Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2013, Blaðsíða 8
8 – Sjómannablaðið Víkingur
Hvað er Mergi?
Magnús Örn Tómasson, hjá Marás vél-
um, svarar: „Mergi er lífrænn brennslu-
hvati. Honum er blandað saman við elds-
neytið, svartolíu, díselolíu og bensín, og
við það sparast olían um 4-12% og bens-
ínið um 8%.“
Galdurinn felst í því að Mergi gerir
eldsneytið brennanlegra; með öðrum
orðum það brýtur upp mólekúl eldsneyt-
isins og lagar CVI gildið. Þetta er ástæð-
an fyrir því að Hörður Erlendsson vél-
stjóri segir þá á Örvari nota Mergi til
íblöndunar. Það er góður bruni sem sóst
er eftir er veldur því að vélin sótast lítið
sem ekkert. Fyrir vikið hafa viðgerðar-
mennirnir hjá Vélum og Skipum orð á
því að þeir fái varla betri aðalvél til eftir-
lits og viðhalds , bendir Hörður á.
Grétar Berg Hallsson, hjá Flugstoðum
ohf, tekur undir þetta. Vegna hins góða
bruna eru vélarnar hreinni og þar af leið-
andi endingarbetri, afl vélanna skilar sér
mun betur og þær eru betri og öruggari í
gang.
Jón Helgi Ásmundsson, yfirvélstjóri á
Ottó EK, staðfestir bæði hinn góða
bruna; „vélin sótar miklu minna í hæga-
gangi“, og að eldsneytissparnaður er allt
að 6%.
Ýmsar óháðar rannsóknir hafa verið
gerðar á virkni Mergi, meðal annars hef-
ur rannsókn hjá Det Norske Veritas (sjá
skýrslu nr. 85-6115) staðfest um 4%
sparnað þegar Mergi var blandað í elds-
neytisolíu.
- En hvað með einkabílinn?
„Jú, blessaður vertu, við hérna hjá
Marás notum þetta allir,“ segir Magnús
Örn. „Fyrir hrun vorum við aðallega að
hugsa um að lengja líftíma vélanna en
eftir hrun og sífelldar eldsneytishækk-
anir munar heldur betur um eldsneytis-
sparnaðinn sem Mergi gefur. Við þurfum
ekki nema 10 ml í 40 lítra tankinn.
Hingað til hafa það þó verið mest leigu-
bílstjórar, langferðabílar og vinnuvélar
notað Mergi en við erum farnir að selja
Mergi á 500 ml brúsum sem henta öll-
um.“
Magnús Örn Tómasson, hjá Marás, gefur allar upplýsingar um Mergi. Netfangið hjá honum er mt@maras.is,
síminn 840-6645.
MERGI sparar eldsneyti
og viðhald