Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2013, Blaðsíða 47
Sjómannablaðið Víkingur – 47
ið fyrir Hornhöfða þar sem skipið er of stórt til að fara í gegnum
Panamaskurðinn. Þar verða kjarnakljúfarnir fjarlægðir en skipa-
smíðastöðin hefur mikla reynslu af þess konar aðgerðum enda
hafa þeir fjarlægt 114 kjarnakljúfa úr bandarískum herskipum.
Það verður mikill sjónarsviptir af þessu glæsilega flugmóðurskipi.
Samruni?
Orðrómur um að tveir risar í gámaflutningum séu að sameinast
gerist æ háværari. Um er að ræða China COSCO Shipping og
China Shipping Container Lines CSCL en það fyrrnefnda sá 73%
samdrátt í tekjum á þriðja ársfjórðungi. Verði af samruna þessara
tveggja skipafélaga, sem ráða yfir 80% af flutningum til kín-
verskra hafna, verður það fjórða stærsta gámaskipafélag heims en
þó ekki langt frá að slá þriðju stærstu útgerðinni af stalli en það
er CMA CGM sem í augnablikinu státar af stærsta gámaskipi
heims.
Áfram stækka skipin
Nú hefur japanska útgerðin Nippon Yusen Kaisha eða NYK Line
pantað fjögur bílaflutningaskip, svokallaða Pure Car and Truck
Carrier (PCTC) skip, sem verða stærstu skip sinnar gerðar þegar
þau verða tilbúin. Eru þetta fyrstu bílaskipin sem NYK Line gerir
samninga um frá því kreppan skall á 2008. Skipin verða 36 metra
breið en þar er útgerðin að miða stærð skipanna við nýju skipa-
stiganna sem verið er að byggja í Panamaskurði. Munu nýju skip-
in geta flutt 7.000 einingar og verða þau afhent á árunum 2014
og 15. Skipin verða smíðuð í tveimur skipasmíðastöðvum, tvö hjá
hvorri þeirra, og verða þau sérstaklega hönnuð með nýjasta orku-
sparnaðarbúnaði sem á að gefa a.m.k. 30% minni eldsneyt-
iseyðslu.
Allir sendir heim
Nýlega fyrirskipuðu indversk yfirvöld að allir skipverjar af níu
tankskipum útgerðarinnar Pratibha Shipping frá Mumbai skyldu
sendir til síns heima. Sex skipverjar af einu skipa útgerðarinnar,
Pratibha Cauvery sem strandaði í Chennai, fórust og í kjölfar
rannsóknar þess kom í ljós að öll skip útgerðarinnar höfðu út-
runnin skírteini. Þá kom í ljós að ástand skipa útgerðarinnar var
mjög bágborið, þar sem með öllu var óbúandi um borð í þeim,
skipverjar höfðu ekki fengið greidd, laun ásamt því að andlegt og
líkamlegt heilsufar þeirra var mjög slæmt. Haldinn var neyðar-
fundur með hluthöfum útgerðarinnar þar sem samþykkt var að
öllum skipverjum skyldi komið til síns heima fyrir 10. janúar s.l.
en um var að ræða 150 manns. Þrátt fyrir samkomulagið, sem
einnig fól í sér greiðslu launa, tókst útgerðinni ekki að standa við
það en útgerðin hefur lofað að leysa málið með sölu skipa í brota-
járn. Þrjú skipanna voru í erlendum skipasmíðastöðvum til við-
gerða meðan hin sex biðu í indverskri landhelgi eftir fyrirmælum
um verkefni.
Raunir skemmtiferðaskipa
Í skemmtisiglingu CARNIVAL SENSATION, sem er 70 þúsund
tonn að stærð, frá 16 til 19. ágúst sl. réðist 31 árs karlmaður
ásamt fjórum öðrum einstaklingur á 15 ára stúlku sem var meðal
farþega skipsins. Ekki var vitað hvað olli árásinni en karlmaður-
inn var handtekinn og leiddur fyrir dómara í Orlando. - Þann 27
ágúst sl. hélt CARNIVAL FASCINATION, sem er 70 þúsund tonn
að stærð, út frá Jacksonville. Skömmu eftir brottför sást 31 árs
hermaður, sem var meðal farþega, stökkva fyrir borð. - Skipverji
af COSTA FAVOLOSA, sem er 114 þúsund tonn, hvarf fyrir borð
í Eyjahafi 31. ágúst skammt undan Istanbúl í Tyrklandi. Leitaði
skipi í sex tíma að skipverjanum en án árangurs. - Þann 6. sept-
ember var JEWEL OF THE SEAS, sem er 90 þúsund tonn að
stærð, að koma til hafnar í Klakksvík í Færeyjum. Skipstjórnar-
menn höfðu ekki áttað sig á því að þegar skipið sigldi inn á höfn-
ina var lofthæð skipsins hærri en rafmagnslína sem lá þvert yfir
fjörðinn og lenti skipið á kaplinum með þeim afleiðingum að
hluti masturs brotnaði. Varð einn skipverji fyrir fallandi hlutum
úr mastrinu og slasaðist. Ekki var ljós af hverju skipið rakst í raf-
magnslínuna en skipið hafði oft áður komið til Klakksvíkur. Það-
an hélt skipið síðan til Reykjavíkur. - Sautjánda september var til-
kynnt að 21 árs kona hefði farið fyrir borð af ALLURE OF THE
SEAS, sem er 225 þúsund tonn að stærð, nærri Port Everglades.
Þrátt fyrir mikla leit bar hún ekki árangur. - Kona fór fyrir borð
af AURORA, sem er 76 þúsund tonn, þegar skipið var á siglingu
milli La Corunna til Barcelona þann 1. október. Leit bar ekki ár-
angur. - Þann 10. október fór mikil leit fram að 71 árs gamalli
konu í Kanada eftir að hún hafði ekki skilað sér til skips eftir
skipulagða ferð farþega af VEENDAM, sem er 57 þúsund tonn að
stærð. Konan fannst ekki. - Þann 15. október sást fillippínskur
skipverji af SERENADE OF THE SEAS, sem er 90 þúsund tonn
að stærð, falla fyrir borð milli Mykonos og Salerno. Hann náðist
ekki. - Farþegi af CARNIVAL DESTINY, sem er 101 þúsund tonn
að stærð, stökk fyrir borð þann 22. október en skipverjum tókst
að ná honum um borð aftur. Sýnir þessi samantekt að lífið um
borð í skemmtiferðaskipum er ekki bara dans á rósum.
Verðmunur á smíði og niðurrifi
Það hafa eflaust flestir sjómenn einhvern tíma heyrt talað um Li-
berty skipin en samtals voru smíðuð 2.710 skip af þeirri gerð í
Bandaríkjunum í seinni heimsstyrjöldinni. Þau halda meti í skipa-
smíðum sem enn hefur ekki verið slegið þegar kjölur Robert E.
Peary var lagður en frá þeim tíma og þar til skipið sigldi á brott
liðu 4 sólarhringar, 15 klukkustundir og 29 mínútur. Meðal-
smíðatími Liberty skips voru þó 42 dagar á landsvísu og kostaði
hvert þeirra 2,5 milljón dollara. En þessi skipagerð á væntanlega
fleiri met og er eitt þeirra niðurrifsmet. Liberty skipið Davy
Crockett var nýlega rifið og tók 211 daga að rífa það en kostnað-
urinn við það reyndist vera 22 milljónir dollara sem væntanlega
er einnig met. Skipinu hafði verið breytt árið 1969 í pramma þar
sem hluti af yfirbyggingu átti að fjarlægjast ásamt vélbúnaði. Það
var svo í janúar 2011 að uppgötvaðist leki frá yfirgefnum og hálf-
sokknum prammanum á Columbia ánni nálægt Vancouver. Þegar
menn fóru að skoða pramman kom í ljós að hann var hálfsokkinn
og eitthvað höfðu menn svikist um við breytingar á því þar sem
styrkur var farinn úr skipinu er hafði sveigst og beygst. Vegna
þessa ástands var ljóst að sérstakar aðgerðir þyrfti til að rífa skip-
ið og var byrjað að slá upp þili í kringum skipið til að koma í veg
fyrir frekari mengun. Þegar loks var búið að ná skipinu upp og
rífa það kom í ljós að um borð í því höfðu verið 150 þúsund lítr-
ar af olíu.
Síðustu Liberty skipin
Eins og áður hefur komið fram voru smíðuð 2.710 Liberty skip
og meðan á smíði þeirra stóð voru að meðaltali 3 skip afhent á
degi hverjum. Um 300 þessa skipa urðu kafbátum Þjóðverja að
bráð en önnur áttu eftir að plægja heimshöfin sem kaupskip og
önnur fóru í legu í varaflota Bandaríkjamanna. Nú 70 árum síðar
eru átta Liberty skip enn á floti. Þrjú þeirra eru safnaskip þau