Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2013, Qupperneq 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2013, Qupperneq 20
20 – Sjómannablaðið Víkingur Föstudaginn 8. febrúar sl. var haldin ljósmyndakeppni sjómanna á Norð- urlöndum og fór hún fram í Ryvarden vitanum sem er rétt utan við Hauga- sund í Noregi. Það var fallegur morgun þegar fulltrúar allra Norðurlandanna hittust í aðalstöðvum norsku Siglinga- málastofnunarinnar í Haugasundi til- búnir til að leggja fram 15 ljósmyndir sjómanna frá hverju landi til að berjast um fimm vinninga keppninnar. Búið var að ákveða að keppnin færi fram við Ryvardenvita, sem er um 20 km fyrir norðan Haugasund, sem lagðist afar vel í mig sem fulltrúa Íslands. Það var einmitt á þessum slóðum, sem sagan segir, að Flóki Vilgerðarson hafi haldið frá Noregi með fjölskyldu sína og frændlið til að setjast að í nýju landi. Með Flóka fóru meðal annars þeir Herjólfur, Þórólfur og Faxi en talið er að Faxaflói sé nefndur eftir þeim síðast- nefnda. Flóki hélt þó ekki beint til Ís- lands heldur kom hann við á Hjaltlandi og Færeyjum áður en hann komst til fyrirheitna landsins og notaðist við þrjá hrafna til að vísa sér leiðina. Hrafna- Flóki átti síðan eftir að nefna landið Ís- land sem síðan hefur fest sér rækilega sess í heimssögunni. Við Ryvardenvita eru bæði gallerí og veitingastaður þar sem keppnin fór fram. Dómarar keppninnar að þessu sinni voru mættir en fengu ekki að vera viðstaddir meðan myndum var stillt upp. Eins og siður er koma dómararnir frá því landi sem keppnina heldur. Að þessu sinni voru þetta þeir Magnus Jonas Fjell nátt- úruljósmyndari og Alfred Aase ljósmynd- ari hjá Haugesunds Avis. Meðan dómar- arnir voru við störf fengum við, umsjónarmenn keppninnar, fræðslu um staðinn auk þess sem farið var að minn- ismerki um þá sem fórust með ferjunni Sleipni skammt undan vitanum árið 1999. Það tók dómarana um klukkustund að komast að niðurstöðu um hvaða myndir ársins 2012 væru bestu myndir keppninnar. Það var ekki laust við að titrings gætti þegar inn var komið og fimm ljósmyndir lágu á borðinu og þar á meðal ein íslensk. Dómararnir kynntu þá myndirnar sem unnu til verðlauna og þegar þeir kynntu fyrstu verðlaun með því að taka upp ljósmynd Guðmundar St. Valdimarssonar bátsmanns á varð- skipinu Ægi varð gleði mín ómæld. Loksins kom að því að íslensk ljósmynd sigraði í ljósmyndakeppninni. Það var mat dómaranna að myndin væri góð blanda af fólki við störf, náttúru og að lýsingin væri fönguð á réttu augnabliki. Í verðlaun hlýtur Guðmundur ljósmynda- búnað fyrir 5.000 danskar krónur sem gefin er af Walport í Kaupmannahöfn. Önnur verðlaun komu í hlut sænska hásetans Daniel Möllerstrøm á þjónustu- skipinu Tor Viking II. Ljósmyndarinn hefði náð að gera myndina listræna með svart hvítu. Andstæðurnar magna mynd- ina að mati dómaranna. Í verðlaun hlaut Daniel ljósmyndabúnað fyrir 5.000 norskar krónur sem Norska siglinga- málastofnunin gefur. Þriðju verðlaun komu í hlut margfalds sigurvegara Norðurlandakeppninnar, Verðlaunamynd Guðmundar St. Valdimarssonar er hann nefnir, Ýtt úr vör.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.