakassans saumakassinn.is

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.