Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2013, Qupperneq 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2013, Qupperneq 38
38 – Sjómannablaðið Víkingur ferð skipsins þangað. Aðrir veltu því fyr- ir sér hvað yrði um okkar góða skip. Einhverjir höfðu á orði að nú yrði það trúlega selt úr landi hið fyrsta, en aðrir töldu að því yrði sennilega lagt við festar uppi í Hvalfirði eða Kollafirði og látið liggja þar uns úr rættist. Þegar lagst var við festar í Reykjavík nokkru eftir miðj- an nóvember grunaði hins vegar fæsta að okkar biði mikil og viðburðarík langsigl- ing og að við myndum eyða jólunum sunnan miðbaugs. Suður mitt Atlantshaf Ekki mun hafa hvarflað að forráðamönn- um Olíufélagsins eða Skipadeildar S.Í.S. í nóvember 1964 að selja Hamrafell, enn síður að leggja því á afviknum stað á Ís- landi og bíða átekta. Þeir vissu vel að töluverð eftirspurn var eftir olíuskipum af þessari stærð til leigusiglinga úti í hin- um stóra heimi. Á þeim markaði var að sönnu sjaldan á vísan að róa, en þegar vel tókst til gátu slíkir flutningar gefið útgerðinni mun meira í aðra hönd en siglingar með olíuvörur til Íslands. Ekk- ert var hins vegar jafn óhagkvæmt og að láta dýrt atvinnutæki á borð við Hamra- fell liggja aðgerðalaust og þess vegna var allt kapp lagt á að koma skipinu úr höfn sem fyrst. Losun á farmi frá Sovétríkjunum í ol- íustöðvarnar þrjár í Reykjavík var tíma- frek og tók yfirleitt um fjóra til fimm daga ef veður hélst skaplegt. Þegar síð- asti farmurinn frá Batúmi var kominn á land, hafði enn ekki tekist að finna verk- efni fyrir skipið, en það settu menn ekki fyrir sig. Síðasta sunnudag í nóvember var látið úr höfn og fékk skipstjórinn fyrirmæli um að sigla sem næst suður mitt Atlantshaf svo við yrðum nokkurn veginn jafn fljótir til Evrópu eða Amer- íku eftir því hvar verkefni fengist. Í upp- hafi var þetta því hálfgerð óvissuferð. Á Hamrafelli var fjörutíu manna áhöfn og kenndi þar ýmissa grasa, eins og vænta mátti. Allmargir skipverjar voru á skipinu árum saman, aðrir skemur, og í hvert skipti sem komið var til Íslands urðu mannabreytingar. Sumir, einkum yfirmenn, fóru í frí og aðrir leystu þá af og alltaf fóru einhverjir af eftir hvern túr og nýir menn komu í staðinn. Ríkharð Jónsson, sem var fastráðinn skipstjóri á skipinu, fór í frí fyrir þessa ferð og Gunnar H. Sigurðsson 1. stýrimaður tók við skipstjórninni. Gunnar var hörkusjó- maður og einkar vel látinn yfirmaður. Hann þekkti Hamrafellið öðrum mönn- um betur, hafði verið þar stýrimaður frá því Íslendingar eignuðust skipið árið 1956. Í þessari ferð reyndi oft á hæfni hans og mannkosti og hann leysti hvern vanda af réttsýni og skörungsskap. Má þá geta þess lesendum til fróðleiks að Gunnar var yngri bróðir hins þjóðkunna sægarps Einars Sigurðssonar á Aðalbjörgu RE. Sigurður Hallgrímsson, sem verið hafði 2. stýrimaður, varð 1. stýri- maður og varð þessi ferð honum ærið óvenjuleg og minnistæð. Allmargir und- irmenn fóru af skipinu áður en lagt var upp í „óvissuferðina“ og þegar siglt var úr höfn var um það bil helmingur háset- anna nýir. Sumir þeirra voru þó allreynd- ir sjómenn en flestir hásetanna voru ungir að árum. Man ég ekki betur en að allir hafi þeir reynst ágætir félagar, eins og reyndar aðrir skipverjar. Til Kyrrahafs og suður yfir miðbaug Eftir nokkurra daga siglingu frá Reykja- vík bárust boð frá Skipadeildinni um að verkefni hefði fengist fyrir skipið. Við áttum að sigla til Aruba á Karíbahafi, lesta þar og halda síðan um Panama- skurð til Callao í Perú. Þar myndi skip- stjóri fá upplýsingar og fyrirmæli um næsta verkefni. Þessar fréttir vöktu ánægju okkar yngri mannanna um borð, sem sáum fram á ævintýri í suðurhöfum, en mig grunar að hinir eldri, og þá eink- um fjölskyldumenn, hafi ekki allir orðið jafn glaðir við. Nú var stefnan sett í suðvestur og til Aruba komum við eftir liðlega tveggja vikna siglingu frá Reykjavík. Þar tók tæpa tvo sólarhringa að lesta skipið og síðan var látið í haf á ný og stefnt í vest- urátt. Eftir rúmlega tveggja sólahringa siglingu var komið til Colon sem er við eystri enda Panamaskurðarins. Á leiðinni undruðumst við oft hve mikil skipaum- ferð var á þessum slóðum, miklu meiri, að okkur fannst, en til að mynda á Mið- jarðarhafi. Þarna var mikið um stór olíu- skip á leið til og frá Venesúela og eftir því sem nær dró Panama þéttist umferð alls kyns skipa. Varð því að sigla með gát og fylgjast vel með en mörg þeirra skipa sem við mættum virtust okkur vera hrör- leg og hálfgerðar manndrápskollur. Þar sem skipið hafði ekki áður farið um Panamaskurðinn tók það yfirvöld nokkurn tíma að skoða og yfirfara mæl- Helgafell við Torfunefsbryggju á Akureyri. Skipið var smíðað árið 1954 og var í þjónustu Sambandsins til 1979 að það var selt úr landi. Mynd: Minjasafnið á Akureyri. Siglt um Panamaskurðinn. Mynd: Benedikte Posthumus

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.