Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2013, Blaðsíða 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2013, Blaðsíða 31
Sjómannablaðið Víkingur – 31 víða við umhverfis landið og lærðum til verka. Að ýmsu var unnið þetta sumar. Siglt var kringum landið og skipt um gashylki í fjölda vita, á Seyðisfirði var kafað niður að flaki El Grillo, fiskveiðieftirlit var töluvert, skip í nauðum voru aðstoðuð, siglt með erlenda fréttamenn vegna kynningar á útfærslu landhelginnar í 50 mílur þann 1. september 1972. Einnig var unnið að hefðbundnu við- haldi skipsins til að tryggja að það yrði í sem bestu standi á haustdögum þegar út- færslan tæki gildi. Í dagbókarbrotum frá þessum tíma hef ég ritað að sunnudaginn 30. júlí var haldið frá Reykjavík áleiðis til Eyrar- bakka til að sækja umræddan hval. Að- fararnótt mánudagsins var hvalurinn dreginn út og siglt með hann vestur með landinu. Á mánudeginum var svo komið að því að reyna að sökkva hvalnum sem hafði verið leystur frá dráttarvírnum og velktist nú með kviðinn upp úti á regin- hafi og beið örlaga sinna. Bátur var mannaður og siglt að hvalnum reynt var að skera á kviðinn á honum. Þrátt fyrir nokkrar tilraunir gekk þessi aðgerð eng- an veginn upp og var annarra ráða leitað. Skammt þar frá komu menn auga á annan minni hval, sá var líka dauður. Var nú ráðist til atlögu við hann og gekk vel að skera á kviðinn á honum þannig að hann sökk og var ekki lengur ógn við sjóumferð. Áfram var haldið að reyna að koma stórhvelinu undir yfirborðið. Nú tók einn af stýrimönnum Óðins að munda fallbyssu skipsins og skaut nokkrum föstum skotum að hvalnum en þau skot sem hittu breyttu engu um. Að lokum var siglt yfir hvalinn og breytti það litlu. Þegar síðast sást til skepnunnar, síðasta dag júlímánaðar 1972, var hún enn á floti. En varðskipið hélt að þessu loknu til Ólafsvíkur og sótti þangað dýpkunarprammann Gretti og dró hann hálfa leiðina kringum land- ið til Húsavíkur. Fallbyssan tekin í gagnið. Sigurður Steinar Ketilsson, núverandi skipherra á Þór, miðar og hleypir af. Þrautaráðið – sem dugði þó ekki – var að sigla á skepnuna.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.