Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2013, Blaðsíða 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2013, Blaðsíða 18
18 – Sjómannablaðið Víkingur veðurhæð aðeins einu sinni náð 11 vind- stigum og frost sjaldan orðið meira en –20 °C. Í Nýfundnalandsveðrinu, 7.–10. febr- úar 1959, mældist á Gander þann 7. febrúar loftkuldi lægstur –22,8 °C og veðurhæð mest 100 km/klst.; þann 8. febrúar –23,9 °C og veðurhæð 106 km/ klst., þann 9. febrúar –23,3 °C og veðurhæð 84 km/klst. og þann 10. febrúar –21,1 °C og veðurhæð 56 km/ klst. Oft hefur mælzt meiri loftkuldi en þetta á þessum slóðum, –26,1 °C þann 17. febrúar 1938, –26,7 °C þann 6. febr- úar 1950. Og í janúar 1957 mældist loft- kuldi –27,2 °C þann 29. janúar, –25,6 °C þann 30. janúar1957, en veðurhæðin var þá ekki samtímis neitt viðlíka og var í Nýfundnalandsveðrinu 1959. Veðurhæð hefur þó mælzt meiri en í því veðri eða 111 km/klst. þann 29. janúar 1955, og í janúar 1957, sem áður var nefndur, mældist veðurhæð 113 km/ klst. þann 11. janúar (frost –15,6 °C), 129 km/klst. þann 13. janúar (frost –23,9 °C) og 161 km/klst. þann 14. janúar 1957 (frost –15,0 °C). Þá mældist veðurhæð 126 km/klst. þann 3. desem- ber 1958 (frost –7,8 °C).14 Af þessu sést, að veðrið 11.–14. janú- ar 1957 var slæmt líkt og Nýfundna- landsveðrið. En togarar af þeirri gerð, sem íslenzku togararnir voru á þessum árum, gátu yfirísast á fáeinum klst. Sólar- hringa þurfti ekki til. Hefði ályktun Alþingis átt að beinast að því, að sjódómur yrði haldinn og skipuð rannsóknarnefnd, sem kynnti sér veðurfar á þessum slóðum með aðstoð kanadísku Veðurstofunnar? Sjóslysin norður af Horni í janúar 1955 áttu að rifjast upp, eftir að Benedikt Gröndal, al- þingismaður, beindi athygli að þeim í umræðu á þingi. Leiðin til þess að tryggja öryggi áhafna togara var að hindra, að skip lentu í ofviðri og ísingu eins og hér er lýst. Engin björgunar- tæki gátu með öryggi bjargað áhöfnum skipa, sem lentu í slíkum náttúruham- förum. Þakkir. Dr. Þór E. Jakobsson, veðurfærðingur, aðstoðaði við öflun og túlkun veður- fræðigagna frá Kanada, sem veðurstofan þar lét fúslega af hendi. Dr. Björn S. Stef- ánsson las próförk. Eru þeim öllum fræðar beztu þakkir. Hafísjaki framundan. Mynd: Stefan Söderholm.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.