Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2013, Qupperneq 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2013, Qupperneq 4
4 – Sjómannablaðið Víkingur F ít o n / S ÍA Á árunum 1972 – 1999 starfaði ég sem lögfræðingur og skrifstofu- stjóri hjá samtökum útvegsmanna, sem voru til húsa á 2. hæð í Hafnarhvoli við Tryggvagötu í Reykjavík. Herbergi mitt var í norðurenda hússins og hafði ég gott útsýni yfir allan Ægisgarðinn. Á þessum árum kynntist maður mörgum útvegsmönnum og öðrum, sem tengd- ust sjávarútvegi með einum eða öðrum hætti. Eins og gefur að skilja voru persónuleikar þessara manna mismun- andi, en þetta var á þeim tímum, þegar menn þorðu að vera öðru vísi og bera hver sín persónueinkenni. Bjartsýnn og jákvæður fram úr hófi Einn af þeim útgerðarmönnum, sem kom oft til mín að spjalla var Ólafur Óskarsson, Óli Óskars, sem gerði út nótaskipið Óskar Halldórsson RE – 157. Frekar má þó segja að Óli hafi hugsað upphátt og sagt mér frá því, hvað væri í gangi hjá sér og útgerð sinni, heldur en að hann ræddi málin almennt við mig. Fór alltaf vel á með okkur Óla, enda var hann indælismaður og léttur í lund, sem sagði alltaf umbúðalaust það sem honum bjó í brjósti, en stundum án þess að vera búinn að hugsa málin alveg til enda áður. Óli var að eðlisfari bjartsýnn maður og gat eiginlega alltaf séð einhvern já- kvæðan flöt á máli, þótt það liti oft svart út í augum annarra. Þetta var eiginleiki sem maður í raun öfundaði Óla af, en stundum fannst manni þó bjartsýnin ganga úr hófi fram. Eitt af því sem Óli talaði oft um við mig og varð að hálfgerðu orðtaki hjá honum var, að hann hefði núna verið að gera góðan „díl“. Þá hafði hann til dæm- is keypt einhvern notaðan hlut og selt hann aftur með einhverjum hagnaði, það hafði fiskast vel eða hann fengið góða af- urðasölu eða eitthvað í þessum dúr. Óli var sem sé alltaf að græða, þótt ekki væru það alltaf stórar fjárhæðir. Reyndi Óli alltaf að sjá eitthvað jákvætt koma út úr hlutunum, þótt útgerðarreksturinn væri oft mjög erfiður á þessum árum. Maður var nú þó á endanum orðinn svo- lítið þreyttur á sögunum af öllum þess- um góðu „dílum“ hjá Óla. Jónas Haraldsson Óskar Halldórsson gekk í gegnum margvíslegar breytingar. Hér eru þrjár myndir af honum á mismunandi tímaskeiðum. Á þeirri seinustu heitir hann aðeins Óskar RE 157 og er á leið til Belgíu í brotajárn. Myndir: Tryggvi Bacon Sigurdsson/ http://batarogskip.123.is/

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.